Víkurfréttir - 28.06.2012, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGURINN 28. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR8
Það er sannarlega skarð fyrir skildi að Jón Stefánsson skó
smiður sé að fara að hætta störfum
enda er hann fyrir löngu orðinn
afar kær Suðurnesjamönnum og
hafa sjálfsagt margar kynslóðir
Suðurnesjamanna notið krafta
hans. Enda hefur Jón Skó, eins
og hann er jafnan kallaður, verið
að laga og bæta skó í Keflavík í
rúm 50 ár. Eftir að Jón birtist á
forsíðu Víkurfrétta í síðustu
viku hefur skarinn allur af fólki
komið í heimsókn á verkstæðið
og heimili Jóns að Skólavegi 22 og
knúsað og kysst gamla manninn.
Þau hjónin Jón og Guðrún kona
hans eru frábærir gestgjafar en
blaðamaður Víkurfrétta getur svo
sannarlega vottað um það eftir
að hafa kíkt til þeirra í kaffisopa
og spjall.
Það eru líklega flestir sammála
því að það hefur ekki farið mikið
fyrir verkstæðinu á Skólavegi. Ef
ekki væri fyrir skiltið sem stendur
við götuna þá vissu sjálfsagt ekki
margir að þarna í skúrnum leyndist
skóverkstæði þar sem Jón hefur
unað sér í yfir 30 ár. Margir eru
sjálfsagt einnig sammála því að
iðn sú sem Jón hefur stundað sé
ef til vill ekki sú eftirsóttasta af
iðngreinum og því miður er það
orðið svo að stéttin er nánast að
deyja út. Áður fyrr þótti það fínt
starf að vera skósmiður. Menn voru
í fínum skyrtum og með reffilegar
leðursvuntur. Eða svo segir Gunna
hans Jóns, eða Gunna skó eins og
hún hefur alltaf verið kölluð en
faðir hennar var alla tíð skó smiður.
Gu ð r ú n Mat t h i l du r S i g u r
bergsdóttir og Jón hafa nú verið
gift í 63 ár og kynntust þau skötu
hjú í Hérað skólanum Laugarvatni.
„Pabbi byrjaði með skóverkstæði á
Ólafsvík árið 1928 en þá var mikil
kreppa, og matarleysið mikið,“ segir
Guðrún. „Fólk kom með skóna til
hans pabba og sagðist ætla að borga
seinna en það stóð sjaldan heima
og efniskostnaðurinn var mikill.
Pabbi ætlaði því að fara á sjóinn
og kom því hingað til Keflavíkur.“
Það var rétt eftir brunann 1936 í
Skildi, rifjar Guðrún upp. Þá voru
tveir gamlir skósmiðir í bænum og
faðir Guðrúnar sá það í hendi sér
að það var vöntun á nýjum skósmið
í bæinn. Hann hóf starfsemi á
Vallargötu 7 og keypti síðar hús á
Hafnargötu 35 sem þá var reyndar
Hafnargata 20. Að sögn Guðrúnar
voru Keflvíkingar afskaplega góðir
og hjálpsamir þrátt fyrir að margir
hafi ekki haft mikið milli handanna
enda mikil fátækt á þessum tíma.
„Mér finnst engin kreppa vera
nú til dags. Ég man þegar að fólk
þurfti að standa í biðröðum til þess
að fá mjólk og allar búðir voru
tómar,“ segir Guðrún og rifjar upp
skemmtilega sögu frá þeim tíma
þegar frænka hennar ætlaði að
kaupa sér eggjaskera. Guðrún sagði
henni pent að slíkt væri ekki til í
neinum verslunum enda lítið sem
ekkert til þar. Þá sagði frænkan:
„Helvítis frekja er í fólki. Loks þegar
ég eignast aur og ætla að kaupa mér
eggjaskera þá eru þeir búnir,“ segir
Guðrún og hlær.
