Víkurfréttir - 04.04.2012, Qupperneq 16
Austur fyrir fjall
Við hjónin tókum páskahelgina snemma. Áttum saman ljúfar stundir um sl. helgi í góðra vina hópi. Ísland allt árið er við-
kvæðið þessa dagana og við tókum það bókstaflega. Stefnan var
tekin á Laugarvatn, sem í minningunni er ævintýrasveit. Frúin
tuðaði yfir nýrri ferðatilhögun, sem féll illa í kramið. Allt of mikið af
beygjum. Þingvellir og Lyngdalsheiði eru ekki fyrir bílveika. Keypti
handa henni nammi og söng fyrir hana „Þrjú hjól undir bílnum“.
Allt kom fyrir ekki, jafnvel þó ég segði henni frá Laugarvatnshellum,
sem eru manngerðir móbergshellar í Reyðarbarmi á Laugarvatnsvöllum, miðja leið
milli Þingvalla og Laugarvatns. Hellarnir voru tveir, annar fjögurra metra breiður
og 12 metra langur, en hinn álíka langur en mjórri. Hellarnir þekktir fyrir að það var
búið í þeim í byrjun 20. aldar. „Erum við ekki að koma?“, stundi frúin lúin.
Fór í fyrsta skipti til Laugarvatns á barnsaldri með foreldrum mínum og upplifði þá að drekka vatnið beint úr læk. Ausan í bústaðnum hjá Úllu frænku og Tona
var vinsælasta áhaldið. Gat hreinlega ekki hætt að svala þorstanum í sumarsælunni.
Núna fæst vatnið átappað í hálfslítra flöskum fyrir á þriðja hundrað krónur í sjopp-
unni. Rifið úr hillunum, jafnt af erlendum sem innlendum. Bragðbætt í mörgum
útgáfum. Fann ekki Laugarvatnsbragðið ómótstæðilega. Gleymi heldur aldrei
íþróttabúðunum sem við strákarnir fengum að heimsækja tvö sumur í röð, vikulagt
í senn. Upplifði æskuna í huganum. Hverafýla, kappleikir, sundmót, kvöldvökur.
Áhuginn núna var þó meiri á kaffihúsinu í Galleríinu á Laugarvatni. Þar er boðið uppá úrvals kaffi, kakó eða te ásamt hverabökuðu rúgbrauði með reyktum
silungi frá Útey og ýmsu öðru. Kætir bragðlaukana. Yndælis fólk og vinalegar
móttökur eru aðalsmerki staðarins, enda líta ferðamennirnir við í röðum, allir kyn-
stofnar. Íslenskt handverk í boði, minjagripir, makindi, meðlæti. Tekið vel á móti
öllum, engu um það logið.
Ekki hægt að sleppa rúntinum án þess að heimsækja Gullfoss og Geysi. Ægifögur náttúrufyrirbrigði sem láta engan ósnortinn. Tignarlegur foss og kraumandi
hveravatn. Þvílíkar andstæður. Myndefnin ótrúleg. Vel búið að gestum, göngustígar
og upplýsingar. Glæsilegir áningastaðir. Gæftir óendanlegar án inngripa stjórnvalda.
Skattar eiga ekki samleið með náttúruperlum. Fæla frekar frá en laða að. Hlúum
frekar að náttúrunni. Veljum framsýni fremur en skammsýni. Þannig föngum við
athyglina og sáum fræjum um leið.
vf.is
Miðvikudagurinn 4. apríl 2012 • 14. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
Bandaríski stjórnunarráðgjafinn Brian Tracy hélt opinn fyrirlestur í
Andrews-menningarhúsinu á Ásbrú sl.
mánudag Ókeypis aðgangur var að fyrir-
lestrinum en það var KADECO, Þró-
unarfélag Keflavíkurflugvallar, sem bauð
upp á viðburðinn. Um 300 manns nýttu
sér tækifærið og hlýddu á kappann í eina
og hálfa klukkustund.
Fyrirlestrar Brian Tracy hvetja þátttak-
endur til góðra verka, segir í kynningu á
fyrirlesaranum og þeir sem mættu í And-
rews fengu það í vegarnesti að þeir myndu
ganga út með fjársjóð af hagnýtri þekk-
ingu, ráðum og aðferðum sem þú getur
strax farið að nota til að gera betur hvort
heldur sem er í vinnunni, náminu eða í
einkalífinu.
Fyrirlestur Brian Tracy var stutt yfirlit þess
besta og nýjasta úr Árangurssmiðju Tracy.
Ókeypis Brian Tracy vel sóttur á Ásbrú
Ti
lb
o
ð
g
ild
a
ti
l o
g
m
e
ð
1
6
.
ap
rí
l 2
0
1
2
.
Úrval af íslenskum og erlendum gjafabókumSígildu fermingargjafirnarGóð hugmynd!
Flottar
iPad hlífar
á góðu verði!
Þægileg
fjögurra
hjóla taska
frá Travelite.
Vandaðar tölvutöskur og bakpokar frá Belgíu.
Við aðstoðum Við Valið og pökkum inn þér að kostnaðarlausu!
þú finnur gjöfina í eymundsson
Ferming 2012
Léttur ferðamáti
kr. 6 . 999 stk.
tilboð
Áður kr. 7.999
5% afsláttur af öllum fermingargjöfum!Skráðu þig í næstu heimsókn.
kr. 14. 499 stk.
tilboð
Áður kr. 22.999
64 cm
40%
afsláttur með
vildarafslætti
kr. 4 . 490 stk.
Verð
Quattro Colari