Víkurfréttir - 28.06.2012, Side 9
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 28. júNí 2012 9
verið étnir af hundum og við fyrstu
sýn virðast þeir ónýtir. Svo er flett á
næstu síðu í myndaalbúminu og þá
eru sömu skór nánast eins og nýir.
„Finn mér eitthvað að gera“
Þau eru fá verkin sem hafa reynst
honum ofviða og ef hann getur
ómögulega gert við hlutinn þá
reynir hann að útvega annan í
verkið. Þannig er Jón. Honum
finnst gaman að glíma við hluti.
Starfið hefur verið fjölbreytt að hans
sögn og allur fjárinn sem kemur
inn á borð hjá honum. Hann lagar
alls kyns vörur og þá sérstaklega úr
leðri, t.d. töskur og jakka. Hann er
nú að verða 85 ára gamall og segist
þurfa að fara að taka því rólega. „Ég
finn mér eitthvað að gera,“ segir
hann. Það eru komnar nokkrar
kynslóðirnar sem hafa heimsótt
Jón og flestir bæjarbúar kannast
við hann. „Ég er svo heppinn að
vera ómannglöggur og þarf yfirleitt
að spyrja fólk að nafni,“ segir Jón
og skellir upp úr. „Sumir sverja sig
þó í ættina og þá man maður eftir
ömmum þeirra og öfum.“
Hefur haft gaman af lífinu
„Þetta er búið að vera ágætt, fínt.
Bara búið og gert,“ segir Jón eins og
hann nenni ekki að gera of mikið
mál úr þessu öllu saman. En finnst
honum ekkert skrítið að vera að
hætta. „Nei það tel ég ekki. Mér
hefur aldrei leiðst um dagana og
hef haft gaman af því að lifa. Það
verður þó óneitanlega sárt að hitta
ekki allt þetta fólk sem kemur að
heimsækja mann. Ég fer þó ennþá
upp í sundlaug á morgnana og þar
hitti ég alltaf ágætt fólk,“ en þar er
Jón víst hrókur alls fagnaðar.
Bestu kúnnarnir eru þeir sem
kaupa sér góða skó úr leðri að
mati Jóns. Þannig fólk eru bestu
og skemmtilegustu kúnnarnir.
„Þegar maður er svona mikið
innan um skó þá er það yfirleitt það
fyrsta sem maður tekur eftir í fari
fólks. Það gerist ósjálfrátt,“ segir
hann en ekki eru neinir sérstakir
skór í uppáhaldi hjá Jóni. „Loyds
hafa alltaf verið mjög góðir skór,
þægilegir og sterkir,“ segir hann.
Hjónin hafa verið með sumarbústað
í Biskupstungum síðan árið 1975
og þar fást þau við skógrækt
enda eru þau bæði með græna
fingur. Garðurinn við Skólaveg
ber þess einnig merki. Jón byggði
sumarbústaðinn sem er þeirra
griðarstaður og Guðrún segir að
hann geti hreinlega gert allt hann
Jón. Hvort sem það sé að gera við
vélar eða byggja hús, enda byggði
hann líka húsið við Skólaveginn.
Guðrún segir að Jón sé einn af
þessum mönnum sem verði alltaf
að vera að vinna. Honum finnist
hann verða að gera allt sjálfur.
Börnin þeirra hjóna eru fjögur
og barnabörnin eru orðin 14.
Enginn hefur þó fetað sömu braut
og Jón. „Við eigum orðið börn og
barnabörn í flestum starfsstéttum,
segir Jón. „Það eina sem vantar
orðið er prestur, sem getur séð um
að jarða okkur,“ segja hjónin og
hlægja en það er svo sannarlega
grunnt á skopskyni hjá hjónunum
sem eru enn afar ung í anda að því
er virðist.
KJÖRFUNDUR
vegna forsetakosninga í Sveitarfélaginu Vogum
30. júní 2012
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00
Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, gengið inn frá leikvelli.
Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna forsetakosninga liggur frammi
almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Víkurfréttir hafa flutt ritstjórnarskrifstofur
blaðsins að Krossmóa 4 í Reykjanesbæ
Jón og Siggi sem hefur lært af gamla „meistaranum“.
Guðrún í garðinum
sínum við Skólaveg.