Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2009, Blaðsíða 20

Neytendablaðið - 01.06.2009, Blaðsíða 20
Mikil umfjöllun hefur verið um tannheilsu íslenskra barna undan- farið. Neytendasamtökin könnuðu verð á þjónustu tannlækna og ákváðu að skoða sérstaklega verð á helstu liðum sem snúa að börnum, s.s. flúorburstun, röntgenmynd, tannhreinsun og áfanga- eftirliti. Svör bárust frá 104 tannlæknum og í ljós kom að verð- munur er oftar en ekki mjög mikill. Lesendur eru hvattir til að kynna sér málin betur á www.ns.is Dýr fræðsla Íslenskir tannlæknar virðast almennt standa sig vel og Neytenda­ samtökin fá ekki mörg mál sem snúa að þeim. Eitt af því sem foreldrar kvarta þó yfir er aðgerðarliðurinn „fræðsla“. Samkvæmt könnun Neytendasamtakanna innheimta langflestir tannlæknar gjald fyrir þennan lið og getur það slagað hátt í 4.000 krónur. Foreldrum sem fara reglulega með börnin til tannlæknis finnst súrt í broti að borga nokkur þúsund krónur fyrir fræðslu. Neytendasamtökin þekkja þess dæmi að forráðamenn barna hafi ekki verið spurðir að því sérstak­ lega hvort þeir vilji kaupa þessa þjónustu. Fastur liður í reikningi Faðir níu ára barns hafði samband við Neytendasamtökin. Hann hafði farið með barnið til nýs tannlæknis. Sá hafði skoðað tennurnar í barninu, talið þær og spjallað við barnið og foreldra þess meðan á heimsókninni stóð. Engar myndir voru teknar, engin flúorburstun eða neitt slíkt. Reikningurinn hljóðaði upp á 13.700 kr. Sundurliðun sýndi að skoðun kostaði 9.700 kr. og fræðsla 4.000 kr. Föðurnum fannst ansi hart að borga 4.000 kr. fyrir kurteislegt spjall. Aðspurður sagði tannlæknirinn að þetta væri fast gjald sem allir borguðu hvort sem þeir fengju fræðslu eða ekki. Gjaldið væri þó, að sögn tannlæknisins, einungis innheimt í fyrsta sinn sem barn kæmi í skoðun. Neytendasamtökin draga í efa lögmæti þess að tannlæknar innheimti fyrir þjónustu, sbr. fræðslu, sem ekki er veitt. Þá er sjálf­ sagt að foreldrar séu spurðir að því fyrirfram hvort þeir kjósi að borga fyrir fræðslu. Ef tannheilsa barnsins er almennt góð hlýtur að vera nægjanlegt að benda á fræðsluefni sem nálgast má ókeypis á vef Lýðheilsustöðvar. Fólk er eindregið hvatt til að spyrja tannlækna út í reikninginn og gera athugasemdir ef því finnst eitthvað óeðlilegt við hann. Ef fólk telur á sér brotið í samskiptum við tannlækna er hægt að senda mál fyrir úrskurðarnefnd Neytendasamtakanna og Tannlæknafélags Íslands. Könnun á verðlagi tannlækna Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um tannvernd, m.a. eru þar upplýsingar á erlendum tungumálum um tannvernd barna. 10-11 11-11 Actavis Apótekarinn Apótekið Atlantsolía ÁTVR Bananar Bensínorkan Borgun Bónus Brimborg Búr Byko elisabet.is Frumherji Hagkaup Heilsuhúsið Húsasmiðjan Iceland Express Icelandair IKEA Ísfugl Íslandspóstur Ístak Kaskó Kjarval Krónan Landsbankinn Lyf og heilsa Lyfja Matfugl MS N1 Nettó Nova Nóatún Orkuveita Reykjavíkur Penninn Rúmfatalagerinn SPARISJÓÐIRNIR Samkaup-Strax Samkaup-Úrval Samskip Securitas Síminn Skeljungur Sláturfélag Suðurlands Tal Tryggingamiðstöðin Valitor Vátryggingafélag Íslands Vífilfell Vodafone Vörður tryggingar hf 0 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2009

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.