Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.06.2012, Side 6

Víkurfréttir - 28.06.2012, Side 6
FIMMTUDAGURINN 28. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR6 Leiðari Víkurfrétta Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa: Páll Ketilsson, ritstjóri vf.is Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 5. júlí 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is Jón og Gunna Jón Stefánsson skóari í Keflavík er að leggja skóna á hilluna eftir um hálfrar aldar starf á skóvinnustofunni í Keflavík. Jón er skemmtilegt dæmi um fólk sem endist í sama starfinu í langan tíma og Guðrún kona hans sem hefur ekki látið sitt eftir liggja, en hún starfaði m.a. ötullega fyrir eldri borgara í mörg ár. Er það ekki magnað og skemmtilegt að lítið fyrirtæki sé meira en hálfrar aldar gamalt nú þegar kennitöluskipti eru algengari en hitt. Það hefur margt breyst á hálfri öld ef við skoðum aðeins tímann sem Jón og Gunna skó hafa rekið skóvinnustofuna. Það þarf að grafa djúpt í leit að eldra fyrirtæki á Suðurnesjum þó vissulega sé það ekki mannmargt. Mörg traust fyrirtæki sem höfðu verið með rekstur í áratugi á Suðurnesjum hafa lent í miklum vandræðum eftir bankahrunið. Sum bara dáin. Verslanir, veitingastaðir, verktakafyrirtæki og þjónustuaðilar úr hinum ýmsu geirum atvinnulífsins. Sum þó í rekstri eftir að hafa fengið nýja kennitölu. Ný kennitala þýðir að skuldir viðkomandi eru í langflestum tilfellum felldar niður. Það er vont fyrir þá sem hafa átt inni hjá slíkum aðilum. „Bankinn sagði okkur að skipta um kennitölu,“ sagði eigandi eins fyrirtækis sem hefur verið með rekstur í mörg ár. Sumir eigendur fyrirtækja eru í raun í vinnu fyrir bankana og eru þannig lagað í hálfgerðri gjörgæslu þeirra. Eldmóður og áhugi eigenda og starfsmanna hverfur í slíkum tilfellum. Þá er kannski betur hætt en áfram haldið. Í úttekt frá því síðla vetrar kom fram að meira en 50% fyrirtækja á Suðurnesjum væru í alvarlegum vanda og myndu jafnvel ekki lifa af árið. Við sem hér búum könnumst langflest við þetta, þekkjum til hjá mörgum aðilum sem hafa lent í erfiðleikum eftir bankahrunið. Það hefur mörgum liðið illa og þurft að horfa á eftir rekstri fyrirtækis, starfsfólk hefur tapað vinnunni og alvarlegt ástandið hefur ekki hjálpað upp á bæjarbraginn á svæðinu. Ekki bætti úr skák þegar Sparisjóðurinn fór eftir hundrað ára rekstur. Sem sagt; mjög erfitt og hálf ömurlegt ástand á mörgum bæjum. En hvað um það, við verðum að halda áfram. Þrátt fyrir erfiðleika þá eru margir ljósir punktar í samfélaginu á Suðurnesjum. Mörg spennandi tækifæri. Ferðaþjónustan á fleygiferð. Þar er aukningin. Nýtt álver, hvort sem það mun rísa eða ekki mun kannski ekki ná því að standa undir nafni sem stærsti vinnuveitandi á Suðurnesjum. Þar trónir Flugstöð Leifs Eiríkssonar á toppnum og verður líklega næstu árin. Hvort sem við munum sjá álver rísa eða ekki. Hvar værum við annars stödd ef hér væri ekki flugstöð sem leiðir af sér um og yfir tvö þúsund störf. Verði álverið að veruleika mun það þó hafa gríðarleg áhrif út í fyrirtækjasamfélagið á Suðurnesjum og víðar. Sambærilegt álver sömu eigenda á Grundartanga skiptir við 300 fyrirtæki og kaupir af þeim þjónustu og vörur fyrir 10 milljarða á ári. Það munar um minna. ›› Suzuki hjá K.Steinarsson: ›› Chervolet Malibu hjá Bílabúð Benna: „Ég vil nota tækifærið og þakka þau viðbrögð sem ég hef þó feng­ ið í framhaldi af fréttinni á vef Víkurfrétta um leiðréttingu á staðreyndarvillum í rannsókn­ arskýrslu Alþingis.