Neytendablaðið - 01.09.2011, Síða 5
Leigjendaaðstoðin
Óánægja með bólstrun
Eldri hjón leituðu til leiðbeininga og kvörtunarþjónustunnar eftir
að þau höfðu látið bólstra gamlan leðurstól. Hjónin völdu nýtt
leður áklæði hjá bólstraranum, sem skipti einnig um svamp í stóln
um. Bólstrunin ásamt efni kostaði 120.000 kr.
Þegar hjónin fengu stólinn til baka voru þau ekki ánægð með
árangurinn. Stóllinn var talsvert öðruvísi en áður í útliti og var illa
bólstraður að mati hjónanna. Meðal annars voru saumar skakkir,
hauspúði of lágur og áklæðið illa strekkt. Nýi svampurinn var
of harður og lögun púða því talsvert öðruvísi en áður. Hjónin
kvörtuðu við bólstrarann sem sagði að stóllinn myndi mýkjast upp
með tímanum, ef ekki gæti hann ef til vill sett eitthvað mýkra inn
í hann.
Hjónin voru ekki ánægð með þessa niðurstöðu. Leituðu þau því til
tveggja hlut lausra fagaðila og var það mat þeirra beggja að bólstrun
stólsins væri ekki í lagi.
Neytendasamtökin höfðu í kjölfarið samband við bólstrarann og
eftir nokkur símtöl samþykkti hann að greiða öðrum bólstrara fyrir
að laga stólinn. Hjónin voru þó ekki sátt við þá niðurstöðu þar sem
þau töldu að stóllinn yrði aldrei góður þrátt fyrir viðgerð og kom
þar einnig til að þau voru óánægð með nýja áklæðið, sem þau
höfðu þó valið sjálf. Þau óskuðu einnig eftir að fá gömlu púðana
til baka þar sem þeim fannst lögunin á þeim nýju óásættanleg. Þau
vildu helst láta bólstra stólinn upp á nýtt hjá öðrum fagaðila. Að
lok um sættust allir aðilar á endurgreiðslu að hluta ásamt því að
hjón in fengu gömlu púðana til baka.
Neytendasamtökin hafa nú tekið að sér rekstur leigjendaaðstoðar
með samningi við velferðarráðuneytið. Mikil eftirspurn hefur verið
eftir slíkri aðstoð og er mikið leitað til samtakanna vegna leigumála.
Hér má sjá dæmi um fyrirspurnir frá leigjendum.
Munnlegur leigusamningur
Leigjandi hafði leigt íbúð í rúm tvö ár en aldrei hafði verið gerður
skriflegur leigusamningur. Húsaleigan var hagstæð og þegar leigu
sali vildi hækka leiguna vildi leigjandinn ekki una því. Leigusalinn
fann þá nýja leigjendur sem voru tilbúnir að borga meira og
til kynnti leigjandanum að hann þyrfti að rýma íbúðina.
Þegar ekki er gerður skriflegur leigusamningur teljast aðilar hafa
gert með sér ótímabundinn samning og gilda öll ákvæði húsa leigu
laga um slíka samninga. Um fjárhæð leigunnar gildir þá sú regla
að hún telst sú fjárhæð sem leigusali getur sýnt fram á að leigj
andi hafi samþykkt. Leigjandinn í þessu tilviki hafði greitt sömu
fjárhæð athugasemdalaust allan leigutímann og því taldist fjárhæð
leigunnar vera sú upphæð. Þar sem um munnlegan, og þar með
ótímabundinn, leigusamning var að ræða var hann einnig með 6
mánaða uppsagnarfresti þannig að leigusalinn gat ekki gert leigj
and anum að rýma íbúðina með minni fyrirvara heldur varð að
segja samningnum upp með réttum hætti.
Tímabundinn samningur
Leigjandi sem hafði gert tímabundinn leigusamning óskaði
upp lýsinga um hvernig hann gæti losnað undan samningnum, en
ýmsar ástæður voru fyrir því að húsnæðið hentaði ekki lengur.
Sam kvæmt húsaleigulögum eru tímabundnir leigusamningar
óupp segjanlegir, þ.e. leigjandi og leigusali eru báðir bundnir við
samn inginn út leigutímann. Hins vegar er heimilt að semja um
að leigutíma ljúki fyrr en leigusamningur gerir ráð fyrir ef báðir
aðilar eru sammála um það. Nauðsynlegt er að slíkt samkomulag
sé skriflegt og vottað til að það hafi gildi gagnvart báðum aðilum
og til að hægt sé að sýna fram á efni samkomulagsins. Það er því
mikilvægt, ef leigjandi sem gert hefur tímabundinn leigusamning
vill losna undan honum, að hafa samband við leigusalann og reyna
að komast að samkomulagi um lok leigutímans.
Sjá ýtarlegar upplýsingar um húsaleigumál á www.ns.is undir leigjendur
5 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011