Víkurfréttir - 03.05.2012, Side 16
16 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ,
s. 420 3330, www.benni.is
Gerðu góð kaup
á notuðum bíl frá Bílabúð Benna
Chevrolet captive LT
7 manna, leður/lúga. Skráningardagur
1.2008. Sjálfskiptur ekinn 132.000
Verð 3.090.000-
VW Toureg V6
Skráningardagur 1.2004
Sjálfskiptur ekinn 135.000
Tilboð 1.990.000-
Toyota Aygo
Skráningardagur 2.2007
Beinskiptur ekinn 72.000
Verð 1.190.000-
Chevrolet Evanda Leður/Lúga
Skráningardagur 2.2006
Sjálfskiptur ekinn 113.000
Tilboð 990.000-
Volkswagen Jetta Comfortline
Skráningardagur 9.2006
Beinskiptur ekinn 77.000
Verð 1.650.000
Ford Focus Trend station
Skráningardagur 6.2008
Beinskiptur ekinn 60.000
Verð 1.890.000
Möguleiki á allt að 90% láni
Volkswagen New Beetle basicline
Skráningardagur 4.2007
Beinskiptur ekinn 62.000
Verð 2.490.000
Möguleiki á allt að 90% láni
Unnur Svava Sverrisdóttir er þrítug Njarðvíkurmær sem hefur ferðast víða um dagana. Hún hefur m.a. verið skiptinemi á Ítalíu og á sér nánast annað heim-ili á Spáni. Við fengum Unni til
þess að segja okkur frá þeim stað
sem hún hefur sérstakar mætur á
en það reyndist henni þrautinni
þyngra.
„Eftir töluverða viðveru á háaloft-
inu heima brosandi yfir gömlum
myndaalbúmum hefur val mitt á
staðnum mínum orðið mér enn
þungbærara. Venezuela gæti
verið staðurinn minn. Ég, for-
eldrar mínir og bróðir dvöldum
þar í fimm vikur 1997, bjuggum
hjá innfæddum og fórum hring-
ferð um landið. Sú ferð markaði
Í kjölfar óperuhátíðar sem haldin var í Reykja-nesbæ í fyrra og gekk framar vonum hefur verið
ákveðið að halda áfram þar sem frá var horfið.
Norðuróp hefur nú kallað til hóp söngvara, hljóð-
færaleikara og ballettdansara en sett verður upp
rússneska óperan Eugen Onegin eftir Tschaikowsky.
Þó óperan sé rússnesk þá verður hún sungin á ís-
lensku en Þorsteinn Gylfason þýddi hana árið 1984.
Jóhann Smári Sævarsson, óperusöngvari, er í forsvari
fyrir óperuhátíðinni. Hann segir þessa óperu vera
rómantíska og eins og í flestum óperum þá sé þarna
framið morð.
Óperan verður sett upp í Stapanum og verður m.a.
notast við þann hluta byggingarinnar sem er hálf-
byggður og þar settar upp útisenur. Þá flyst sýningin
úr hálfbyggðu húsi og inn í aðalsalinn, þar sem munu
dansa ballerínur.
Hópurinn sem tekur þátt í verkefninu í ár er mun
stærri en í fyrra. Á meðal söngvara í stórum hlut-
verkum eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Bylgja Dís
Gunnarsdóttir og Jóhann Smári Sævarsson í aðalhlut-
verki. Viðar Gunnarsson kemur inn í sýninguna eftir
30 ára feril í Evrópu. Rósalind Gísladóttir úr Grindavík
mun syngja í sýningunni, Bragi Jónsson frá Sandgerði
og Dagný Jónsdóttir.
Kór sýningarinnar verður í grunninn félagar úr kór
Íslensku óperunnar og úr kórum af Suðurnesjum en
ef söngvarar af Suðurnesjum vilja taka þátt í söngnum
eða hátíðinni að öðru leiti þá geta þeir haft samband
við Jóhann Smára í 421 7607 eða 841 9279 eða senda
póst á johannsaevarsson@hotmail.com.
Jóhann Smári segir að reynt sé að hafa eins mikið
af söngfólki frá Suðurnesjum og hægt er. Þá verður
BRYN Ballett Akademían og Listdansskóli Reykjanes-
bæjar með dansara í sýningunni og mun Bryndís
Einarsdóttir verða listrænn stjórnandi í dansinum.
Óperan verður frumsýnd 17. ágúst. Stefnt er á að
sýningarnar verði þrjár og endi svo á óperuballi þann
25. ágúst í Stapa. Þar verður galakvöldverður og allir í
sínu fínasta pússi.
›› STAÐURINN MINN
Háaloftið heima í Njarðvík eða
Venezuela?
Unnur Svava dvaldi í
fimm vikur í Venezuela
árið 1997.
Óperuhátíð í Reykjanesbæ í ágúst
›› Menningin blómstrar á Suðurnesjum:
Frá uppfærslu á Tosca í Keflavíkurkirkju og Kirkjulundi síðasta sumar.