Neytendablaðið - 01.06.2009, Blaðsíða 12
Matvælaframleiðendur hafa kynnt til sögunnar nýtt næringar-
merki, GDA (Guideline Daily Amount), sem að sögn framleið-
enda bætir upplýsingagjöf til neytenda. Neytendasamtök eru
hins vegar alfarið á móti þessu nýja merkjakerfi og segja það
beinlínis villandi.
Litlir skammtar
GDA merkið byggir á ákveðinni skammtastærð sem framleiðendur
ákveða sjálfir í stað þess að miða við 100 g eins og venja er.
Skammtarnir eru í mörgum tilfellum litlir og óraunhæfir og
sem dæmi er miðað við 250 ml af gosi (á 500 ml eða hálfs lítra
umbúðum) og 25 g af kartöfluflögum. Matvæli geta þar af leiðandi
litið út fyrir að vera hollari en þau raunverulega eru, því vitaskuld
fækkar hitaeiningum og sykur og fitumagnið minnkar eftir því
sem skammturinn er minni.
Ekki er þó alltaf miðað við sömu skammtastærð af sambærilegum
vörum sem flækir málið enn frekar og gerir allan samanburð erfiðan.
Til dæmis miðar fyrirtækið Toms við 25 g af súkkulaðinu Guld
barre en fyrirtækið Nestlé miðar við 17g skammt af súkkulaðinu
White Crunch.
Mjög misjafnt er hversu stóra skammta fólk borðar. Börn borða
minna en fullorðnir og karlar borða oft meira en konur. Það er því
með öllu óskiljanlegt að framleiðendur ákveði sjálfir skammtastærðir
sem eru jafnvel úr öllu samræmi við raunverulega neyslu.
Upplýsingar á 500 ml gosflösku miða við að drukknir séu 250 ml eða u.þ.b. eitt
glas. Ætli fæstir láti ekki staðar numið þar.
Ráðlagður dagskammtur . . . fyrir konu
Á GDAmerkingum er miðað við ráðlagða heildarneyslu á dag
hjá meðalkonu, eða 2000 kcal (kaloríur). Það segir sig þó sjálft
að neytendur eru af öllum stærðum og gerðum, á ýmsum aldri
og af báðum kynjum. Í raun má segja að merkingin sé einungis
gagnleg fyrir manneskju sem neytir 2000 kcal á dag og borðar
þær skammtastærðir sem merkingin miðar við. Mörg matvæli, s.s.
margar tegundir morgunkorns, eru framleidd með börn í huga.
Ráðlagður dagskammtur samkvæmt GDAmerkinu miðast þó alltaf
við fullorðinn einstakling og þar með verða þessar upplýsingar
fullkomlega gagnlausar ef þær eru ætlaðar börnum.
Sykurmagn
Eitt af því sem hefur verið harðlega gagnrýnt er framsetning
á sykurinnihaldi. Ekki er ráðlegt að viðbættur sykur veiti meira
en 10% af daglegri orkuþörf en það gerir að hámarki 50 g af
viðbættum sykri á dag sé miðað við manneskju sem borðar 2000
kcal. Í útreikningum á GDAmerkinu er hins vegar ekki gerður
greinarmunur á náttúrulegum sykri annars vegar (t.d. frúktósa
í epli og 100% hreinum ávaxtasafa) og viðbættum sykri hins
vegar og hafa framleiðendur hækkað viðmiðið úr 50 g í 90 g af
sykri á dag. Þetta er algerlega á skjön við opinberar ráðleggingar
og til þess fallið að rugla neytendur í ríminu því það er munur
á því hvort miðað er við 50 g eða 90 g af sykri þegar ráðlagður
hámarksskammtur af viðbættum sykri yfir daginn er reiknaður út.
Með þessum útúrsnúningi er samkvæmt GDAmerkingum meiri
sykur í einu epli en í 30 g af Frosties morgunkorni. Ávaxtasafi getur
einnig komið illa út, þ.e. litið út fyrir að innihalda meiri sykur en
t.d. sykraðir svaladrykkir eða gosdrykkir. Það er því eflaust ekki
tilviljun að framleiðendur hreinna ávaxtasafa setja yfirleitt ekki
GDAmerkið á sína vöru þar sem með því væri holl vara látin líta
út fyrir að vera óholl.
Sérfræðingar gagnrýna GDA
Það eru ekki einungis hagsmunasamtök neytenda sem hafa gagn
rýnt GDA merkjakerfið. Næringarfræðingurinn Elva Gísladóttir
starfar hjá Lýðheilsustöð. Í samtali við Neytendablaðið sagðist hún
telja GDA merkjakerfið mjög villandi fyrir neytendur og sagðist
vonast til að íslenskir framleiðendur færu ekki að nota þetta merki
í stórum stíl. Í sama streng tekur Ingibjörg Gunnarsdóttir doktor í
næringar og matvælafræði hjá Rannsóknarstofu í næringarfræði.
Hún segir alvarlegt að merkingar sem hannaðar eru af iðnaðinum
stangist á við opinberar ráðleggingar sbr. viðmið GDA þegar kemur
að viðbættum sykri.
Nýtt villandi matvælamerki
Ávextir innihalda ávaxtasykur sem alls ekki er hægt að setja í sama flokk og hvítan
sykur. GDA-merkingin gerir þó ekki greinarmun á viðbættum sykri og náttúrulegum
sykri.
Merkinu er ætlað að sýna hversu hátt hlutfall af ráðlögðum dagskammti tiltekinn
skammtur af matvælunum inniheldur.
1 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2009