Víkurfréttir - 03.05.2012, Side 20
20 FIMMTUDAGURINN 3. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
ÝMISLEGT
Búslóðaflutningar og allur al-
mennur flutningur. Er með 20
rúmmetra sendibíl/kassabíl með
lyftu. Uppl. í síma 860 3574 Siggi.
Tek að mér allskonar viðgerð-
ir á bílum, sláttuvélum. Er með
greiningartölvu til að bilanagreina
margar tegundir bíla. Vanur mað-
ur, 20 ára reynsla, sanngjarnt verð!
Uppl. S: 864 3567.
GÆLUDÝR
Schnauzer-hvolpar.
Til sölu svartir standard schnauzer
hvolpar með HRFÍ ættbók, fæddir
5.mars. Fara ekki úr hárum.
Uppl. í 862 6969 sigrun@mitt.is
BARNARGÆSLA
Óska eftir barnapíu.
Er að leita eftir stelpu til að passa
2-3 í viku. Er með 2 börn 7 og 3 ára.
Upplýsingar í síma 840 2506
Alma.
ÓSKAST
Ellilífeyrisþegi óskar eftir
langtíma leigu 2ja herbergja íbúð
á jarðhæð eða í lyftuhúsi. Uppl. í
síma 845 3908
2ja herb íbúð fyrir frá 1 júní í
Keflavík.
Óska eftir 2ja herb íbúð fyrir 1 jún
helst miðsvæðis í Keflavík. Uppl í
sima 618 1735.
SPÁKONA
Tarot og spilalagnir.
Birna (sem var á Ljósanótt) spáir í
Keflavík. Kem einnig í heimahús.
Einstaklingar / hópar (t.d. sauma-
klúbbar). Tímapantanir í síma 616
9523.
ÞJÓNUSTA
Nú er vor í lofti og allir ættu að
nýta sér þetta tilboð
Bónstöð Ragga í Garði kynnir.
Alþrif með bóni, lakkhreinsun
og djúphreinsun á sætum og gólfi á
aðeins 8500 kr fyrir fólksbíl
og 9000 kr fyrir jeppan. Staðsetning;
í Garðinum á Suðurnesjum.
Sími: 772-1554
Vefsíða: http://www.facebook.com/
bonstodragga
Endilega gerstu vinur á facebook.
Sæki einnig bíla og skila gegn vægu
gjaldi.
16 manna rúta vw til leigu
Til leigu 16 manna smárúta vw,
þarfnast yf irhalningar, mjög
miklir tekjumöguleikar í sumar
í ferðamannaiðnaði. Hægt að
semja um flest. Sendið email á
airportcarrental.is@gmail.com
Trésmiður
Vandaður, reyndur trésmiður
(meistari) tekur að sér viðgerðir,
viðhald og nýsmíði. Sanngjarnt
tímaverð eða fast verð.
Sími 659 5648 Stefán Ragnar
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0009
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
TIL LEIGU
2ja herbergja íbúð
til leigu á mótum Keflavíkur og
Njarðvíkur. Leiguverð 80 þ.kr. með
hita og rafmagni. Óskað er eftir 3ja
mánaða bankaábyrgð. Notaleg
íbúð á góðum stað. Vinsamlegast
hafið samband við Áslaugu í síma
866 0038.
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 3. - 9. maí nk.
• Bingó • Gler-, keramik- og
leirnámskeið • Handavinna •
Leikfimi • Dansleikfimi • Jóga
á boltum • Hádegismatur •
Síðdegiskaffi • Tölvuklúbbur FEBS
Léttur föstudagur
Nesvöllum 4. maí n.k.kl. 14:00
Sigurður Guðmundsson frá
U.M.F.I verður með kynningu
á Landsmóti U.M.F.I 50+ sem
haldið verður í sumar.
og einnig verða Arnór og
félagar frá Keflavíkurkirkju.
Nánari upplýsingar
í síma 420 3400
VÍKURFRÉTTIR
Í SÍMANN
m.vf.is
896 0364
Bói Rafvirki raf-ras.is
TIL SÖLU
Til sölu Verslunarhúsnæði.
Verslunarhúsnæði á besta stað á
Hafnargötu 32.
86 fm, áhvílandi 5M og Verð
14.5M. Ýmis skipti möguleg.
Uppl í 897 2323 og 868 0490 .
Parhús í Garðinum.
Parhús í Garðinum til sölu eða
leigu, 74 fm. björt og notaleg í húsi
með sál. Góður kostur fyrir þá
sem vilja njóta kyrrðar en vera
samt stutt frá helsta þjónustusvæði
landsins. Áhvílandi er um 6,7
milljónir og ásett verð er um það
bil 8 milljónir. Skipti á eign á nær
höfuðborginni kemur vel til greina.
Öll tilboð verða tekin alvarlega.
Sjá myndir á http://www.eastartist.
com/meidastadavegur/
Fyrirspurnir í síma 861-9164, eða á
netfangið annahrefnu@gmail.com
Starfsvið:
• Umsjón með fjárhagsbókhaldi
• Bókun reikninga og afstemmingar
• Uppgjör
• Ýmis önnur verkefni sem tengjast bókhaldi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðurkenndur bókari / háskólamenntun
• Reynsla af DK bókhaldi
• Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
• Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Mjög góð tölvukunnátta
• Æskilegt að umsækjandi hafi búsetu
á Reykjanesi
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um
starfið á heimasíðu birgir@nyfiskur.is
AÐALBÓKARI
Ný-Fiskur ehf. leitar að traustum og samviskusömum
einstakling til starfa.