“ segir Stein­ þór Jónsson hótelstjóri og fyrr­ verandi bæjarfulltrúi Sjálfstæð­ isflokksins í Reykjanesbæ. „Með svona sterka leiðréttingu í höndunum er fólk kannski að skilja betur að allt er ekki eins og það sýn- ist við fyrstu skoðun. Þá eru aðrir sem vita nú án alls vafa að ég var ekki í stjórn Sparisjóðabankans þeg- ar lánaveitingar til fjárfesta honum tengdum voru veittar, vita að ég var ekki í stjórn Sparisjóðsins í Keflavík eða í Suðurnesjamönnum, sem enn fullyrða um að ég hafi samt fjárfest í Berginu án þess að greiða eigið fé, sem ég vissulega gerði, eða fjárfest ásamt öðrum í félögum sem lifðu bankahrunið ekki af. Við þetta fólk vil ég segja að ef það í hjarta sínu vill vita sannleikann þá er því vel- komið að hafa samband og kynna sér einstök efnisatriði eða koma til að sjá kvittun fyrir greiðslu á eigin fé tengdum þessum félögum. Það er það besta sem ég get boðið.“ Í umræddri grein kom fram að Steinþór Jónsson, hefur fengið formlegt bréf frá Alþingi þar sem rangfærslur sem fram komu í rann- sóknarskýrslu Alþingis eru leið- réttar. Heilt ár leið frá því að hann vakti fyrst athygli á rangfærslunum í skýrslunni og þar til þær voru að lokum leiðréttar og sagði Steinþór ljóst að mannorð hans hafi skaðast mjög vegna þessa og fagnar mjög leiðréttingu Alþingis í máli sínu. „Þessi rangfærsla í rannsókn- arskýrslu Alþingis hefur skaðað mig gríðarlega og verið grunnur að rógburði gegn mér síðustu mánuði. Þar má helst nefna, auk þess sem nú er staðfest, að ég hef ekki komið að lánum til félaga mér tengdra, að ég var aldrei stjórnarmaður í Sparisjóðnum í Keflavík, var ekki einn eigenda Suðurnesjamanna ehf. og tók aldrei persónuleg lán fyrir mig eða fyrirtæki í meirihluta- eigu minni,“ segir Steinþór. Í bréfi sem Steinþór sendi for- sætisnefnd og dagsett er 31. maí 2011 vakti hann athygli á því að í Steinþór fékk leiðréttingu eftir ár -segir rangfærslu í rannsóknarskýrslu Alþingis hafa skaðað sig mikið 3. bindi á bls. 99 og 100 í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis megi finna alvarlegar staðreyndavillur. Fullyrt var að Steinþór hefði gegnt varaformennsku í stjórn Icebank og átt þátt í að breyta, ásamt stjórn, lánareglum bankans á stjórnarfundi þann 7. október 2007 og veitt lán m.a. til einkahlutafélags að hluta í sinni eigu. Hið rétta er að Steinþór var meðstjórnandi frá 14. desember 2007 og varaformaður stjórnar bankaráðs frá 7. mars 2008. Á um- ræddum stjórnarfundi 7. október 2007 var farið yfir lánareglur bank- ans auk þess sem formanni og vara- formanni stjórnar bankans var falið að ganga frá lánum til einkahluta- félaga vegna hlutafjárkaupa í bank- anum sjálfum. Eitt þeirra fyrirtækja