Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.04.2012, Síða 6

Víkurfréttir - 04.04.2012, Síða 6
6 MIÐVIKUdagUrInn 4. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR Leiðari Víkurfrétta Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa: EYÞÓR SÆMUNDSSON, BLAÐAMAÐUR vf.is Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 12. apríl 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is Styðjum okkar fólk Starfshlaup í FS Það kemst fátt annað að hjá mörgum Suðurnesjamanninum þessa dagana en körfubolti. Grindvíkingar, Njarðvík- ingar og Keflvíkingar eiga lið sem eru í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í karla og kvennaflokki. Bikarmeistarar kvenna úr Njarðvík eru komnar í lokaúrslit annað árið í röð en í fyrra þurftu þær að sætta sig við tap gegn erkifjendunum frá Keflavík. Þær bláu eru hins vegar úr leik þetta árið. Jafnan er úr- slitakeppnin í hámarki í kringum páska og í ár er það vissulega svo. Búast má við því að áhorfendur verði ekki ýkja margir á laugardaginn klukkan 16:00 þegar Njarðvíkingar fara í Hafnar- fjörð í öðrum leik úrslitarimmu kvenna. Margir verða þá líklega á faraldsfæti og hreinlega í afslöppun í páskafríinu. Þeir hjá KKÍ raða þessu upp af kostgæfni og samkvæmt svörum frá forsvarsmönnum þar þá kom lítið annað til greina en að hafa leikinn á laugardeg- inum, enda væru liðin tvö þá algerlega dottin úr takti ef leikið yrði á miðvikudeginum næsta. Þá væru liðnar þrjár vikur síðan Haukar léku síðst og það yrði algerlega óásættanlegt. Það er bara vonandi að sem flestir geri sért fært að mæta. Grindvíkingar sáu til þess að Njarðvíkingar eru nú komnir í snemmbúið sumarfrí hjá körlunum en fyrirfram var svo sem ekki búist við að Njarðvíkingar myndu velgja deildarmeisturum Grinda- víkur undir uggum. Hið unga lið Njarðvíkinga stóð sig með prýði og verður gaman að sjá til þeirra í fram- tíðinni. Grindvíkingar eiga svo líklega eftir að fara alla leið nú í ár en að mínu mati geta aðeins þeir sjálfir komið í veg fyrir að svo veri. Leikmenn karlaliðs Njarðvíkur ættu að mínu mati að sína gott fordæmi og fylkja liði á leiki kvennaliðsins og láta duglega í sér heyra. Liðin mættu jafnvel mynda góðar stuðningssveitir en vöntun hefur verið á slíkum sveitum síðan trommu- sveitin var og hét hjá Keflvíkingum fyrir nokkru síðan. Sama hvað mönnum fannst um þá sveit þá skapaði hún ávallt stemningu. Stúlkurnar í Keflavík eru duglegar að mæta á karla- leikina en gaman væri að sjá þær allar á oddaleiknum í Garðabæ á fimmtudag að hvetja sína menn. Annars hefur það komið mér á óvart hve margir áhorfendur eru slakir í að styðja liðin sín. Alltof margir mæta einungis til þess að gagnrýna og tauta yfir því sem betur mætti fara, en ekki til þess að styðja sitt lið. Nú er ég ekki að segja að allir eigi að öskra og klappa allan liðlangan leikinn en gera mætti mun betur að mínu mati. Ég vill því nýta tækifærið og hvetja fólk til þess að mæta á leiki Suðurnesjaliðanna á næstunni og ekki væri verra að láta aðeins í sér heyra. Gleðilega úrslitakeppni og hafið það gott um páskana. Einn af árlegum viðburðum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er svokallað Starfshlaup, en það fer venjulega fram síðasta kennsludag fyrir páskafrí. Föstudaginn 30. mars var það haldið í 18. sinn. Í Starfshlaupinu reyna nemendur fyrir sér í nokk- urs konar boðhlaupi þar sem keppt er í flestum þeim námsgreinum sem kenndar eru við skólann og ýmsum þrautum að auki. Nemendur skipta sér í lið, sem hvert hefur sinn lit, en fyrir hverju liði fara nokkrir fyrirliðar sem koma úr hópi væntanlegra útskriftarnemenda. Í ár voru liðin sex talsins og keppnin geysispennandi. Starfshlaupið sjálft hefur nokkurn aðdraganda því síðustu vikurnar fyrir kapphlaupið fara hinar ýmsu keppnir fram á sal í hádeginu. Í ár var til dæmis keppt í þrautakeppni, bekkpressu og Sing Star tölvuleiknum. Liðin taka stigin sem þeir fá fyrir þessar undankeppnir með sér í sjálft Starfshlaupið og geta því verið komin með örlítið forskot þegar aðalkeppnin fer fram. Á starfshlaupsdaginn hófst keppnin í Íþróttahúsi Keflavíkur þar sem keppt var í reiptogi, badminton, stultuhlaupi og fleiri greinum sem reyna á þol og þrek. Að því loknu var synt, hjólað og hlaupið áður en keppnin færðist inn í skólann. Þar þeystust kepp- endur á milli kennslustofa og leystu verkefni auk þess að leysa ýmsar þrautir á göngum skólans eins og til dæmis að keppa í mínígolfi, pílu og skák. Alltaf verða einhverjar breytingar á þrautum á milli ára og að þessu sinni bættust við keppnisgreinarnar næringarfræði, líkamsmálun og kökuskreytingar. Keppnin endaði á sal þar sem liðin dönsuðu, léku, botnuðu vísu og fleira. Þar kom eitt liðið skemmtilega á óvart með því að flytja lagið Another Brick in the Wall og salurinn söng með af innlifun „we don´t need no education!