Safnað fyrir vondu tímunum
Faðir hennar útskrifaðist með
meistarabréf í skósmíði f rá
Reykjavík. „Hann var a l ltaf
skósmiður. Þegar þú ert skósmiður
þá verður þú bara að láta það nægja.
Þú þarft bara að safna fyrir vondu
tímunum, það sagði pabbi alltaf.“
Guðrún segir að á þeim tímum hafi
komið mörg pör af skóm á dag til
viðgerðar enda átti fólk ekki eins
mikið af skótaui og í dag og hugsaði
vel um skófatnaðinn.
Jón var á þessum tíma að starfa
uppi á velli í góðri vinnu en hann
hefur í gegnum tíðina fengist við
flestar iðngreinar nema múrverkið.
Það hefur hann afrekað þrátt fyrir
að hafa gert við skó í rúm 60 ár.
Sigurbergur tengdafaðir hans var
þá einn á skósmíðaverkstæðinu
og átti í erfiðleikum með að hafa
undan. Jón vorkenndi kallinum og
var mikið að hjálpa honum eftir
vinnu og þegar hann hafði lausan
tíma. „Við vorum að byggja og
vorum með þrjú börn. Þá sagði Jón
að hann ætlaði sér að hætta upp á
velli til þess að hjálpa pabba,“ segir
Guðrún. Jón fór því að vinna hjá
tengdaföður sínum og náði sér í
sveinspróf á endanum. Sigurbergur
lést reyndar áður en Jón náði að
fá meistararéttindi en þau hefur
hann aldrei tekið. Hann fór að
starfa sjálfstætt þegar Sigurbergur
féll frá en það er árið 1973. „Ég
hef ekkert sóst eftir því að sækja
meistararéttindin. Mér er alveg
sama hvað stendur á legsteininum,
hvort að það sé meistari Jón, eða
bara Jón,“ segir Jón og hlær. Árið
1980 fluttist starfsemin í núverandi
húsnæði við Skólaveg þar sem Jón
hefur síðan haldið til í bílskúrnum.
Hefur fundið arftaka
Nú er Jón kominn með mann í læri
sem ætlar að taka við keflinu en sá
heitir Sigurður Ólafsson. „Hann
fékk hvergi starfsþjálfun og það
er enginn skósmiður sem vill taka
lærling. Það er dýrt því borga þarf
manninum kaup. Ég bauð honum
bara að vera hérna með mér og sjá
hvernig þetta fer fram,“ en Sigurður
var áhugasamur um skósmíðina
en hann hefur fengist við margt
í gegnum tíðina sjálfur. Hann er
þessa dagana að koma sér fyrir við
innganginn í Nettó í Krossmóa þar
sem tækin frá Jóni munu koma
til með að þjóna skóbúnaði okkar
áfram um ókomna tíð.
Nú hefur margt breyst í skótískunni
á öllum þessum árum en hvað
finnst skósmiðnum um þróunina
sem átt hefur sér stað í bransanum
„Nú eru þetta bara einnota skór
að miklu leyti. Þetta var ekkert úr
plasti hérna áður fyrr. Það er líka
mikið um það að fólk komi með
skóna í viðgerð og sæki þá ekki
aftur, slíkt gerðist aldrei hér áður
fyrr.“ Jón er á því að vönduð viðgerð
á skóm sé listgrein út af fyrir sig en
hann sjálfur er handlaginn með
eindæmum. Þau hjónin draga
fram gömul myndaalbúm þar sem
verk Jóns hafa verið fest á filmu.
Þar getur að líta skó sem m.a. hafa
„Sama hvort
það standi
meistari Jón,
eða bara Jón
á legsteininum“
Jón við skiltið góða.
Jón hefur rekið Skóbúðina í yfir 50 ár. Sigurbergur tengdafaðir hans
hóf rekstur fyrirtækisins árið 1928 og því mætti eflaust segja að fyrirtækið
sé með þeim elstu á Suðurnesjum.
›› Jón Stefánsson skóari í Keflavík leggur skóna á hilluna eftir rúmlega hálfrar aldar starf