Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.04.2012, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 04.04.2012, Blaðsíða 16
Austur fyrir fjall Við hjónin tókum páskahelgina snemma. Áttum saman ljúfar stundir um sl. helgi í góðra vina hópi. Ísland allt árið er við- kvæðið þessa dagana og við tókum það bókstaflega. Stefnan var tekin á Laugarvatn, sem í minningunni er ævintýrasveit. Frúin tuðaði yfir nýrri ferðatilhögun, sem féll illa í kramið. Allt of mikið af beygjum. Þingvellir og Lyngdalsheiði eru ekki fyrir bílveika. Keypti handa henni nammi og söng fyrir hana „Þrjú hjól undir bílnum“. Allt kom fyrir ekki, jafnvel þó ég segði henni frá Laugarvatnshellum, sem eru manngerðir móbergshellar í Reyðarbarmi á Laugarvatnsvöllum, miðja leið milli Þingvalla og Laugarvatns. Hellarnir voru tveir, annar fjögurra metra breiður og 12 metra langur, en hinn álíka langur en mjórri. Hellarnir þekktir fyrir að það var búið í þeim í byrjun 20. aldar. „Erum við ekki að koma?“, stundi frúin lúin. Fór í fyrsta skipti til Laugarvatns á barnsaldri með foreldrum mínum og upplifði þá að drekka vatnið beint úr læk. Ausan í bústaðnum hjá Úllu frænku og Tona var vinsælasta áhaldið. Gat hreinlega ekki hætt að svala þorstanum í sumarsælunni. Núna fæst vatnið átappað í hálfslítra flöskum fyrir á þriðja hundrað krónur í sjopp- unni. Rifið úr hillunum, jafnt af erlendum sem innlendum. Bragðbætt í mörgum útgáfum. Fann ekki Laugarvatnsbragðið ómótstæðilega. Gleymi heldur aldrei íþróttabúðunum sem við strákarnir fengum að heimsækja tvö sumur í röð, vikulagt í senn. Upplifði æskuna í huganum. Hverafýla, kappleikir, sundmót, kvöldvökur. Áhuginn núna var þó meiri á kaffihúsinu í Galleríinu á Laugarvatni. Þar er boðið uppá úrvals kaffi, kakó eða te ásamt hverabökuðu rúgbrauði með reyktum silungi frá Útey og ýmsu öðru. Kætir bragðlaukana. Yndælis fólk og vinalegar móttökur eru aðalsmerki staðarins, enda líta ferðamennirnir við í röðum, allir kyn- stofnar. Íslenskt handverk í boði, minjagripir, makindi, meðlæti. Tekið vel á móti öllum, engu um það logið. Ekki hægt að sleppa rúntinum án þess að heimsækja Gullfoss og Geysi. Ægifögur náttúrufyrirbrigði sem láta engan ósnortinn. Tignarlegur foss og kraumandi hveravatn. Þvílíkar andstæður. Myndefnin ótrúleg. Vel búið að gestum, göngustígar og upplýsingar. Glæsilegir áningastaðir. Gæftir óendanlegar án inngripa stjórnvalda. Skattar eiga ekki samleið með náttúruperlum. Fæla frekar frá en laða að. Hlúum frekar að náttúrunni. Veljum framsýni fremur en skammsýni. Þannig föngum við athyglina og sáum fræjum um leið. vf.is Miðvikudagurinn 4. apríl 2012 • 14. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 FIMMTUDAGSVALS VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr Bandaríski stjórnunarráðgjafinn Brian Tracy hélt opinn fyrirlestur í Andrews-menningarhúsinu á Ásbrú sl. mánudag Ókeypis aðgangur var að fyrir- lestrinum en það var KADECO, Þró- unarfélag Keflavíkurflugvallar, sem bauð upp á viðburðinn. Um 300 manns nýttu sér tækifærið og hlýddu á kappann í eina og hálfa klukkustund. Fyrirlestrar Brian Tracy hvetja þátttak- endur til góðra verka, segir í kynningu á fyrirlesaranum og þeir sem mættu í And- rews fengu það í vegarnesti að þeir myndu ganga út með fjársjóð af hagnýtri þekk- ingu, ráðum og aðferðum sem þú getur strax farið að nota til að gera betur hvort heldur sem er í vinnunni, náminu eða í einkalífinu. Fyrirlestur Brian Tracy var stutt yfirlit þess besta og nýjasta úr Árangurssmiðju Tracy. Ókeypis Brian Tracy vel sóttur á Ásbrú Ti lb o ð g ild a ti l o g m e ð 1 6 . ap rí l 2 0 1 2 . Úrval af íslenskum og erlendum gjafabókumSígildu fermingargjafirnarGóð hugmynd! Flottar iPad hlífar á góðu verði! Þægileg fjögurra hjóla taska frá Travelite. Vandaðar tölvutöskur og bakpokar frá Belgíu. Við aðstoðum Við Valið og pökkum inn þér að kostnaðarlausu! þú finnur gjöfina í eymundsson Ferming 2012 Léttur ferðamáti kr. 6 . 999 stk. tilboð Áður kr. 7.999 5% afsláttur af öllum fermingargjöfum!Skráðu þig í næstu heimsókn. kr. 14. 499 stk. tilboð Áður kr. 22.999 64 cm 40% afsláttur með vildarafslætti kr. 4 . 490 stk. Verð Quattro Colari

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.