Víkurfréttir - 03.05.2012, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Heilinn okkar mótast af umhverfi sínu og þá fyrst og fremst af næringarefnum sem
næra hann á hverjum degi. Heil-
inn þarf næringu til þess að við-
halda hámarks virkni og til þess að
fyrirbyggja ótímabæra hrörnun.
Heilinn mótast og þrífst einnig á
andlegri og tilfinningalegri örvun,
námi og nýjum verkefnum. Rann-
sóknir hafa sýnt að líkamsrækt
bætir blóðflæði til heilans og eykur andlega virkni.
Jákvætt viðhorf til lífsins dregur úr áhrifum streitu
og hefur því góð áhrif á starfssemi heilans.
Nær öll næringarefni eru heilanum nauðsynleg en
einna mest eru omega-3 fitusýrur úr fiski/lýsi sem
auðvelda frumum heilans að koma áfram mikil-
vægum taugaboðefnum til þess að halda frumum
lifandi og fullum af lífsþrótti. Einnig hafa omega-3
fitusýrur reynst efla orku heilans, minni og nám. Í
fæðunni eru ýmis næringarefni sem eru talin sér-
staklega góð fyrir heilann eins og bláber, spínat,
feitur fiskur, hnetur og grænt te. Rannsóknir hafa
sýnt að andoxunarefni eins og C vítamín, E vít-
amín og Q10 eru heilanum mikilvæg og geta hægt á
hrörnun heilans. Efnið fosfólíserín og B vítamín eru
talin gagnast vel gegn minnistapi. Þó nokkrar jurtir
eru notaðar til þess að bæta virkni, auka blóðflæði til
heilans og framleiðslu taugaboðefna en þar má helst
nefna gingko biloba, burnirót, ginseng og ætihvönn.
Við höfum sjálf í hendi okkar að velja fjölbreytta og
næringarríka fæðu til þess að varðveita og efla heilsu
og virkni heilans.
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
Heilafóður
www.facebook.com/grasalaeknir.is
Mér hefur áður verið tíðrætt um staðalmyndir og alhæfingar í þessum
pistlum mínum þar sem ég hef verið að velta því upp hvort við komum
misjafnlega fram við fólk og látum þá útlit, stöðu,
þjóðerni ofl. ákveða þá framkomu. Þetta byrjar strax
þegar við erum börn en sem móðir tveggja drengja
sem voru mjög stórir miðað við aldur þá var upplifun
mín sú að þegar þeir voru börn voru mun frekar
gerðar kröfur til þeirra vegna líkamlegs atgervis en
þess andlega. Setningar eins og ,,þú svona stór
strákur ættir að vita betur“ er sagt við þann stóra
og minni kröfur til félagans sem er lágvaxnari. Ég
þurfti sjálf að minna mig á þetta sem grunnskóla-
kennari - þeir sem eru bráðþroska líkamlega eru
það ekki endilega andlega og því fráleitt að gera aðrar kröfur til þeirra en
jafnaldranna.
Vinur minn sem ekur um á mótorhjóli, íklæddur leðurdressi hefur lýst því
hvernig konur og ung börn hörfi undan þegar hann labbar um í stórmarkaði að
leita að bleyjum handa barnabarninu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ,,fallegt“
fólk fái betri þjónustu en aðrir (hvernig svo sem fegurð er mæld) og komið sé
öðruvísi fram við ljóshærðar konur en dökkhærðar. Ég hafði sjálf ákveðnar skoð-
anir á húðflúri því það voru jú ,,ákveðnar“ týpur sem fengu sér slíkt. Þegar synir
mínir voru orðnar þessar ákveðnu týpur þurfti ég að viðurkenna eigin fordóma
og bæta við á tékk listann minn ,,allt í lagi með tattóverað fólk“.
Ég og vinkona mín áttum gott spjall um þetta einn daginn ekki alls fyrir löngu
og þá sagði hún mér þessa stór skemmtilegu sögu af bíóferð þeirra hjóna. Ég
fékk leyfi hennar til að deila sögunni með ykkur, enda ætti góð saga aldrei að
fara til spillis.
