Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2012, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 03.05.2012, Blaðsíða 23
23VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Ábyrgðarsvið • Sala og þjónusta við viðskiptavini • Vöruframsetning Hæfniskröfur • Starfsreynsla úr blómaverslun skilyrði • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð • Sköpunarkraftur • Samskiptahæfni Umsóknir berist fyrir 10. mai n.k. til Guðrúnar Kristinsdóttur gudrunk@husa.is Húsasmiðjan Holtagörðum, 104 Reykjavík Öllum umsóknum verður svarað. Húsasmiðjan leitar að metnaðarfullum og þjónustulunduðum starfskrafti í stöðu blómaskreytis í verslun Blómavals í Reykjanesbæ Metnaður Þjónustulund Sérþekking Húsasmiðjan leggur metnað sinn í að veita fyrsta flokks þjónustu og hafa gott aðgengi að vörum sínum og starfsfólki. Það sem einkennir starfsmenn Húsasmiðjunnar eru eftirfarandi gildi: hluti af Bygma Allt frá grunni Að góðu heimili síðAn 1956 Komnir: Alex F. Hilmarsson frá Sindra Björn Berg Bryde frá FH Gavin Morrison frá Inverness Jordan Edridge frá New Mills Loic Mbang Ondo úr láni Marko V. Stefánsson úr láni Pape Mamadou Faye frá Leikni R. Tomi Ameobi frá BÍ/Bolungarvík Farnir: Haukur Ingi Guðnason í Fylki Jamie McCunnie Jóhann Helgason í KA Orri Freyr Hjaltalín í Þór Robbie Winters Yacine Si Salem Ef menn gera það sem Guðjón segir verður ekkert basl -segir Óskar Pétursson, markvörður Grindvíkinga Grindvíkingar réðu Guðjón Þórðarson ti l starfa en Ólafur Örn Bjarnason sem þjálfaði liðið í fyrra hyggst nú einungis spila með liðinu. Grindvíkingar hafa verið duglegir að fá til sín erlenda leikmenn og ef þeir Pape Mamadou Faye og Tomi Ameobi ná sér á strik í framlínunni þá er liðið til alls líklegt. Pape hefur verið að glíma við meiðsli undanfarið eins og fleiri leikmenn Grindavíkur. Þeir Jósef Kristinn Jósefsson og Hafþór Ægir Vilhjálmsson eru að finna sig eftir meiðsli og þeir gætu reynst mikilvægir í sóknarleik liðsins. Lykilmenn Grindavíkur verða Óskar markvörður sem átt i skínandi gott tímabil í fyrra, Scott Ramsey er alltaf lykilmaður, hvar sem hann er að spilar, þegar hann er í formi þá er hann einn af leiknari og mest skapandi leikmönnum deildarinnar. Framherjarnir verða að skora mörk og því mun mæða á þeim Tomi Ameobi og Pape eins og áður segir. Eins er Magnús Björgvinsson sprækur í sókninni og hafa Grindvíkingar ekki verið svona vel mannaðir í sókninni í langan tíma. Alexander Magnússon mun sennilega leika á miðjunni í sumar en hann var sennilega bestur Grindvíkinga á síðasta tímabili. Það verður forvitnilegt að fylgjast með honum í sumar. Auk þessara leikmanna eru nokkrir sem gætu átt gott sumar í vændum og ómögulegt að segja til um hvað nýir leikmenn muni láta ljós sitt skína. Óskar Pétursson var gríðarlega mikilvægur fyrir Grindvíkinga í fyrra og var m.a. fyrirliði liðsins seinni hluta móts. Hann býst við því að Ólafur Örn Bjarnason muni bera bandið góða á þessu tímabili. „Við náum mjög vel saman ég og Óli og Guðjón þjálfari hefur yfirleitt valið reynslubolta til að gegna þessu hlutverki,“ sagði Óskar í samtali við Víkurfréttir. En hvernig leggst sumarið í Óskar? „Maður er spenntur og gerir sér varla grein fyrir því hvað það er stutt í mótið. Það eru gríðarlegar mannabreytingar hjá okkur í ár og mikið af ungum leikmönnum sem eru að koma inn í liðið. Það er flott stemning í hópnum og ég held að menn séu mjög tilbúnir að takast á við þetta verkefni.“ Hvernig eru þessir nýju leikmenn að koma inn í liðið? „Tomi Ameobi er mjög góður og svo hefur Pape verið að standa sig mjög vel en hefur verið að glíma við einhver meiðsli. Ég hef þó ekki trú á öðru en að hann verði með okkur á fullu í sumar,“ segir Óskar en svo eru að koma sterkir menn úr meiðslum. Bæði Jósef Kristinn og Hafþór hafa verið meiddir töluvert og Óskar segir það sterkt að fá þessa menn til baka. „Jósef er að koma aftur inn og Hafþór er kominn á ról eftir áralöng meiðsli og það verður gríðarlega gaman að fá þá til baka og flottur liðsstyrkur. Þetta getur bara orðið gríðarlega skemmtilegt sumar. Þetta fer mikið eftir því hvernig við byrjum mótið en við höfum allir bullandi trú á þessu.“ Er Guðjón að koma með nýjar áherslur í liðið? „Hann er öðruvísi þjálfari en ég hef haft áður og ég hef persónulega haft það mjög gott undir hans stjórn. Hann er mjög vel liðinn hérna.“ Óskar segir Guðjón leggja ákveðna áherslu á skipulag og að leikmenn uppfylli sín hlutverk. „Ef allir gera það sem Guðjón vill og leggur upp með þá eigum við ekki að vera í neinu basli. Ég er ekki frá því að þetta sé meira eins og hjá atvinnumannaliðunum. Við höfum lagt meira á okkur nú í vetur en áður hefur tíðkast. Þjálfarinn vill að menn taki þessu alvarlega og er alls ekki sáttur ef menn eru að slá slöku við.“ Óskar segir að Grindvíkingar vonist til þess að koma sjálfum sér á óvart og spila vel en ekki sé búið að gefa út einhver ákveðin markmið. Pepsi-deildin hefst á sunnudag en þá munu bæði liðin leika á útivelli. Keflvíkingar heimsækja Fylkismenn í fyrstu umferð. Grindvíkingar byrja gegn FH-ingum í Hafnarfirði og síðan er grannaslagur af bestu gerð í annarri umferð. Þá mætast Grindvíkingar og Keflvíkingar í Grindavík. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 10 maí. Við höfum lagt meira á okkur nú í vetur en áður hefur tíðkast. Þjálfarinn vill að menn taki þessu alvarlega og er alls ekki sáttur ef menn eru að slá slöku við.“

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.