sem fengu lán var Bergið ehf., sem var í minnihlutaeigu Steinþórs auk 12 annarra hluthafa. Í sama bréfi til forsætisnefndar er bent á að opinber gögn frá Fyr- irtækjaskrá sýni einnig fram á að Steinþór hafi ekki verið í stjórn bankans á þessum tíma og þar með geti veiting lána, sem ákveðin voru á þessum fundi, ekki tengst hon- um. „Allar skýrslur, sérstaklega rann- sóknarskýrsla Alþingis og aðr- ar rannsóknarskýrslur, verða eðli málsins samkvæmt að vera með allar staðreyndir á hreinu og segja báðar hliðar mála á sanngjarnan hátt,“ segir Steinþór og bætir við að svo hafi ekki verið í málefnum hon- um tengdum líkt og bréf Alþingis staðfestir nú. „Það er von mín að svona rangfærslur heyri nú sögunni til. Reiði og öfund í samfélaginu er næg fyrir. Um leið og ég fagna leiðréttingu Al- þingis í mínu máli er ljóst að þessi rangfærsla í rannsóknarskýrslu Al- þingis hefur skaðað mig gríðarlega og verið grunnur að rógburði gegn mér á síðustu mánuðum. Allar skýrslur, sérstaklega rannsókn- arskýrsla Alþingis og aðrar rann- sóknarskýrslur, verða eðli málsins samkvæmt að vera með allar stað- reyndir á hreinu og segja báðar hliðar mála á sanngjarnan hátt. Svo var vissulega ekki gert í málefnum mér tengdum eins og bréf Alþings hefur nú staðfest. Ljóst er að tengsl mín við Sjálf- stæðisflokkinn hefur verið undirrót ofsókna í minn garð enda sleppa meðeigendur og aðrir fjárfestar í sömu fjárfestingum við alla um- fjöllun og áróður, hvað þá nafn- greindir. Eftir 30 ára uppbyggingu minna fyrirtækja og vilja til upp- byggingar í mínu litla samfélagi er sérstaklega erfitt, þar sem marg- ir hafa tapað miklum fjármunum vegna bankakreppunnar, að vera settur allt í senn sem stjórnarmaður Sparisjóðsins í Keflavík, lánveitandi og lánþegi að ósekju.“ Steinþór með bréfið frá Alþingi. „Þetta er allt í rétta átt og við finnum mjög mikið fyrir auknum áhuga og fyrirspurnum,“ segir Kjartan Steinarsson, bílasali en hann bætti nýlega Suzuki bílum við í framboð sitt á bílasölunni og afhenti þann fyrsta Bílaleigu Keflavíkur á föstudaginn. Ragnar Róbertsson eigandi Bíla- sölu Keflavíkur tók við lyklunum að splunkunýjum Grand Vitara jeppa hjá Kjartani og sagðist vera að byggja upp og efla flotann í leig- unni sem var stofnuð fyrir tveimur Fyrsta Chevrolet Malibu bifreið Bílabúðar Benna í Reykja­ nesbæ var afhent á dögunum. Þau hjónin Sigurður Kristinsson og Bryndís Rafnsdóttir festu kaup á bílnum sem hefur verið aðlagaður að akstri í Evrópu og kominn á markað hérlendis eftir langa bið. K.Steinarsson afhendir fyrsta Suzuki bílinn Fyrsti Chevrolet Malibu afhentur í Reykjanesbæ árum. „Ég var með bílapartasölu í Hafnarfirði en hef nú snúið mér alfarið að bílaleigu og hef fengið mest mín viðskipti frá tveimur ferðaþjónustuaðilum í útlöndum,“ sagði Ragnar. K.Steinarsson er með umboð frá Öskju sem er með Mercedes Benz og KIA bíla en bætti nýlega Suzuki í hópinn. Kjartan segir að það hafi verið mikil aukning í sölu á KIA sem hafa verið að koma sterkir inn á markaðinn, sérstaklega í minni og sparneytnari bílum.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.