Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 2

Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 2
 NEYTENDABLA‹I‹ 2. tbl., 56. árg. – júní 2010 Útgefandi: Neytendasamtökin, Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík Sími: 545 1200 Fax: 545 1212 Veffang: www.ns.is Netfang: ns@ns.is Ábyrgðarmaður: Jóhannes Gunnarsson Ritstjóri: Brynhildur Pétursdóttir Ritnefnd: Jóhannes Gunnarsson, Þuríður Hjartardóttir, Hildigunnur Hafsteinsdóttir Umsjón með gæðakönnun á sparperum: Ian Watson Yfirlestur: Finnur Friðriksson Umbrot og hönnun: Uppheimar ehf. Prentun: GuðjónÓ ehf. – vistvæn prentsmiðja Forsíðumynd: Getty Images Seljendur verða að verðmerkja Upplag: 11.500 eintök, blaðið er sent öllum félagsmönnum í Neytendasamtökunum Ársáskrift: Árgjald Neytendasamtakanna er 4.500 krónur og innifalið í því er m.a. Neytendablaðið, 4 tölublöð á ári. Heimilt er að vitna í Neytendablaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið. Óheimilt er þó að birta heilar greinar eða töflur án leyfis Neytendasamtakanna. Upplýsingar úr Neytendablaðinu er óheimilt að nota í auglýsingum og við sölu nema skriflegt leyfi Neytendasamtakanna liggi fyrir. Lykilorð á heimasíðu: gras Leiðari ritstjóra 2 Leiðbeininga- og kvörtunarþjónustan 3 Húsnæðissamvinnufélög 4 Ryk skemmir tölvur 6 Pistill Björns Þorlákssonar 7 Rýnt í rannsóknarskýrsluna 8 Skaðsemi BPA 9 Frá formanni 13 Gæðakönnun á sparperum 14 Mikilvægi lýsingar 16 Gæðakönnun á garðsláttuvélum 18 Raforkumarkaður 21 Matvælafréttir 22 Efni Blaðið er prentað á umhverfisvænan hátt. Brynhildur Pétursdóttir Kostnaði velt yfir á neytendur Þegar hugmyndir eru uppi um lagabreytingar sem geta verið íþyngjandi fyrir seljendur eru þeir fljótir að benda á að allur aukakostnaður sem fyrirtæki verða fyrir fari óhjá­ kvæmi lega út í verðlagið. Neytendur borgi því brúsann á endanum. Í ljósi þessa er auð vitað mjög mikilvægt fyrir neytendur að fyrirtæki á neytendamarkaði séu vel rekin. Margar verslanir keppast um að vera með sem lengstan opnunartíma, rétt eins og það sé hávær asta krafa neytenda. Furðu margar verslanir eru með opið allan sólarhringinn og mjög margar hafa opið á sunnudögum. Ég hef aldrei heyrt fólk kvarta þótt verslun sé lokuð á sunnudegi en ég hef aftur á móti fengið kvartanir frá fólki sem hafði fengið rang ar upplýsingar hjá afleysingarmanni í sérvöruverslun á sunnudegi. Kannski var ein hver forsenda fyrir þessum opnunartíma í uppgangi síðustu ára en ég stórefast um að hún sé enn til staðar. Óhóf í auglýsingum og markaðssetningu og leikir og happdrætti eru líka atriði sem ég set spurningarmerki við. Mér finnst stundum fyrirtæki eyða meira púðri í að krækja í nýja við skiptavini en að veita þeim sem fyrir eru úrvalsþjónustu. Gott orðspor hlýtur jú að vera besta auglýsingin. Margar verslanir og verslunarkeðjur lögðu á síðustu árum ofuráherslu á að opna nýjar versl an ir og þá virtist einu skipta hvort rekstur þeirra sem fyrir voru stæði bærilega undir sér eða ekki. Ég hef furðað mig mjög á þessari þróun sem virðist byggja á því viðhorfi að neytendur séu eins og villuráfandi sauðir sem fyrir tilviljun rambi inn á næsta sölustað hvort sem þeir eiga þangað erindi eða ekki. Það má eiginlega segja að mörg fyrirtæki hafi alls ekki treyst á viðskiptavildina sem þó var svo hátt skráð í bókhaldinu. Ör vöxtur fyrirtækja á smásölumarkaði var að mestu leyti keyrður áfram á lánsfé og að sjálfsögðu er fjármagnskostnaðinum velt áfram út í verðlagið. Fyrir utan kostn aðinn sem þessu fylgir hefði ég haldið að það væri betra að vera með færri sölustaði því þá verða viðskiptavinirnir sýnilegri. „Fyrst allt þetta fólk er hérna hlýtur eitthvað spennandi að vera í boði,“ hugsa ég alltaf þegar ég kem inn í verslun sem iðar af lífi. Við þurfum sem sagt á vel reknum fyrirtækjum að halda og sem betur fer eru þau til. Vitleysis gangur undanfarinna ára er vonandi á undanhaldi því við höfum heinlega ekki efni á því að skuldsett eða illa rekin fyrirtæki velti kostnaði út í verðlagið. Við gerum því rétt í að beina viðskiptum okkar til fyrirtækja sem sýna ábyrgð í rekstri. 2 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2010

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.