Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 12

Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 12
Við vitum að umhverfisvottaðar vörur eru betri en aðrar vörur fyrir umhverfið og heilsuna en hvers vegna skyldi þá eftirspurnin eftir þessum vör um ekki vera meiri en raun ber vitni? Getur verið að vör ur með vottuðu um hverf is merki, eins og norræna svan inum, séu einfaldlega of dýr ar? Neytendasamtökin ákváðu að kanna mál ið og skoð uðu verð á uppþvottaefni, uppþvotta legi, bleyj um, blautklútum, uppþvotta efni, salernis­ hreinsi og sjampói í 7 versl unum; Nettó, Hagkaupum, Bónus, Sam kaup um Úr vali, Fjarðar kaupum og Nóta túni. Verð á svansmerktum vörum var borið saman við verð á „venju legum“ vör um og var niðurstaðan sú að svans merktar vörur væru ekki dýrari á heildina litið. Til dæmis voru Libero­bleyjur með svans­ merkinu á sama verði eða ódýrari en Pampers­bleyjur. Svans­ merktar blautþurrkur voru allajafna dýr ari en venjulegar en allur gangur var á því hvar vörur eins og þvotta efni, uppþvottalögur, upp þvotta efni og salernishreinsir lentu á verð skalanum. Stundum voru svans merktar vörur með þeim ódýrustu og stundum í dýrari kant inum. Að öllu saman lögðu ætti verð þó greinilega ekki að vera nein fyrirstaða vilji fólk gera umhverfisvæn innkaup. Úrvalið af svans merktum hrein lætis­ og snyrtivörum var ágætt en þó nokkuð mis munandi eftir versl unum. Úrvalið var minnst í Krónuninni og Nóa túni en ágætt í hin um verslununum. Niðurstöðurnar má sjá á www.ns.is Eyddu þér út af vefnum Ef þú ert að endurskoða líf þitt og ert orðin/n þreytt/ur á þeirri tímasugu sem internetið getur verið þá er kannski ráð að fá sér forritið Web 2.0 Suicide Machine. Forritið er hannað til að eyða viðveru notenda á t.d. samskiptasíðunum Facebook, Twitter og Myspace. Þú færir einfaldlega inn skráningarupplýsingar þínar og er þú ýtir á „commit“ eyðir forritið öllum upplýsingunum um þig. Forritið kom út í desember síðastliðnum og verður sífellt vinsælla. Umhverfisvænn sími Markaðurinn fyrir umverfisvænar vörur er sífellt að stækka. Síðastliðið haust kom á markað umhverfisvænn sími frá Samsung, snjallsíminn Blue Earth. Sími þessi er útbúinn sólarrafhlöðu og hulst ur hans er búið til úr endurunnum plast flöskum. Í símanum er einnig svo kallað Eco Walk forrit sem reiknar út hversu mörgum trjám eigandi hans hefur bjargað með því að ganga í stað þess að keyra. Síminn er ekki fáanlegur á Íslandi ennþá, en á Írlandi kostar hann um 260 pund (50.000 kr.), sem er helsta gagn rýni sefnið. Það er vissulega fagnaðarefni að framleiddar séu fleiri umhverfisvænar vörur en þær þurfa einnig að vera á við ráðan legu verði svo neytendur geti tekið þátt í að bjarga um hverf inu burtséð frá efnahag. Heyrðu nú! Hver kannast ekki við að vera að horfa á skemmtilegan þátt í sjónvarpinu eða hlusta á gott lag í útvarpinu og þurfa svo að rjúka til og lækka í tækinu þegar auglýsingarnar byrja? Fyrir bandaríska þinginu liggur nú frumvarp sem tekur á þessu vandamáli og hefur það fengið góðar viðtökur í fulltrúadeildinni. Frumvarpið snýst um samþykktir og samvinnu við ljósvakamiðla við að búa til verklagsreglur til að taka á þessum hávaðamismun, en auglýsingar eiga ekki að vera með hærri hljóðstyrk en dagskráin sjálf. Eru svansmerktar vörur dýrari? – nei, nema síður sé 12 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2010

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.