Ég og maðurinn minn fórum í bíó að sjá íslensku myndina, Svartur á leik. Mað-
urinn minn er stór vexti, krúnurakaður, gengur gjarnan í svörtum leðurjakka,
ekur um á BMW og er með tattú. Hvað sem útlit og farartæki varðar þá er Stóri
(kallaður það í þessum pistli enda er ég undir áhrifum Carrie Bradshaw og
Mr.Big) allra manna ljúfastur, yndislegur sonur, faðir og eiginmaður og mundi
aldrei gera flugu mein.
Við mættum á síðustu stundu í bíó og þurftum að skáskjóta okkur inn á milli
bíógesta til að troða okkur í einu lausu sætin. Stóri á erfitt með að passa í
bíósætin og því betra að hafa laust sæti við hliðina en slíkt var ekki í boði þarna.
Hann tróð sér ofan í sætið en við hlið hans sat kona komin vel yfir miðjan aldur
og við hlið hennar tvær á svipuðum aldri. Stóri var varla sestur þegar hann stóð
upp aftur - kæmist örugglega betur fyrir í sætinu ef hann færi úr jakkanum.
Hann fer úr þunga leðurjakkanum og þreknir tattóveruðu handleggirnir litu
dagsins ljós. Það var þá sem ég sé konurnar í næstu sætum við hann horfa
opin-mynntar á handleggina og ég var ekki frá því að það vottaði fyrir hræðslu-
glampa í augunum. ,,Eru þær hræddar við hann Stóra MINN, þennan ljúfling“
hugsaði ég en beindi svo athyglinni að bíótjaldinu og kom mér þægilega fyrir í
sætinu með olnboga Stóra í kjöltu minni. Myndin byrjaði og ekki laust við að ég
skellti upp úr þegar aðalskúrkurinn í myndinni, Tóti (leikinn af Jóhannesi Hauki)
birtist á skjánum. Fyrir ykkur sem hafið ekki séð myndina þá er þetta lýsingin á
Tóta: stór vexti, krúnurakaður, gengur upp í svörtum leðurjakka, á BMW og er
með tattú! Mér leið á augabragði eins og ég væri stödd á Gladiator og Russel
Crow sæti við hliðina á mér. Tóti og Stóri hefðu geta verið bræður, eða allavega
bestu vinir. Voru konurnar að lifa sig helst til of mikið inn í myndina!
Stóri hlær hátt og kannski ekki alltaf á sama stað og aðrir. Var það ímyndun í
mér eða horfðu konurnar á hann í hvert skipti sem það kom út úr honum hlátur-
gusa? Þegar kom að hléi þurftum við nauðsynlega að standa upp því annars
hefði sætið gróið fast við mjöðmina á Stóra með tilheyrandi veseni. Þegar Stóri
geri sig líklegan til að ,,smeygja“ sér framhjá konunni í næsta sæti, hrekkur hún
við og grípur um hnén á sér.....komin í fósturstellinguna á augabragði, þannig
að hann ekki svo mikið sem straukst við hnéskeljarnar á henni. Þvílíkur liðleiki,
hugsaði ég, vona að aumingja konan festist ekki svona!
Þegar myndin var búin gengum við á eftir konunum út á bílastæðið, þær fóru inn
í krúttlega laxableika Yarisinn á meðan við stigum inn í bílinn okkar. Já svarta
540 BMW-inn, með svörtum filmum í gluggum. ,,Stóri, gerir þú þér grein fyrir
að konurnar eru hræddar við þig, ég get svo svarið það“. Hann leit á mig með
sínum stóru saklausu augum: hræddar við mig - hvaða vitleysa! Ræsti bílinn og
400 hestöflin sviku ekki frekar en fyrri daginn (hann gaf honum kannski aðeins
meira inn en vanalega). Konurnar á Yarisnum horfðu í áttina til okkar, augun á
stilkum, stigu síðan bensínið í botn og létu sig hverfa eins hratt og þær komust
(engin ofsaakstur þar á ferð enda bíllinn ekki hlaðinn aukabúnaði!).
Stóri og frú keyrðu alsæl heim, ánægð með hvort annað og bíóferðina sem var
bæði skemmtileg afþreying en ekkert síður góð áminning. Maðurinn kemur í
alls kyns pakkningum og þrátt fyrir mismunandi smekk á umbúðum hlýtur það
alltaf að vera innihaldið sem skiptir máli.
