Neytendablaðið - 01.09.2011, Qupperneq 14
Hvernig gallabuxur velur þú?
– könnun á samfélagslegri ábyrgð
Slitsterkar buxur úr denimefni voru upphaflega framleiddar
fyrir verkafólk í Bandaríkjun um en náðu vinsældum meðal
unglinga eftir að James Dean klæddist einum slíkum í myndinni
Rebel Without a Cause. Vinsældir gallabuxna hafa síst farið
minnkandi og í dag seljast hátt í 400 milljón gallabuxur á ári
hverju í Evrópu.
Framleiðsla í fjarlægum löndum
Framleiðsla á tískuvarningi hefur að miklu leyti verið flutt til fjar
lægra landa þar sem framleiðslukostnaður er lægri en á Vestur
lönd um. Aðstæður í verksmiðjum eru þar oft langt frá því sem við
mynd um telja ásættanlegar. Réttindi verkafólks eru ekki virt og því
er jafn vel meinað að vera í verkalýðsfélagi. Einnig eru notuð ýmis
skað leg efni við framleiðsluna sem starfsfólki getur stafað hætta
af ef ekki er vel staðið að öryggismálum. Þá er mengun frá verk
smiðj um oft vandamál.
Margir vilja ekki taka þátt
Flest fyrirtæki hafa sett sér stefnu þegar kemur að samfélagslegri
ábyrgð (CSR eða Corporate Social Responsibility). Reynslan hefur
þó sýnt að allur gangur er á því hvort og hvernig stefnunni er fylgt.
Neytendasamtök í Evrópu ákváðu að kanna samfélagslega ábyrgð
nokkurra þekktra gallabuxnaframleiðenda. Haft var samband við
15 framleiðendur sem selja vörur sínar í Evrópu og þeim sendir
spurningalistar. Þá var farið í heimsókn í verksmiðjurnar til að
kanna raunverulegar aðstæður. Af 15 gallabuxnaframleiðendum
sem valdir höfðu verið vildu einungis 6 taka þátt. Meðal fyrirtækja
sem neituðu að taka þátt eru framleiðendur þekktra merkja, svo sem
Diesel, Boss Orange, Lee Jeans og Wrangler. Aðrir framleiðendur
sem fá falleinkunn eru Salsa, 7 for all mankind, Kik, Jeans Fritz og
Kuyichi.
Aðstæður víða óviðunandi
Aðstæður starfsfólks í gallabuxnaverksmiðjum eru ekki öfunds
verðar. Í vettvangskönnunum kom í ljós að algengt er að unnið
sé 13 daga í röð án frídags og án þess að yfirvinna sé greidd. Þá
eru dæmi um að starfsfólk fái enga launaseðla og því borið við að
það skilji hvort eð er ekki það sem stendur á seðlinum. Þá fundust
sígarettustubbar í lagerrými þar sem eldfim efni voru geymd og
einnig kom í ljós að aðeins í þriðju hverri verksmiðju höfðu verið
haldnar brunaæfingar. Mikið er notað af varasömum efnum á
síðasta stigi framleiðslunnar. Þar sem þessi vinnsla fer fram er oft
skortur á loftræsingu og öryggiseftirliti ábótavant. Höfðu sumir
starfsmenn á orði að þessi óvinsælu störf væru yfirleitt unnin af
nýliðum sem gerðu sér ekki grein fyrir áhættunni.
14 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2011