Neytendablaðið - 01.06.2007, Síða 14
Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað í
umhverfismálum á síðustu árum og fólk
gerir sér betur grein fyrir því að ekki er
hægt að stefna að sjálfbærri þróun nema
að hver og einn líti í eigin barm og breyti
neyslumynstri sínu þannig að umhverfi
og samfélag njóti góðs af. Til marks um
breytta tíma leggja sífellt fleiri neytendur
áherslu á að tekið sé tillit til siðferðilegra
þátta við framleiðslu á neysluvörum.
Þessi krafa á ekki síst við um framleiðslu
á tískufatnaði og það er rík ástæða fyrir
því.
Framleiðsluhættir undir smásjána
Á níunda áratugnum fóru Vesturlandabúum
að berast fréttir af ömurlegum aðstæðum í
verksmiðjum sem framleiddu tískuvarning
fyrir þekkta framleiðendur. Uppljóstranir
fjölmiðla leiddu í ljós að tískuvarningur
sem seldur er á Vesturlöndum og auglýstur
af óaðfinnanlegum fyrirsætum á síðum
glanstímarita er oftar en ekki framleiddur
í verksmiðjum þar sem grundvallarvinnu-
réttur er ekki virtur. Þá er framleiðslan oft
svo óumhverfisvæn að verkafólk, hvort
sem það vinnur við bómullarræktun eða
við meðhöndlun efnanna á síðari stigum
framleiðslunnar, á á hættu að verða fyrir
alvarlegu heilsutjóni.
Neytendur bregðast við
Fyrstu viðbrögð neytenda voru að snið-
ganga þau fyrirtæki sem lentu í kastljósi
fjölmiðlanna. Flestir neytendur vissu þó
ekki í hvorn fótinn þeir áttu að stíga því
þótt stórir framleiðendur, eins og t.d.
Nike og Gap, hafi fengið slæma útreið
í fjölmiðlum er ekki þar með sagt að þeir
hafi staðið sig verr en önnur fyrirtæki.
Það er nær ógerningur fyrir neytendur
að átta sig á því hvort framleiðsluhættir
fyrirtækja eru ásættanlegir og fagurlega
orðaðar siðareglur virðast engin trygging
fyrir því. Fyrirtækin koma nefnilega oft
sjálf af fjöllum þegar slæmar aðstæður í
framleiðslulöndum eru afhjúpaðar. Tilraunir
margra fyrirtækja til að bæta ímynd sína og
sveipa hana siðrænum ljóma hafa auk þess
virkað ótrúverðugar í augum neytenda sem
vilja versla með góðri samvisku.
Sjálfbær tíska
Heilbrigður markaður svarar kröfum
neytenda og í dag hafa ótal framleiðendur
tekið upp á því að framleiða tískuvarning
undir siðrænum formerkjum. Fyrirtækin
eiga það sameiginlegt að nota umhverfis-
væn efni í framleiðsluna, t.d. lífrænt
ræktaða bómull og hamp, og verkafólki eru
tryggð mannsæmandi laun. Mörg fyrirtæki
fá vottun frá óháðum þriðja aðila (t.d..
Fairtrade Foundation og Soil Association)
en það verður mikilvægara eftir því sem
fleiri fyrirtæki ákveða að sveipa sig grænum
og siðferðilegum blæ.
Á tískuvikunni í London síðasta haust var í
fyrsta skipti sérstök sýning á „ethical labels“,
þ.e. siðrænni tísku, og fór hönnuðurinn
Katharine Hamnett þar fremst í flokki.
Valdið er okkar
Breska blaðið New Consumer fjallar um
siðrænan lífsstíl og ekki síst siðræna tísku.
Í nýlegu tölublaði er viðtal við Katharine
Hamnett sem hefur verið í fararbroddi
þessarar hreyfingar sem nú hefur fengið
verulegan meðbyr, sérstaklega í Bretlandi.
Fyrirsögn greinarinnar er „We shop there-
fore we rule“, eða „Við verslum og því er
valdið okkar“. Með þessum orðum vill
Hamnett leggja áherslu á mikilvægi þess
að neytendur geri þær kröfur til fyrirtækja
að þau stundi ábyrga framleiðsluhætti.
Neytendur hafi mikið vald og þeim beri að
nota það til góðs.
Róttækur hönnuður
Hamnett setti á fót eigin fatalínu árið
1979 og hefur alla tíð síðan farið sínar
eigin leiðir. Henni eru eignaðir svokallaðir
„mótmælabolir“, en árið 1983 setti hún
m.a. á markað boli með áletrununum á
Siðræn og sanngjörn tíska
Vakning eða tískubóla?
14 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2007