Þangað til næst - gangi þér vel!
Anna Lóa
Stóri á leik!
Freyr Brynjarsson getur ekki með góðri samvisku sagt að hann sé duglegur í eldhúsinu. Hann er
mikið á æfingum um kvöldmatarleytið en hann æfir
handbolta með Haukum. „Það hefur ekki mikið
reynt á hæfileika mína og dugnað í eldhúsinu ennþá,
kannski þegar ég legg handboltaskóna á hilluna,
hver veit,“ segir Freyr léttur í bragði. Freyr er til-
tölulega nýfluttur heim í Njarðvíkina eftir að hafa
alið manninn aðallega í Kópavogi. „Ég flutti í bæinn
þegar ég var 5 ára og rataði ekki til baka fyrr en árið
2007 en ég var alltaf með annan fótinn hér fyrir
sunnan þegar ég var ungur þar sem föðurfjölskyldan
átti heima hér og svo átti ég góða vini hér í Njarðvík.“
Freyr vinnur í Akurskóla í Innri-Njarðvík og kennir
þar öllum bekkjum íþróttir. Hann hefur undanfarin
ár spilað handbolta með Haukum og segir það hafa
verið frábæran tíma. „Það er mitt aðaláhugamál en
nú fer að líða að því að ég leggi skóna á hilluna og
því þarf ég að fara að finna mér nýtt áhugamál sem
tekur kannski ekki svona svakalega mikinn tíma frá
fjölskyldunni og eldamennskunni.“
„Þegar ég elda þá er það yfirleitt eitthvað fljótlegt og
auðvelt. Spælt egg, pylsur, pitsur í pítsuofninum góða
eða pönnusteiktur fiskbúðingur er hvað vinsælast
þegar ég dett í eldamennskuna. En ég er aftur á móti
yfirkokkur á sumrin og grilla mikið á því tímabili.
Það er ýmislegt í uppáhaldi hér á bæ og uppáhaldið
hjá strákunum mínum er Gordon Blue og bjúgur en
rétturinn sem hefur heppnast vel og er rosalega góður
er réttur sem heitir Kjúklinga Lasagne.“
Hefurðu gaman af því að dunda þér í eldhúsinu?
„Það er ágætt að dunda sér þar en eins og er þá hef ég
ekki gefið mér mikinn tíma í það en eins og fyrr segir
þá er minn tími á sumrin við grillið góða.“
Freyr ætlar að deila einni af sínum frægu uppskriftum
en fyrir valinu varð kjúklinga Fajitas lasagne.
„Sagan á bak við þetta kjúklinga Fajitas lasagne er
bara sú að konunni minni datt þetta í hug. Hún á
hugmyndina að þessu alveg skuldlaust,“ segir Freyr
hreinskilinn.
Uppskriftin:
Hráefni:
Fajitas kökur
6 kjúklingabringur
1 stór laukur
2 rauðar paprikur
2-3 krukkur af salsa sósu
1/2 l matreiðslurjómi
Rifinn ostur
Skera kjúklinginn í bita og steikja. Þegar það er búið
er laukurinn og paprikan sett á pönnuna með kjúk-
lingnum og það látið malla með.
Hella salsasósu á pönnuna ásamt rjóma og láta malla í
smá stund. Þetta svo sett í eldfast mót, fyrst eru settar
fajitas kökurnar í botninn og svo helmingurinn af því
sem er á pönnunni yfir fajitas kökurnar, svo eru settar
aftur fajitas kökur yfir og restin af því sem er á pönn-
unni er sett ofan á það. Í lokin er svo settur rifinn ostur
yfir allt. Þetta er svo sett inn í ofn í 180 gráður í ca. 30
mín.
Meðlæti:
Salat, Dorritos flögur og sýrður rjómi.
Gott er að mylja Dorritos fögurnar yfir réttinn þegar
hann er kominn á diskinn.
Verði ykkur að góðu.
›› Í ELDHÚSINU
Þarf að leggja skóna á hilluna
til þess að verða betri kokkur
Daglegar fréttir - vf.is