Víkurfréttir - 04.04.2012, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUdagUrInn 4. aPrÍL 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Þessi ljúffenga fæða býr yfir ýmsum heilsubæt-andi eiginleikum en kakóbaunin inniheldur
næringarefni eins og magnesíum,
sínk og kopar, einnig efnið theo-
bromine sem er gjarnan kennt við
vellíðunina sem fylgir súkkulaði.
Nýlegar kannanir benda til þess
að flavoníð efni sem kallast po-
lyphenols í dökku súkkulaði geti
haft jákvæð áhrif á hjarta-og æða-
kerfi með því að auka blóðflæði, lækka blóðfitu
og háþrýsting. Þessi efni eru talin hafa sterka
andoxunarvirkni, eru bólgueyðandi og auka magn
nituroxíðs í blóði og hafa þannig jákvæð áhrif á
æðaveggi. Kakóbaunin er einnig talin hafa væg
blóðþynnandi áhrif og gæti því talist fyrirbyggj-
andi fyrir blóðsegamyndun. Hafa ber þó í huga
að í þessum könnunum var eingöngu notast við
dökkt súkkulaði að lágmarki 70% kakóinnihaldi
en venjulegt mjólkursúkkuði inniheldur mikið
magn sykurs og fitu og lágt innihald þessara virku
efna. Til þess að njóta heilsubætandi áhrifa súkkul-
aðis er skynsamlegt að nota dökkt súkkulaði í stað
mjólkursúkkulaðis til þess að fá nægilegt magn af
virku efnunum. Súkkulaði er vitaskuld hitaein-
ingarík fæða sem neyta skal í hófi og sem hluta af
fjölbreyttri fæðu. Vissulega er þörf á meiri rann-
sóknum á kakóbauninni svo hægt sé að ráðleggja
hana sem fæðubót en
þetta lofar góðu fyrir
súkkulaðiunnendur.
Þar sem páskarnir eru
á næsta leyti er snið-
ugt að gera sitt eigið
páskaegg með því að
bræða dökkt súkkul-
aði og hella í páskaeggjaform. Svo er hægt að setja
sjálfur málshátt og velja hollari sætindi úr heilsu-
hillunni til að fylla eggið. Gleðilega páska!
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
SÚKKULAÐI:
HOLLARI EN
VIÐ HÖLDUM?
Glæsilegir afmælistónleikar
Sextugsafmæli Myllubakka-
skóla var fagnað með glæsibrag
í Andrews-menningarhúsinu
á Ásbrú um nýliðna helgi. Það
er ljóst að skólinn hefur alið
af sér fjölmarga hæfileikaríka
tónlistarmenn og margir þeirra
komu fram á tónleikunum.
Afmælistónleikarnir voru fluttir
tvisvar sl. sunnudag fyrir troð-
fullu húsi en dagskráin tók
rétt tæpar þrjár klukkustundir
í hvort skiptið. Meðfylgjandi
myndir tók Hilmar Bragi við
þetta tækifæri en fleiri myndir
frá tónleikunum verða á vef
Víkurfrétta um páskana.
Guðjónína Sæ-
mundsdóttir, for-
stöðumaður MSS
- Hvernig á að
verja páskunum?
Páskunum
verður varið
í rólegheitum
hér heima. Ég
stefni á að fara
í eina göngu
með gönguhóp
sem ég hef aðeins verið að ganga
með. Stefnan er tekin á Búrfellið.
Það er ótrúlega gott að fá páskafrí
og geta slakað á í nokkra daga
eftir annansaman vetur án þess
að vera með mikla dagskrá.
- Hvað er í páskamatinn,
einhverjar hefðir þar?
Við höfum alltaf farið í mat til
minna fyrrverandi tengdaforeldra
á páskadag. Þrátt fyrir ég hafi skilið
fyrir þrem árum hefur það ekki
breyst en samband mitt við þau
er með eindæmum gott. Þar er
alltaf kalkúnn í matinn sem er eld-
aður af einstakri natni og miklar
spekúleringar í kringum fyllinguna
og annað meðlæti. Algjört lostæti.
- Gefur þú mörg páskaegg
eða færðu mörg egg?
Ég gef bara krökkunum mínum
páskaegg og hefur verið venjan
að fela þau. Alltaf gaman að láta
þau leita og núna finnst þeim það
vera hluti af því að fá eggið. Ég fæ
líklegast tvo egg, eitt frá mínum
fyrrverandi tengdaforeldrum og
svo eitt frá vinnunni. Þessi egg eru,
held ég, alltaf frá Nóa og Síríus.
Eitt það skemmtilegasta við
páskaeggin eru náttúrulega
málhættirnir. Ég fékk á einni
ráðstefnunni um daginn svona
smáegg og fékk ég málsháttinn
„segðu fátt en segðu það vel“. Fínn
málsháttur sem vert er að lifa eftir.
- Hvernig á að
verja páskunum?
Ég verð bara
heima í faðmi
fjölskyldunnar
og nýt þess að
vera í fríi.
- Gefur þú mörg
páskaegg eða
færðu mörg egg?
Ég held að
ég fái ekkert
páskaegg, ég á
að vísu afmæli á páskadag þannig
að það gæti verið að einhver gæfi
mér páskaegg í afmælisgjöf :)
- Á að ferðast innan-
lands eða utan?
Við í fjölskyldunni erum búin
að skipuleggja gönguferðir
um Reykjanesið um páskana,
þannig að við munum ferðast
um heimaslóðirnar
- Hvernig pákskaegg færðu þér?
Ég fæ ekkert pásaegg - en mér lýst
best á karmellueggin frá Nóa-sirius
- Hvað er í páskamatinn,
einhverjar hefðir þar?
Við höfum alltaf kalkún á
stórhátíðum á mínu heimili,
kalkúnninn er eldaður sérstaklega
á ameríska vísu. Um þessa páska
eru við að brjóta þessa hefð og
ætlum að hafa ekta páskalamb.
- Eru páskaeggin falin
á þínu heimili?
Alltaf páskaeggjaleit á mínu
heimili á páskadagsmorgun.
Inga Sigrún Atladóttir
bæjarfulltrúi í Vogum
Guðjónína
Sæmundsdóttir
forstöðumaður
miðstöðVar símenntunar
Páskar
á Center
Miðvikudagur:
Joey D sem hefur verið að túra um
landið að undanförnu en byrjar
páskana á Center. Frítt inn.
Föstudagur:
Skítamórall ásamt plötusnúðum.
Þess má getið að Skímó hefur
ekki spilað í Keflavík í mörg
ár. Forsala í Gallerí Keflavík.
Sunnudagur:
ÚLFUR ÚLFUR/ Óli Geir/
Meistrím. Það þarf ekki að segja
meira um þetta frábæra band
sem er að gera allt vitlaust á klak-
anum. Forsala í Gallerí Keflavík.