Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.06.2012, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 28.06.2012, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGURINN 28. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR2 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Eldhúsvaskar og tæki Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Húsavík Vestmannaeyjum Bol-871 48cm þvermál þykkt 0,8mm 6.990,- Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm 11.990,- AGI- Eldhústæki 3.990,- Bol-897 66x43x18cm þykkt stáls 0,8mm 10.450,- Bol-604 48x43x18cm Þykkt stáls 0,8mm 7.490,- (fleiri stærðir til) Bíll sviðnaði og rúður sprungu Eldur kviknaði út frá grilli í Garði eftir að það hafði verið lagt á vörubretti framan við íbúðarhús. Hús ráð andinn hafði ætlað að grilla á einnota grilli en lenti í basli með það, hætti við elda mennskuna og lagði grillið á vöru brettin. Eldur gaus upp í brettunum, en nágrannar voru að ljúka við að slökkva hann þegar slökkvi liðið kom á vettvang. Að sögn lögregl unnar á Suður­ nesjum skemmdist framendi á bifreið, sem stóð þarna nærri, vegna hita. Þá sprungu fimm rúður í íbúðar húsinu af sömu sökum. Jackass stjarna skemmdi bílaleigubíl Hinn heimsþekkti ólátabelgur Bam Margera var staddur á landinu í vikunni og gisti hann á hóteli í Reykjanesbæ. Samkvæmt á r e i ð a n l e g u m h e i m i l d u m Víkurfrétta á Bam að hafa komist í kast við lögin á meðan á heimsókn hans stóð en lögreglan var kölluð til að hótelinu sem kappinn gisti á vegna leigubifreiðar sem reyndist skemmd og hafði ekki verið skilað á réttum tíma aftur á bílaleigu. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta var bifreiðin í leigu hjá Bam Margera en hann hafði ílengst hér á landi eftir að hafa misst af flugi. Kappinn var ekkert að hika og greiddi víst tjónið af bifreiðinni með kreditkorti sínu um leið, rúma milljón króna. Tvö börn í einu öryggisbelti Lögreglan að Suður nesjum stöðvaði öku mann í hefð­ bundnu um ferðar eftir l iti um helgina. Í aftur sæt inu sat móðir me ð tveggja ára barn og var bíl beltið spennt utan um þau bæði. Við hlið ina á henni sat átta ára drengur, einnig með tvegg ja ára barn í fanginu, og hafði bíl belti verið spennt utan um þau. Á milli kon unnar og barn anna sat svo átta ára telpa með öryggis belti spennt en án sérstaks ör yggis­ og verndar­ búnaðar sem ætlaður er börn­ um. Alltof algengt er að upp komi tilvik þar sem reglum um ör yggi barna í bí lum er ek ki fylgt og eru foreldrar og for­ ráðamenn minntir á að hafa þessa hluti í lagi. Báturinn Sædís Bára var sjósettur í Njarðvíkurhöfn í síðustu viku en báturinn er smíðaður frá a t i l ö af Suðurnesjamönnum og hér á svæðinu. Nánar til tekið í fyrrum húsi Eldafls í Njarðvík. Báturinn er 15 tonn að þyngd og gerður úr trefjaplasti. Báturinn hefur verið í smíði síðan í desember árið 2010 en upphaflega stóð til að smíða lítinn sex metra langan bát. Eitthvað varð verkið stærra í smíðum og á endanum varð til þessi glæsilegi 13 metra langi bátur sem gerður verður út frá Garðinum. Menn sem þekkja vel til segja að það sé orðið ansi langt síðan svo stór bátur hafi verið smíðaður hér á Suðurnesjum. Ragnar Þór Georgsson er einn eigenda bátsins en hann sagði í samtali við Víkurfréttir að farið yrði að róa strax í þessari viku. Þá er förinni heitið á Skagaströnd þar sem rennt verður fyrir ufsa á handfæri. Þrír aðrir eiga bátinn ásamt Ragnari en það eru þeir Viktor, Róbert Georgsson og Halldór Pétursson fiskverkandi í Garði. Blaðamaður Víkurfrétta fylgdist með för Sædísar þegar báturinn fór á flot við Skipasmíðastöðina í Njarðvík og á meðfylgjandi myndum má sjá ferðalag bátsins. SuðurneSjaSmíð frá a-ö ›› Sædís Bára, glæsilegur bátur sjósettur í Njarðvík. Fer beint á ufsaveiðar: Frá vinstri: Róbert, Viktor, Bjarni háseti og Ragnar stoltir á þilfarinu ATVINNA Virkjun mannauðs á Reykjanesi óskar að ráða verkefnastjóra til að stýra starfsemi Virkjunar. Virkjun er virknimiðstöð fyrir fólk sem er án atvinnu og er staðsett á Ásbrú, 230 Reykjanesbæ. Virkjun hefur verið starfrækt síðan 15. janúar 2009. Við leitum að öflugum og dugmiklum einstaklingi með frjóan huga og gott geðslag. Hæfni til að afla, fara með og halda utan um fjármál félagsins. Viðkomandi þarf að hafa skýra sýn og hæfni til að koma fram og tjá sig í ræðu og riti. Verkefnastjóri sér um daglegan rekstur, skipulagningu, fjármál og fl. Verkefnin eru afar fjölbreytt og snerta líf fjölmargra. Umsóknum eiga að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðning fyrir hæfni viðkomandi í starfið og sína sýn á framtíð og þróun Virkjunar. Umsjón með ráðningu; Ólafur S. Magnússon formaður stjórnar Virkjunar mannauðs á Reykjanesi. Umsóknafrestur til og með þriðjudaginn 10. júlí, 2012. Umsóknir og fyrirspurnir um starfið sendist á olafur@fit.is Stjórn Virkjunar mannauðs á Reykjanesi. BYRJENDANÁMSKEIÐ Í GOLFI Á HÓLMSVELLI LEIRU NÁMSKEIÐIÐ ER TVISAR SINNUM Í VIKU OG ER HVERT NÁMSKEIÐ FJÖGUR SKIPTI, 90 MÍNÚTUR Í SENN. PGA kennarar: Erla Þorsteinsdóttir og Rögnvaldur Magnússon Skráning er á erlagolf@gmail.com VERÐ KR. 12.000,- MARKMIÐ: Pútt, vipp, sveia, spil , helstu golf- og siðareglur 3. júlí 20.00 – 21.30 5., 8. og 10. júlí 18.30 – 20.00 ›› FRÉTTIR ‹‹

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.