Víkurfréttir - 04.04.2012, Side 11
11VÍKURFRÉTTIR • MIÐVIKUdagUrInn 4. aPrÍL 2012
Það var vinavika í vinnunni hjá mér um daginn. Yndisleg vika í alla staði
og einkar vel til fundið að gleðja aðra og upplifa sjálfur þá gleði að fá eitt-
hvað „óvænt“ á hverjum degi. Settar voru reglur um
peningaútlát og frekar hvatt til að ímyndunaraflið
og sköpunargleðin fengju að blómstra. Ég var hugsi
eftir þessa viku – hugsi um það hvort við getum ekki
sýnt hvort öðru meiri kærleika í hversdagsleikanum.
Við lifum á tímum mikils hraða og breytinga, gefum
okkur ekki eins mikinn tíma og við vildum til að sinna
hlutum sem eru okkur kærir því við ætlum að gefa
okkur tíma í það seinna. Gæti verið að einstaklings-
og sældarhyggjan eigi þátt í þessari þróun þar sem
lífsbreytni okkar miðast við að öðlast það sem veitir
okkur sælu og ánægju þá stundina og gleymum þar með að veita athygli
því sem við höfum.
Sem betur fer upplifum við flest kærleika á einn eða annan hátt einhvern tímann
á lífsleiðinni en spurning um hvort við þyrftum stundum að leggja meira á okkur
í dag en hér áður fyrr til að viðhalda kærleikanum, þar sem lífsstíll okkar er
annar? Það er ekki ólíklegt að við gætum fallið í það mynstur að vilja að kær-
leikurinn væri í takt við annað í lífinu í dag, þ.e. auðfenginn, auðmeltur, veiti
ómælda gleði og sýni á áþreifanlegan hátt að hann borgi sig! Kannski höfum
við einmitt sofnað á verðinum þarna því kærleikurinn er eilífðarverkefni í skóla
lífsins, inniheldur bæði gleði og sorg, þægilega jafnt sem óþægilega hluti og
getur verið langt frá því að vera áþreifanlegur.
Þegar fólk er gefið saman í hjónaband er oft lesinn textinn Kærleikurinn mestur
sem er að finna í I. Korintubréfi nýja testamentsins og ritað af Páli postula 56-
57 e.k. Páll, sem ritaði bréfin til íbúa Korintuborgar, stóð frammi fyrir mörgum
vandamálum og má þar nefna flokkadrætti, menntahroka, siðferðilega lausung,
óþarfa málaferli, upplausn í hjónaböndum o.fl. Í bréfinu er m.a. fjallað um að
gjöf sem er gefin án kærleika er einskis virði og betra að sleppa henni. Þar
kemur líka fram að sá sem býr yfir kærleika sýnir þolinmæði og skapfestu í
umgengni við aðra og sá sem er knúinn áfram af kærleika í verki er góður
maður. Lestirnir að öfunda, hreykja sér og vera raupsamur eiga ekkert sam-
eiginlegt með kærleika að mati Páls og kærleikurinn leggur sig ekki fram við að
benda á það sem er rangt en samgleðst sannleikanum sem leiðir af sér réttvísi.
Kærleikurinn lætur ekki reita sig til reiði og er ekki langminnugur á misgerðir
manna.
Páll leggur áherslu á að kærleikurinn sé undirstaða alls í heiminum og breytist
ekki þó breytingar eigi sé stað. Páll bendir á að þegar öllu er á botninn hvolft
er kærleikurinn einn fullkominn og allt annað megi sín lítils í samanburði við
hann. „En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn
mestur“. grundvöllur kærleikans eru trú og von, þ.e. að til þess að hafa von
verður að hafa trú og til þess að hafa kærleika verða trú og von að vera til
staðar.
