Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.04.2012, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 04.04.2012, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUdagUrInn 4. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR ATVINNA Staða félagsráðgjafa í barnavernd hjá Fjölskyldu- og félagssviði Reykjanesbæjar Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar (FFR) auglýsir eftir starfsmanni í 100% stöðu á skrifstofu FFR. Starfið felst í vinnu að barnavernd, ráðgjöf við foreldra og börn í Reykjanesbæ, samstarfi við leik-, grunnskóla og aðrar stofnanir sem tengjast börnum. Menntun og reynsla: Viðkomandi hafi lokið félagsráðgjafanámi til starfsréttinda og reynsla á sviði barnaverndar æskileg. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hjá FFR er gott starfsumhverfi og góður starfsandi. Laun eru skv. samningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi fagfélags. Umsóknum skal skilað til Starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ eða á mittreykjanes.is. Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir María Gunnarsdóttir, forstöðumaður barnaverndar, í síma 421 6700, maria.gunnarsdottir@reykjanesbaer.is ÓSKUM EFTIR MINJAGRIPUM Leitum eftir vönduðum minjagripum til sölu í Víkingaheimum og Duushúsum. Gripirnir þurfa að tengjast svæðinu eða sýningunum í húsunum á einhvern hátt. Skilið prufum ásamt nauðsynlegum upplýsingum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 fyrir 12. apríl nk. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Menningarsviðs 864-9190 Barnahátíð í Reykjanesbæ 12. og 13. maí Vertu með! Ert þú eða þitt fyrirtæki með góða hugmynd? Barnahátíð í Reykjanesbæ verður brátt haldin í 7. sinn og við bjóðum einstaklingum og fyrirtækjum til þátttöku í undirbúningi hennar. Margt kemur til greina: námskeið, skemmtanir, þjónusta eða hvað eina annað sem þú telur að höfðað geti til barna og fjölskyldna þeirra. Vertu með! Áhugasamir hafi samband á netfangið barnahatid@reykjanesbaer.is eða í síma 863-4989. Slasaðist við hellaskoðun Um helgina var komið með erlenda konu, sem slasast hafði við hellaskoðun, á lögreglustöðina í Reykjanesbæ. Konan hafði verið, ásamt öðrum ferðamönnum að skoða hellinn Dolluna á Gíghæð við Grindavíkurveg, undir leiðsögn fararstjóra. Hún féll um stein rétt við innganginn, lenti á höfðinu og hlaut meðal annars skurð á enni. Konan fékk að- hlynningu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og voru saumuð nokkur spor í enni hennar. Hún hafði verið með ennisljós og hjálm við hellaskoðunina. Stútur ók á ljósastaur Lögreglunni á Suðurnesjum barst um helgina tilkynning um að bifreið hefði verið ekið á ljósastaur við sjoppu í um- dæminu. Mikil áfengislykt hefði verið af ökumanni, sem hafði látið sig hverfa brott af staðnum eftir áreksturinn. Lögreglan hafði upp á manninum skömmu síðar. Málið telst upplýst. Þá stöðvaði lögregla ökumann, sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna, auk þess sem hann var hvorki með ökuskírteini né önnur skilríki. Hann var færður á lögreglustöð. Annar ökumaður sem stöðvaður var við hefðbundið umferðar- eftirlit lögreglu var hvorki með ökuskírteini né í bílbelti. Kvartað undan fjórhjólum Lögreglunni á Suðurnesjum barst nýverið kvörtun þess efnis að verið væri að aka á fjórhjólum eftir gamla Suðurstrandarveginum, sem Vegagerðin hefur afhent land- eigendum. Lögreglan rannsakar hverjir voru þar á ferð, þar sem vegurinn er lokaður, auk þess sem búið var að klippa á girðingu sem sett hafði verið upp vegna hesta. Var að skreppa Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði á dög- unum akstur karl- manns á sjötugs- aldri. Við nánari skoðun kom í ljós að hann ók réttindalaus því hann hafði verið sviptur ökurétt- indum. Maðurinn viðurkenndi brot sitt og kvaðst hafa verið að skreppa. Þá stöðvaði lögregla för tveggja ökumanna sem ekki voru í bílbelti við aksturinn. Þeir þurfa að