“ Einn af hápunktum Starfshlaupsins á hverju ári er síðasta þrautin á sal en það er kappát þar sem hvert lið fær einn kennara til að keppa fyrir sína hönd. Eins og áður sagði var Starfshlaupið mjög spennandi í ár, keppnin jöfn og úrslitin réðust ekki fyrr en í síð- ustu þrautunum. Að lokum fór svo að Appelsínugula liðið sigraði. Gula liðið var í öðru sæti með nokkrum stigum minna og hin liðin voru ekki langt á eftir. Það var því Appelsínugula liðið sem hlaut Starfshlaups- bikarinn og pítsuveislu í verðlaun og óskum við þeim innilega til hamingju. Úrslit í einstökum greinum má sjá á heimasíðu FS: www.fss.is Umsjónarmenn Starfshlaupsins voru íþrótta- kennararnir Gunnar Magnús Jónsson og Kristjana Hildur Gunnarsdóttir. Eiga þau mikið hrós skilið fyrir skipulagningu og framkvæmd hlaupsins sem tókst mjög vel. Sömu sögu er að segja um fyrirliða allra lið- anna sem stóðu sig frábærlega. Allir nemendur skólans eru þátttakendur í Starfshlaupinu og það leggjast því allir á eitt við að gera þennan dag eins skemmtilegan og spennandi og hann er á hverju ári. Hvernig á að verja páskunum? Ætli ég eyði ekki páskunum í rólegheitum með börnum og vin- konu sem að býr á Bifröst og ætlar að kíkja á okkur. Gefur þú mörg páskaegg eða færðu mörg egg? Ég hef alltaf gefið börnunum egg, semsagt gefið 4 egg, en hef bara ekki fengið nein páskaegg undanfarin ár . Á að ferðast innanlands eða utan? Við fjölskyldan erum að flytja til Bahrain, reyndar er betri helmingurinn fluttur út og við förum svo núna í lok maí, þannig að það má segja bæði bara. Hvernig páskaegg færðu þér? Páskaeggin sem að börnin fá eru frá Góu..ég á það til að laumast í þau, þannig að Góa verður fyrir valinu. Hvað er í páskamatinn, ein- hverjar hefðir þar? Nei engar sérstakar hefðir, en það verður annaðhvort hryggur eða læri þetta árið. Eru páskaeggin falin á þínu heimili? Já, þau eru falin. Guðlaug Sigfúsdóttir ATHAFNAKONA - Hvernig á að verja páskunum? „Páskarnir hafa alltaf verið duttl- ungafullir hjá mér, ég læt það yfirleitt ráðast hvað ég geri og það hefur gefið góða raun. Vonandi hitti ég skemmtilegt fólk, borða góðan mat og á friðsælar sam- verustundir með fjölskyldunni“. - Gefur þú mörg páskaegg eða færðu mörg egg? „Dæturnar fá egg, ég reyni svo að sníkja af þeim sem vekur sjaldan lukku“. - Á að ferðast innan- lands eða utan? „Ferðalög um páska hafa ekki gefist vel. Mér er minnisstæð skíðaferð sem farin var til Akur- eyrar þar sem frumburðurinn lýsti því yfir eftir eina ferð niður fjallið að hún væri búin að fá nóg og eftir það lagðist öll fjölskyldan, sem og tengdaforeldrarnir, í ælupest það sem eftir lifði ferðar. Ég ætla því aðallega að ferðast um garðinn minn sem er að vakna til lífsins, tek kannski göngutúr um bæinn og kíki í tesopa hjá góðu fólki. Það er svo yndisleg ró yfir bænum um páska“. - Hvernig páskaegg færðu þér? „Eins og ég sagði áðan, það sem ég get kríað út úr dætrunum. Þarf kannski að breyta þeirri hefð“. - Hvað er í páskamatinn, einhverjar hefðir þar? „Tengdafjölskyldan borðar alltaf saman á föstudaginn langa og þar er páskalambið í aðalhlut- verki sem er vel við hæfi“. - Eru páskaeggin falin á þínu heimili? „Já dæturnar þurfa að hafa fyrir eggjunum með þátttöku í rat- leik sem bóndinn leggur mikinn metnað í og reynir þar á bæði gáfur og þekkingu. Fyrir vikið bragðast páskaeggin mikið betur“. Dagný Gísladóttir VerKeFNAsTjóri Hjá HeKluNNi Á VEF VÍKURFRÉTTA Nú í aðdraganda páska sendu blaða- menn Víkurfrétta spurningar á fjölda Suðurnesjamanna. Hluti þessara viðtala er hér í Víkurfréttum í dag en öll viðtölin munu birtast á vf.is um páskana!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.