Fyrirtækið er staðsett í Sandgerði.
Ný-Fiskur ehf. er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins í framleiðslu á
hágæða ferskfiski sent með flugi inn á Evrópu markað.
Hjá Ný-Fiski ehf starfa um 90 manns og er hann einn stærsti
vinnustaður bæjarfélagsins.
„Sínum augum
lítur hver á
silfrið“
Vei þeim sem ek ki eru á
sama máli og nú-
verandi bæjar-
stjóri í Garði.
H e g g u r h a n n
p e r s ó n u l e g a í
oddvita N listans
sem fyrir hönd listans, setur fram
skoðanir á ársreikningum sveitar-
félagsins.
Fulltrúi og forystumaður meiri-
hlutans í Garði, Ásmundur Frið-
riksson bæjarstjóri, sá ástæðu til
þess að stinga niður penna eftir að
hafa lesið grein N listans í Víkurf-
réttum 12. apríl sl. um ársreikning
sveitarfélagsins fyrir rekstrarárið
2011. Eitthvað virðist greinin hafa
komið við hann og snert réttlætis-
kennd hans sem er mikil.
Bæjarstjóri vænir hins vegar odd-
vita N listans um ósannindi þegar
réttilega er bent á að framsetning
ársreikningsins er all flókin og
flestir eiga ekki auðvelt með lesa
út úr slíkum reikningum eins og
bæjarstjórinn hefur sjálfur sagt.
Reikningurinn fyrir árið 2011
er sérlega flókinn vegna þeirrar
ákvörðunar meirihlutans að færa til
fjármuni úr A hluta bæjarsjóðs yfir
í B hluta þ.e.a.s úr Framtíðarsjóði
til þess að greiða niður skuldir.
Þessi aðgerð ein og sér flækir árs-
reikninginn verulega og hefði verið
hægt að færa þetta bókhaldslega á
ýmsan hátt. Sú leið sem valin var
torveldar mjög lestur reikningsins
og er að mati N listans nýtt til þess
hafa árif á ýmsar lykiltölur svo sem
handbært fé og rekstrarkostnað B
hluta án þess að það sé reynt að
skýra það eitthvað sérstaklega. Það
ætti ekki að þurfa að segja bæjar-
stjóranum það, að handbært fé frá
rekstri bæjarsjóðs er neikvætt um
kr. 92.246.000. Þessa tölu má lesa
í sjóðsstreymisyfirliti á bls. 8 í árs-
reikningi. Þessi tala er niðurstöðu-
tala fyrir A hluta bæjarsjóðs og
sýnir auðvitað rekstur hans í hnot-
skurn. Bæjarstjóri setur hins vegar
fram töluna úr samstæðureikn-
ingi (A og B) sem verður jákvæð
vegna þeirra tilfæringa sem að ofan
greinir. Töluna sem hann nefnir má
vissulega finna í ársreikningi en er
hún að sýna hina réttu stöðu? Það
er ekki skoðun N listans.
Bæjarstjóranum er einnig mikið
niðri fyrir vegna þess að fram kemur
í greininni, að eiginlegur rekstur er
ekki að standa undir sér. Hann segir
svo að vitnað sé í orð hans: „Hið
rétta í málinu er að vextir og verð-
bætur af Framtíðarsjóði hafa verið
notaðar til reksturs sveitarfélagsins
en ekki höfuðstóll sjóðsins“. Nú er
það hins vegar svo að Framtíðar-
sjóður er nánast uppurinn þ.e.a.s
þeim lausafjármunum sem þar
voru hefur verið að mestu breytt í
fastafjármunni (byggingar og fl.).
Sveitarfélagið mun því hvorki hafa
vaxtatekjur né verðbætur af Fram-
tíðarsjóði, svo nokkru nemur, í
framhaldinu. Svigrúm meirihlutans
til þess að hafa áhrif á niðurstöðu
ársreiknings með tilfæringum og
vaxtatekjum er því á enda runnið.
Hvað gera bændur þá?
Það er eitt af mörgum hlutverkum
minnihluta í bæjarstjórn að hafa
eftirlit með ákvörðunum meiri-
hluta, afla sér upplýsinga um fram-
kvæmdir og leita til sérfræðinga
ef með þarf. Það var gert varðandi
ársreikninga Sveitarfélagsins Garðs,
greinin sem sett var á vef Víkurfrétta
var sýn N listans á fjármálastjórnun
D lista meirihlutans. Ekkert meira
er um það að segja. Sannleikurinn
er sagna bestur.
Fyrir hönd N listans
Jónína Holm.
ATVINNA
Starfsfólk vantar á Mamma Mía í Grindavík.
Unnið er eftir 2-2-3 vaktarplani.
Unnið frá 11:30 til 22:00 alla daga.
Áhugasamir senda email á
mammamia@mammamia.is