Neytendablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 8
3D – Ekki þess virði?
Í sumum dýrum sjónvarptækjum er hægt að horfa á þrívíddar
myndir. Hér eru tvenns konar kerfi til; „Active” og „Passive”.
„Active“ þrívídd er algengust en það þarf dýr og þung gleraugu til
að horfa á þess háttar efni. „Passive“ þrívídd hefur ekki eins góð
mynd gæði en gleraugun eru létt og ódýr. Hvort þrívídd er bara
ómerki leg brella er kannski smekksatriði en hún borgar sig sjaldnast
fyrir neytendur. Þá er frekar lítið myndefni til í þrívídd.
Aðrir eiginleikar
Það borgar sig að skoða markaðinn vel áður en sjónvarpstækið er
keypt. Þetta eru flókin tæki og geta boðið uppá ýmsa auka mögu
leika sem skipta máli. Er hægt að tengja sjónvarp við hátalara í
stof unni, eða við heyrnartól? Getur sjónvarpið sýnt heimatilbúnar
kvik myndir eða annað efni úr tölvunni þinni? Eða spilað tónlist
eða sýnt ljósmyndir af USBminniskubbi? Sum sjónvörp eru jafn
vel með nettengingu og vafra til að skoða netið. Önnur eru með
inn byggðan upptökumöguleika, annað hvort í gegnum harðan disk
eða USBtengi. Það þarf stundum þolinmæði og þrautseigju til að
fá svör við þessum spurningum í versluninni.
Tölvuskjár eða sjónvarp?
Tölvuskjár er venjulega miklu ódýrari en sjónvarp af sömu stærð.
Hvað fær maður þá með sjónvarpi sem maður fær ekki með tölvu
skjá? Er það þess virði að borga miklu meira fyrir sjónvarp? Getur
tölvu skjárinn komið í staðinn fyrir sjónvarp?
Aðalmunurinn á tölvuskjá og sjónvarpi er að sjónvarp er með
inn byggðan TVtuner (viðtæki) sem býr til mynd úr því sem sjón
varpið fær frá símafyrirtæki, gervihnattadiski eða loftneti. Þar
að auki eru sjónvörp með innbyggða hátalara og oftast fleiri
inn stungur og tengingar fyrir önnur tæki. Sjónvarpið er með
sér stakt stýrikerfi til að stjórna öllu og þarf ekki alltaf að vera tengt
við tölvu til að sýna myndefni.
Hins vegar er hægt að nota tölvuskjá sem eins konar sjónvarp með
því að kaupa viðtæki og tengja það við tölvuna. Það er alltaf hægt
að spila DVDdiska í gegnum tölvu og til eru mörg tölvuforrit til
að vinna með kvikmyndir og myndefni. Á sama hátt eru sjónvörp
að færast nær og nær því að vera tölvur, t.d. með því að bæta við
upptökumöguleika eða nettengingu.
Ef þú notar sjónvarp eingöngu til að horfa á fréttir og DVDdiska
geturðu tengt tölvu (e.t.v. gamla tölvu) við tölvuskjá og þarft ekki
sjónvarp. En ef þú horfir mikið á efni sem er ekki á netinu, t.d.
íþróttir, eða ef þér finnst það bara hentugt að hafa alla möguleika í
einu tæki þá er það góð ákvörðun að kaupa sjónvarp.
Neytendastarf er í allra þágu
10-11
11-11
Actavis
Apótekið
Arion banki
Atlantsolía
Bananar
Borgun
Bónus
BT
Byko
Eimskip
elisabet.is
Frumherji
Fönix
Hagkaup
Hátækni
Heilsuhúsið
Húsasmiðjan
Iceland Express
Icelandair
IKEA
Ísfugl
Íslandsbanki
Íslandspóstur
Kaskó
Kjarval
Krónan
Landsbankinn
Lyfja
Matfugl
N1
Nettó
Nóatún
Office 1
Orkan
Ormsson
Penninn
Rúmfatalagerinn
Rönning
Samkaup-Strax
Samkaup-Úrval
Samskip
Samsung setrið
Securitas
Shell
Síminn
Sláturfélag Suðurlands
Sölufélag garðyrkjumanna
Tal
Tryggingamiðstöðin
Valitor
Vátryggingafélag Íslands
Vífilfell
Vínbúð
Vodafone
Vörður tryggingar
Öryggismiðstöðin
8 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011