Sé textinn heimfærður upp á samtímann þá er óhætt að segja að mikilvægi
kærleikans á engu að síður við á okkar dögum. Það sem er þó ólíkt með nú-
tímanum er að maðurinn tengir kærleikann ekki endilega við kristna trú heldur
hugsar gjarnan um hann sem óáþreifanlegt afl sem býr innra með okkur öllum
burtséð frá trúar- og lífsskoðunum. En það sem boðskapurinn segir okkur
kannski öðru fremur að til þess að geta sýnt kærleika í hugsun og verki verðum
við að byrja á sjálfum okkur en ekki að reyna að breyta öðrum til að sjá svo
hvort þeir séu þess virði að elska. Kærleikann er ekki hægt að kaupa eða haga
eftir eigin geðþótta heldur er um að ræða afleiðingar af hugsunum okkar og
atferli. Lífi okkar er best lifað með því að þroskast áfram sem einstaklingar þar
sem kærleikurinn er alltaf hafður að leiðarljósi. Hér er ekki eingöngu verið að
tala um huglægan kærleika heldur verið að vísa í kærleika sem birtist í hugsun,
orði og verki sérhvers manns, en sá kærleikur spyr ekki um eigin hag og vilja,
heldur þarfir náungans.
Það er ekki efi í mínum huga að við hefðum svo sannarlega gott af því að
auka kærleikann í okkar samfélagi. Það er von mín að við vöknum enn frekar
til vitundar um að það er svo margt sem skiptir meira máli en það sem er
mælanlegt í tíma, peningum, útliti, stöðu o.s.frv. Við getum svo auðveldlega
sýnt meiri kærleika í verki með því að gera hluti sem gleðja aðra án þess að
ætlast til að fá neitt í staðinn og henda út frösum eins og „ég geri ekki neitt
fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn“. Það er svo margt sem skiptir máli
í þessu lífi sem er utan þess mælanlega og því megum við ekki gleyma. Verði
flest í okkar heimi metið út frá peninga- og markaðsöflum og aðrar hugsjónir
álitnar óraunsæjar og í versta falli barnalegar, þá verða hugsjónir almennt ekki
hátt metnar hjá komandi kynslóðum. Er nokkuð viss um að enginn mundi vilja
upplifa slíka „fátækt“.
Kæru vinir – eigið gleðilega og kærleiksríka páska!
Þangað til næst - gangi þér vel
Anna Lóa
Kærleikurinn mestur!
n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000
Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222
VERKEFNASTYRKIR
Auglýst er eftir styrkumsóknum vegna menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á
grunni samnings sveitarfélaga á Suðurnesjum og mennta- og menningarmálaráðuneytis og
Iðnaðarráðuneytis.
Menningarráð hefur ákveðið að þeir aðilar hafi forgang sem uppfylla
eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
og erlendra ferðamanna.
STOFN- OG REKSTRARSTYRKIR
Menningarráð hefur ákveðið að þeir aðilar hafi forgang sem uppfylla
eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 20. apríl.
Frekari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir, verkefnastjóri sími 420-3288 / bjork@heklan.is
Umsóknum skal skilað í 7 eintökum á skrifstofu Heklunnar – atvinnuþróunarfélags,
Grænásbraut 506, 235 Reykjanesbæ eða á netfangið menning@heklan.is
MENNINGARRÁÐ SUÐURNESJA
AUGLÝSIR EFTIR STYRKUMSÓKNUM
AUGLÝSING
DEILISKIPULAG
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi,
Vogar – Iðndalur, Sveitarfélaginu Vogum.
Með vísan til ákvæða 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Sveitar-
félagsins Voga þann 28. mars, 2012 samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi,
Vogar – Iðndalur, Sveitarfélaginu Vogum.
Breytingin afmarkast af reit sem tekur til allra lóða við Iðndal og einnar lóðar við Stapaveg,
norðan Iðndals. Breyting er gerð á grein 3.0 Almennt í sérákvæðum skipulags og byggingar-
skilmála. Nýtingarhlutfalli er breytt úr 0,3 í 0,4.
Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 13.03.2012 og vísast til hennar um
nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með
mánudeginum 2. apríl nk. til og með mánudagsins 14. maí 2012. Tillagan er einnig aðgengi-
leg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er genn kostur á að gera athugasemdir við
breytingartillöguna. Skila skal skriegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga,
Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en mánudaginn 14. maí 2012. Hver sá sem ekki gerir athuga-
semdir við breytingartillöguna innan tilskilins frests telst samþykkur henni.
Vogum, 29. mars 2012.
F.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Háaleitisskóli á Ásbrú í Reykjanesbæ hélt sína árlegu árshátíð í síðustu
viku. Nemendur skólans settu á svið ýmis skemmtiatriði. Meðal annars var
sviðsett nýstárleg útgáfa af sögunni um Karíus og Baktus. Fleiri myndir frá
árshátíðinni verða á vef Víkurfrétta um páskana.