greiða fimmtán þúsund krónur hvor í sekt. ›› FRÉTTIR ‹‹ Lilja Samú-e l s d ó t t i r h e f u r h a f i ð störf sem þjón- ustustjóri fyrir- tækjaþjónustu h j á L a n d s - b an k anu m í Reykjanesbæ. Li lja er við- skiptafræðingur að mennt og mun ljúka meistaranámi sínu frá HR í fjármálum fyrirtækja í desember 2012. Lilja hefur starfað hjá Landsbankanum frá árinu 2006, fyrst sem sérfræðingur í fyrir- tækjaviðskiptum í útibúi bankans í Keflavík og síðar sem þjónustu- stjóri fyrirtækjaþjónustu í útibúi bankans í Mjódd í Reykjavík. Ráðning Lilju mun styrkja fyrir- tækjahluta útibús Landsbankans í Reykjanesbæ og er það í fullu samræmi við áform bankans um að veita fyrirtækjum á Suðurnesjum öfluga og góða þjónustu. Lilja þekkir vel til Suðurnesjanna enda uppalin og búsett í Reykjanesbæ. Verkefni Fjölskylduhjálpar Ís-lands á Suðurnesjum hafa aukist mikið á undanförnum mánuðum. Í dag eru skjólstæð- ingar samtakanna um 350 talsins á Suðurnesjum og hefur þessi hópur tvöfaldast frá því starf- semin hófst á Suðurnesjum. Að sögn Önnu Jónsdóttur, verk- efnastjóra á Suðurnesjum, er fjölg- unin mest í hópi eldri borgara en einnig hjá ungum fjölskyldum sem eru að byrja búskap. Til að afla fjár fyrir matarúthlutanir eru Fjölskylduhjálpin með fata- markað alla fimmtudaga í húsnæði sínu í Grófinni. Þá eru matarút- hlutanir tvisvar í mánuði, annan og síðasta fimmtudag í mánuði. Á fatamarkaðnum er bæði nýr og notaður fatnaður. Notaði fatnaðurinn er mjög vel með far- inn en markaðurinn er hugsaður fyrir alla Suðurnesjamenn og er til fjáröflunar. Þar má m.a. fá ferm- ingarjakkaföt á drengi á 2000 kr. Fatnaðurinn á markaðnum er al- mennt seldur á 200-3000 krónur. Þá eru til sölu nýir gallar frá 66°N fyrir börn á 5000 krónur og úlpur á 3000 kr. Einnig er til mikið af sam- kvæmis- og sparikjólum sem skjól- stæðingar Fjölskylduhjálpar geta fengið lánaða fyrir fermingarveislur en allir skjólstæðingar geta einnig fengið frían fatnað á markaðnum á fimmtudögum. Vegna fjárskorts var ekki mögulegt að vera með úthlutun nú í vikunni fyrir páska en mjög hefur gengið á sjóði Fjölskylduhjálpar Íslands þar sem hver úthlutun kostar miklar fjárhæðir. Þannig kostar bara mjólkurúthlutun 280.000 kr. í hvert skipti og jólaúthlutunin kostaði 13 milljónir króna. Það kom fram í spjalli blaðamanns við Önnu Jónsdóttur, verkefnastjóra fjölskylduhjálpar, að börn á Suður- nesjum eiga góða stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu. Kona úr Reykjavík styður þannig þrjú börn á Suðurnesjum sem eru að ferm- ast í ár og borgar fyrir þau ferm- ingarveislu og fermingarfatnað. Þá barst nýlega góður stuðningur frá tveimur öðrum konum á höfuð- borgarsvæðinu sem verður nýttur sem stuðningur við fjölskyldur sem eru að ferma börn. Anna vildi koma á framfæri þökkum til allra þeirra fyrirtækja, félaga og ein- staklinga sem hafa verið að leggja Fjölskylduhjálpinni lið. Þannig hafa fiskverkendur í Grindavík gefið mikið af fiski, Sigurjónsbak- arí hefur gefið brauð, Nettó gefið gjafakort og nýlega barst mikið af páskaeggjum bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum. Þá afhenti Omnis nýlega tölvu og skjá frá HP til Fjölskylduhjálpar- innar í Reykjanesbæ, en tölvu- búnaði hafði verið stolið í innbroti um jólin. Þá mættu tveir ungir herramenn, Sigurjón og Daníel, í vikunni og gáfu stórt páskaegg sem mun fara á góðan stað. Nýr starfsmaður Lands- bankans í Reykjanesbæ Fréttasími Víkurfrétta er 898 2222 allan sólarhringinn! ›› Fjölskylduhjálp Íslands á Suðurnesjum: Selja fatnað fyrir mat Frá fatamarkaði Fjölskylduhjálpar Íslands í Reykjanesbæ. Hér er verið að ganga frá fatnaði sem nýlega hefur borist á markaðinn. Björn Ingi Pálsson frá Omnis afhenti Önnu Jónsdóttur nýja HP tölvu ásamt skjá en tölvu Fjölskylduhjálpar var stolið í innbroti. Í kjölfar inn- brotsins setti Securitas upp þjófavarnakerfi í aðstöðu samtakanna.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.