Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 6
Verkföll og eldgos
- hver er réttur flugfarþega?
Það sem af er þessu ári hafa flugfarþegar lent í ýmsum hremmingum.
Bæði hafa verið verkföll hér á landi og víðar og svo hafði eldgosið í
Eyjafjallajökli gríðarleg áhrif á samgöngur um Evrópu, en þúsundir
farþega voru strandaglópar vegna þess. Það eru ekki bara óþægindi
og vonbrigði sem fylgja því að komast ekki milli landa heldur getur
líka fylgt því mikill kostnaður. Um pakkaferðir (t.d. flug og bíl eða
flug og gistingu) gilda ákveðin lög en um réttindi flugfarþega gildir
sérstök Evrópureglugerð. Þar kemur m.a. fram að sé flugi aflýst
eiga farþegar rétt á að breyta flugleið eða fá endurgreitt. Jafnframt
þurfa flugfélög að bjóða farþegum upp á ýmiss konar aðstoð, t.a.m.
gistingu, ef flug tefst yfir nótt.
Ítarlegar upplýsingar um réttindi flugfarþega má finna á heimasíðu
Neytendasamtakanna, www.ns.is, undir ferðalög, og á www.
ena.is, en þar má einnig finna fréttatilkynningar og minnisblöð
sem Evrópubandalagið hefur gefið út um sama efni. Jafnframt
er félagsmönnum ráðlagt að hafa samband við leiðbeininga og
kvörtunarþjónustuna séu þeir í vafa um rétt sinn.
Ryk skemmir tölvur!
Hvað ber að varast?
Leiðbeininga og kvörtunarþjónustan fær mörg erindi vegna bilana
í tölvum sem eru komnar til vegna ryksöfnunar. Fartölvueigendur
ættu því að hafa eftirfarandi í huga:
Mikilvægt er að hafa hreinlegt í kringum tölvuna því ryk og
önnur óhreinindi geta stíflað viftur og þannig komið í veg fyrir að
tölvan kæli sig eðlilega. Einnig eru dæmi um að ryk hafi valdið
skammhlaupi. Margir nota fartölvuna sína uppi í rúmi og leggja
hana jafnvel ofan á sængina. Slíkt eykur líkur á rykmyndun auk
þess sem tölvan getur ofhitnað. Það sama getur gerst þegar fólk
situr með tölvuna í fanginu. Mikilvægt er því að hafa fartölvuna á
hentugum stað þar sem loftar vel um hana og ekki er mikið ryk í
loftinu, og gæta jafnframt að því að undirlagið sé gott.
10-11
11-11
Kjarval
Actavis
Apótekarinn
Apótekið
Atlantsolía
Bananar
Borgun
Bónus
Brimborg
Byko
Eimskip
elisabet.is
Frumherji
Hagkaup
Heilsuhúsið
Hekla
Húsasmiðjan
Iceland Express
Icelandair
IKEA
Ísfugl
Íslandsbanki
Íslandspóstur
Ístak
Kaskó
Kjarval
Krónan
Landsbankinn
Lyf og heilsa
Lyfja
Matfugl
N1
Nettó
Nova
Nóatún
Orkuveita Reykjavíkur
Penninn
Rúmfatalagerinn
Samkaup-Strax
Samkaup-Úrval
Samskip
Securitas
Síminn
Skeljungur
Sláturfélag Suðurlands
Tryggingamiðstöðin
Valitor
Vátryggingafélag Íslands
Vífilfell
Vínbúð
Vörður tryggingar hf.
Öryggismiðstöðin
Neytendastarf er í allra þágu
6 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2010