Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.05.2012, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 03.05.2012, Blaðsíða 19
19VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000 Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222 LAGERSALA MÚRBÚÐARINNAR Flísar & Parket Hreinlætistæki Ýmsar vörur Útlitsgallaðar vörur Fyrstur kemur fyrstur fær MIKIL verðlækkun! – Aðeins ein vika FUGLAVÍK 18 í Reykjnesbæ Frá fimmtudeginum 3. maí - 9. maí – Opið kl. 13-18 mánud.- föstud. OPIÐ LAUGARDAG 5. MAÍ KL. 10-14 ÚTBOÐ Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili við Nesvelli í Reykjanesbæ. Verkið felur í sér uppgröft fyrir húsi og fyllingu undir undirstöður. Áætlað magn uppgraftrar er um 5.500 m3 og fyllingar er um 6.000 m3. Uppgreftri og fyllingu fyrir undirstöður skal lokið eigi síðar en 15. júní 2012. Útboðsgögn verða afhend þeim er þess óska á skrifstofu Tækniþjónustu SÁ ehf að Hafnargötu 60, Reykjanesbæ. Gögn verða seld á kr. 10.000 kr. frá og með 2. maí 2012. Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Nesvalla að Njarðarvöllum 4, í Reykjanesbæ fyrir kl. 14:00 föstudaginn 11. maí 2012 og verða tilboð opnuð þar á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. KYNNING Í LYFJUM & HEILSU KEFLAVÍK Á BURT´S BEES OG SKIN DOCTORS 4.MAÍ FRÁ KL.14 -18 20% AFSLÁTTUR Á MEÐAN Á KYNNINGU STENDUR Karlakór Keflavíkur heldur stórtónleika í Stapanum mánudaginn 7. maí og fimmtu- daginn 10. maí. Á tónleikunum verður boðið upp á söngleikjalög úr West Side Story og My Fair Lady, tónlist eftrir Irving Berlin og Leonard Bernstein. Þá mun kórin syngja nokkra kóra úr óperuverkum svo sem Hermanna- kórinn úr Faust, Pílagrímakórinn úr Tannhäuser, Veiðmannakórinn og Steðjakórinn. Einnig mun kórinn flytja „brot af því besta“ frá samstarfi kórsins og Guðlaugs Viktorssonar. Má þar nefna lög eftir Bellman, Hildigunni Rúnarsdóttur, Oddgeir Kristjáns- son, Ólaf Gauk, Bjarna J. Gíslason, Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson og Magnús Kjartansson. Kórinn kveður nú Guðlaug Vikt- orsson stjórnanda sinn til 8 ára en Guðlaugur heldur til framhalds- náms erlendis. Kórinn hefur fengið til liðs við sig tvo frábæra einsöngvara. Það eru Einar Clausen og Þórdís Borgar- sdóttir. Undirleikari á tónleikunum verður Jónas Þórir. Guðlaugur Viktorsson hefur verið stjórnandi Karlakórs Keflavíkur í átta ár. Hann ákvað að koma til Keflavíkur á sínum tíma því hann vissi að kórinn státaði af fornri frægð og þá hafi Karlakór Kefla- víkur verið eitt af flaggskipum karlakóra á Íslandi. „Það var því spennandi að koma hingað og sjá hvað ég gæti gert með þennan hóp,“ segir Guðlaugur í samtali við Víkurfréttir. Guðlaugur er með fjóra kóra á sínum snærum og hefur m.a. lengi verið stjórnandi bæði Lögreglukórsins og Karlakórs Reykjavíkur. Honum þótti spenn- andi að fara út fyrir borgarmörkin og Keflavík varð fyrir valinu. Aðspurður um efniviðinn sem hann hefur haft úr að moða, segir Guðlaugur að kórinn hafi verið fámennur þegar hann kom þar fyrst til starfa. Hann er hins vegar ánægður með að fljótlega tókst að fjölga kórmeðlimum og þegar Karlakór Keflavíkur gaf út popp- plötuna sína hafi kórinn náð nýjum hæðum og þá var fjöldi yngri manna tilbúnir að taka þátt í því verkefni. Guðlaugur segir að í dag séu þeir sem syngja í kórum svolítið að velja sér verkefni en áður fyrr voru kór- félagar tryggari sínum kór og tóku þátt í öllum verkefnum. Framboð af afþreyingu sé hins vegar mikið í dag og ekkert við þessu að gera, nema jú að bjóða upp á skemmtileg verkefni að taka þátt í. - Hvernig gengur starfið fyrir sig yfir veturinn? „Þetta er frekar hefðbundið. Við æfum tvisvar í viku. Við gerðum til- raun í vetur með að æfa einu sinni í viku og hafa þá lengri æfingar. Þetta var gert til að laða að yngri menn. Það er hins vegar árangurríkara fyrir áhugamannakór, þar sem karlar koma saman til að syngja, að æfa oftar. Við höfum prófað þetta í vetur og komist að þessari niður- stöðu“. - Það er eilíf barátta að fá yngri menn í kórinn. Hvernig vita menn svo hvort þeir geta sungið? „Það geta allir sungið, bara misvel. Þetta er bara spurning um hvort menn hafi gaman af að syngja eða taka þátt í tónlist og vera í svona félagskap“. Kveðja stjórnandann með stórtónleikum í Stapa ›› Karlakór Keflavíkur: Guðlaugur Viktorsson stjórnar Karlakór Keflavíkur á æfingu í vikunni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.