Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.03.2012, Side 24

Víkurfréttir - 29.03.2012, Side 24
Rúmlega betri Að jafnaði eyðum við þriðjungi ævinnar í rúminu. Með hugarórum má bæta einhverju við þennan tíma. Hjónaherbergið er heilagasti staður heimilisins og þar gilda önnur lögmál en annars staðar. Við eigum alla vega að haga því þannig. Þarna upplifum við bestu stundir lífsins og svo eru einnig dæmi um þær slæmu. Það er nátt- úrulega alveg bannað. Ætti að skylda alla til þess að hafa ánægjumæli á náttborðinu til að meta ástandið. Enginn má fara óánægður í rúmið, ekki undir neinum kringum- stæðum. Hvað þá úr því. Jafnvel þegar allt á móti blæs. Rekkjan verður líka að standa sína plikt ef hún á að skila tilætluðu hlut-verki. Rekkjunautar þurfa að vera samstilltir sem ein órofa heild. Ófáa rimlana hefur maður nú keypt í gegnum tíðina, allt frá skrautlegum kast- alagrindum til fjögurra fermetra fjölskyldufleka. Þannig gátu allir púkarnir skriðið upp í ef úti fyrir ýlfraði í Kára. Merkilegt hvað svona fleti hefur að geyma margar góðar minningar enda á alúðin og hlýjan að umvefja þig eins og faðmur frelsarans. Já, „..sænginni yfir minni.“ Svefnmýtan er vissulega mismunandi hjá okkur eins og gengur og gerist. Spánverjarnir skipta henni upp í tvö tímabil á sólarhring en það hef ég aldrei getað. Þarf minn átta tíma órofna svefn, helst ekki minna og alls ekki meira. Verð þreyttur ef ég sef of lengi. Það er samt algjört skilyrði að hvílan sé í lagi og hundarnir þægir, ef mýtan á að ganga eftir. Hef barist við þessi öfl að undanförnu og ákvað að takast á við ástandið eins og sannur hús- bóndi á mínu heimili. Samdi við hundana og fór með dýnurnar í aðgerð. Ákvað að herða upp á stálinu. Gormunum meinti ég! Komst að hjá RB rúmum fyrir náð og miskunn. Bar mig illa og konu-greyið sá aumur á mér. Fyrirtæki með tæplega 70 ára sögu hlýtur að hafa heyrt nokkrar sögurnar. Mín þótti eflaust ekkert sérstök en ef þú ert kurteis, þá færðu það endurgoldið. „Komdu með þær snemma í fyrramálið og þær verða eins og nýjar í eftirmiðdaginn“ sagði hún hæversk á móti. Og ég sem hélt að ég þyrfti að sýna frúnni minni nýjar lendur það kvöldið að minnsta kosti. Keypti þrýstijöfnunardýnu í ofanálag fyrir velviljann og nú nær svefnheilsan nýjum hæðum. Og frúin svífur um á bleiku skýi. vf.is Fimmtudagurinn 29. mars 2012 • 13. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 FIMMTUDAGSVALS VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 1- 17 13 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum Aðeins 4,4 lítrar á hundraðið Kia cee'd EX, 1,6 l, dísil, beinskiptur 16" álfelgur, loftkæling, hraðastillir (Cruise Control), leðurklætt stýri og gírstangarhnúður, bluetooth o.fl. Einnig fáanlegur sjálfskiptur. Verð 3.620.777 kr. Sértilboð 3.390.777 kr. Allt að 75% fjármögnun Tryggðu þér Kia cee'd á frábæru verði – aðeins örfáir bílar í boði! Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. K. Steinarsson Reykjanesbæ Þeir voru ekki háir í loftinu þessir víkingar sem ljósmyndari Víkurfrétta smellti mynd af í Víkingaheimum um nýliðna helgi þegar svokölluð Safnahelgi var haldin á Suðurnesjum. Víkingaheimar hafa gengið í gegnum þó nokkrar breytingar og hefur sýningunni þar verið breytt og hún gerð aðgengilegri. Þá geta yngri sýningar- gestir fengið lánaða víkingahjálma og klætt sig upp að hætti þessara frumbyggja landsins. Fleiri myndir frá Víkingaheimum eru inni í blaðinu í dag. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.