Víkurfréttir - 03.05.2012, Page 19
19VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012
n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000
Fréttavakt allan sólarhringinn í síma 898 2222
LAGERSALA
MÚRBÚÐARINNAR
Flísar & Parket
Hreinlætistæki
Ýmsar vörur
Útlitsgallaðar vörur
Fyrstur kemur fyrstur fær MIKIL verðlækkun! – Aðeins ein vika
FUGLAVÍK 18
í Reykjnesbæ
Frá fimmtudeginum 3. maí - 9. maí – Opið kl. 13-18 mánud.- föstud.
OPIÐ
LAUGARDAG
5. MAÍ
KL. 10-14
ÚTBOÐ
Reykjanesbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili
við Nesvelli í Reykjanesbæ.
Verkið felur í sér uppgröft fyrir húsi og fyllingu undir undirstöður. Áætlað magn
uppgraftrar er um 5.500 m3 og fyllingar er um 6.000 m3.
Uppgreftri og fyllingu fyrir undirstöður skal lokið eigi síðar en 15. júní 2012.
Útboðsgögn verða afhend þeim er þess óska á skrifstofu Tækniþjónustu SÁ ehf að
Hafnargötu 60, Reykjanesbæ. Gögn verða seld á kr. 10.000 kr. frá og með 2. maí 2012.
Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Nesvalla að Njarðarvöllum 4, í Reykjanesbæ fyrir
kl. 14:00 föstudaginn 11. maí 2012 og verða tilboð opnuð þar á sama tíma að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
KYNNING Í LYFJUM & HEILSU KEFLAVÍK
Á BURT´S BEES OG SKIN DOCTORS
4.MAÍ FRÁ KL.14 -18
20% AFSLÁTTUR Á MEÐAN Á KYNNINGU STENDUR
Karlakór Keflavíkur heldur stórtónleika í Stapanum
mánudaginn 7. maí og fimmtu-
daginn 10. maí.
Á tónleikunum verður boðið upp á
söngleikjalög úr West Side Story og
My Fair Lady, tónlist eftrir Irving
Berlin og Leonard Bernstein. Þá
mun kórin syngja nokkra kóra úr
óperuverkum svo sem Hermanna-
kórinn úr Faust, Pílagrímakórinn
úr Tannhäuser, Veiðmannakórinn
og Steðjakórinn.
Einnig mun kórinn flytja „brot af
því besta“ frá samstarfi kórsins og
Guðlaugs Viktorssonar. Má þar
nefna lög eftir Bellman, Hildigunni
Rúnarsdóttur, Oddgeir Kristjáns-
son, Ólaf Gauk, Bjarna J. Gíslason,
Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson
og Magnús Kjartansson.
Kórinn kveður nú Guðlaug Vikt-
orsson stjórnanda sinn til 8 ára en
Guðlaugur heldur til framhalds-
náms erlendis.
Kórinn hefur fengið til liðs við sig
tvo frábæra einsöngvara. Það eru
Einar Clausen og Þórdís Borgar-
sdóttir.
Undirleikari á tónleikunum verður
Jónas Þórir.
Guðlaugur Viktorsson hefur verið
stjórnandi Karlakórs Keflavíkur
í átta ár. Hann ákvað að koma til
Keflavíkur á sínum tíma því hann
vissi að kórinn státaði af fornri
frægð og þá hafi Karlakór Kefla-
víkur verið eitt af flaggskipum
karlakóra á Íslandi. „Það var því
spennandi að koma hingað og sjá
hvað ég gæti gert með þennan
hóp,“ segir Guðlaugur í samtali
við Víkurfréttir. Guðlaugur er með
fjóra kóra á sínum snærum og
hefur m.a. lengi verið stjórnandi
bæði Lögreglukórsins og Karlakórs
Reykjavíkur. Honum þótti spenn-
andi að fara út fyrir borgarmörkin
og Keflavík varð fyrir valinu.
Aðspurður um efniviðinn sem
hann hefur haft úr að moða, segir
Guðlaugur að kórinn hafi verið
fámennur þegar hann kom þar
fyrst til starfa. Hann er hins vegar
ánægður með að fljótlega tókst
að fjölga kórmeðlimum og þegar
Karlakór Keflavíkur gaf út popp-
plötuna sína hafi kórinn náð nýjum
hæðum og þá var fjöldi yngri manna
tilbúnir að taka þátt í því verkefni.
Guðlaugur segir að í dag séu þeir
sem syngja í kórum svolítið að velja
sér verkefni en áður fyrr voru kór-
félagar tryggari sínum kór og tóku
þátt í öllum verkefnum. Framboð
af afþreyingu sé hins vegar mikið
í dag og ekkert við þessu að gera,
nema jú að bjóða upp á skemmtileg
verkefni að taka þátt í.
- Hvernig gengur starfið fyrir sig
yfir veturinn?
„Þetta er frekar hefðbundið. Við
æfum tvisvar í viku. Við gerðum til-
raun í vetur með að æfa einu sinni í
viku og hafa þá lengri æfingar. Þetta
var gert til að laða að yngri menn.
Það er hins vegar árangurríkara
fyrir áhugamannakór, þar sem
karlar koma saman til að syngja, að
æfa oftar. Við höfum prófað þetta í
vetur og komist að þessari niður-
stöðu“.
- Það er eilíf barátta að fá yngri
menn í kórinn. Hvernig vita menn
svo hvort þeir geta sungið?
„Það geta allir sungið, bara misvel.
Þetta er bara spurning um hvort
menn hafi gaman af að syngja eða
taka þátt í tónlist og vera í svona
félagskap“.
Kveðja stjórnandann með
stórtónleikum í Stapa
›› Karlakór Keflavíkur:
Guðlaugur Viktorsson stjórnar Karlakór Keflavíkur á æfingu í vikunni.