Víkurfréttir - 28.06.2012, Blaðsíða 12
FIMMTUDAGURINN 28. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
vf.is
Krossmóa 4 • 4. hæð • 260 Reykjanesbæ • Sími 421 0000
„Það mætti orða það þannig að
ég er duglegur á sumrin á grillinu
og síðan á ég það til að taka tarnir
við eldavélina öðru hverju. Ég er
kallaður til þegar kemur að því að
matreiða „a la“ Halli réttina,“ seg
ir Haraldur Axel Einarsson sem
er matgæðingur Víkurfrétta þessa
vikuna.
Haraldur segist ekki verja neitt
gríðarlegum tíma í eldhúsinu held-
ur séu svalirnar frekar hans eldús.
Þar er hann duglegur á grillinu og
oftar en ekki eru það pizza, kjöt og
hamborgarar sem fá að ilja sér þar.
Haraldur ætlar að deila skemmti-
legri uppskrift með lesendum en
hann ætlar að fræða okkur um
hvernig grilla skuli pizzu.
„Pizzan hefur verið í miklu upp-
áhaldi síðan ég fékk pizza-steininn
frá tengdaforeldrunum hérna um
árið. Hún þarf helst að vera með
öllu sem ég kem á hana, en ég hef
Pizzan best grilluð
Í Eldhúsinu
verið að létta aðeins á henni með
því að minnka kjötáleggið og auka
við hollustuna, t.d. bæta við þessu
græna, er ekki krafa um það í nú-
tímasamfélagi?
Byrjað er að hita steininn meðan
pizzan er græjuð innandyra. Steinn-
inn þarf að vera funheitur. Smelli
pizzunni á steininnn og þetta tekur
innan við 10 mínútur að grillast. Þú
færð'ana ekki betri en grillaða (We-
beraða). Hægt að næla sér í grillstein
í Húsasmiðjunni, þeir selja Weber
grillvörur,“ segir Haraldur að lokum.
Uppskriftin:
Botninn:
Speltbotn frá Ebbu (http://pu-
reebba.com/)
250 gr spelt (má blanda fín-
og grófmöluðu saman)
3 tsk vínsteinslyftiduft
Ca 1 tsk oregano
1/2 tsk sjávarsalt
2 msk ólívuolía
130-140 ml heitt vatn
Sósan:
2-3 hvítlauksgeirar
maldon sjávarsalt eftir smekk
ólívuolía
Áleggið:
skinka
paprika
sveppir
rauðlaukur
piparostur
pizzaostur
furuhnetur
fetaostur
beikon
toscana skinka
klettasalat
spínat
Líknarsjóður Finnbjargar Sigurðardóttur styrkti á
dögunum Skammtímavistunina
Heiðarholt um næstum hálfa
milljón í formi gjafa. Finnbjörg
sem sjóðurinn er nefndur eftir
var frá Felli í Sandgerði, fædd
1906 og lést árið 1952 og var
sjóðurinn stofnaður árið 1953.
Þeir peningar sem eru í þessum
sjóð koma eingöngu af sölu á
minningarkortum. Það er venja
að gefa úr þessum sjóði á u.þ.b. 5
ára fresti. Þeir sem fengu að njóta
að þessu sinni voru skjólstæðingar
á S k a m m t í m a v i s t u n i n n i
Heiðarholti, Garði. Keyptur var
sturtu/salernis stóll ásamt öðrum
hjálpartækjum fyrir kr. 483.000.
Stóllinn nýtist mikið fötluðum
börnum og var hann afhentur nú
í byrjun júní.
Gáfu Heiðarholti veglegar gjafir
›› Vegleg gjöf:
Nj ö r ð u r G a r ð a r s s o n , björgunarbátur Björgunar
sveitarinnar Suðurnes s em
slitnaði aftan úr björgunarskipinu
Hannesi Þ. Hafstein á Faxaflóa
í brotsjó árið 2009 er nú loks
kominn aftur í leitirnar. Eftir að
hafa verið týndur í 996 daga þá
fannst báturinn nú um síðastliðna
helgi, 1077 mílum frá þeim stað
sem hann týndist. Njörður fannst
við Vesterålen sem er nyrst í Noregi
en það var norskur fiskibátur
sem varð bátsins var, en stefnið
á Nirði stóð upp úr hafinu eins
og sjá má á myndum. Báturinn,
sem er Atlantic 21 harðbotna
björgunarbátur, slitnaði aftan úr
björgunarskipinu í október árið
2009 eftir að brotsjór hafði komið
á skipið og hvarf sjónum manna.
Bátsins var leitað lengi vel en án
árangurs.
Kári Viðar Rúnarsson formaður
Björgunarsveitarinnar Suðurnes
sagði í samtali við VF að það væru
vissulega gleðitíðindi að heyra
af bátnum og hann var á því að
fundurinn væri ansi merkilegur
fyrir margra hluta sakir. „Hönnuður
bátsins hafði alltaf sagt að það væri
varla hægt að sökkva bátnum nema
hann myndi hreinlega brotna í
spað. Það hefur því sýnt sig að hann
hefur greinilega ekki sokkið fyrr en
eftir ansi langt ferðalag og hreint
ótrúlegt að hann hafi komist alla
þessa leið án þess að einhver yrði
hans var,“ sagði Kári og bætti því
við að líklega myndi beinagrind
bátsins skila sér hingað til lands.
„Norska strandgæslan er líkega á
leið hingað til lands í sumar og þá
er möguleiki á því að leifar bátsins
verði með í för, þetta er þó óljóst
enn og við erum að bíða frekari
upplýsinga frá Noregi.“
Njörður fundinn í Noregi
– týndur í tæpa 1000 daga
Styttist í NÝJAN
Víkurfréttavef