Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.05.2012, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 16.05.2012, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGURINN 16. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR útspark Ómar JÓhannsson Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn. Umtalaðasti knattspyrnU- leikUr sögUnnar Ég er svo lánsamur að hafa spilað frægasta leik íslenskrar knatt- spyrnu síðan Ísland lá 14-2 gegn Dönum fyrir um það bil 100 árum síðan. Ég er ekki að tala um bikarúrslitaleikinn 2006 eða síðasta leik tímabilsins 2008. Ekki var ég fæddur árin sem Keflavík varð Íslandsmeistari þannig að ekki eru það leikir frá þeim tíma. Ég er að tala um leikinn uppi á Skaga árið 2007. Enginn leikur sem ég hef spilað eða mun spila hefur fengið jafn mikla umfjöllun og sá leikur. Ekki nóg með það að umfjöllun um leikinn hafi verið í öllum miðlun landsins og ekki bara í íþróttamiðlum heldur einnig í Kastljósi og öðrum fréttatengdum þáttum. Spjallborðin loguðu gjörsamlega og allir höfðu skoðun á þessu. Nú er þessi leikur líka rifjaður upp í tíma og ótíma ennþá í dag öllum til mikillar ánægju og yndisauka. Ef það er einhver Íslendingur sem veit ekki um hvað ég er að tala þá verður þetta atvik bráðlega rifjað upp í sögu 203 í framhalds- skólum landsins. Leikmaður ÍA liggur meiddur og við spörkum boltanum út af. Venjan er að skila boltanum til liðsins sem í dreng- skap spyrnir boltanum út af. Það mistókst hrapalega hjá þeim og spörkuðu þeir boltanum beint í markið okkar. Þvílíkt „tjong“! Við urðum reiðir vegna þess að okkur fannst svindlað á okkur og vildum fá að skora mark (svona atvik eru oft leyst á þann veg). Vegna þess að við urðum reiðir vildu þeir hins vegar ekki leyfa okkur að skora. Einhvern veginn fór umræðan að snúast um þessi ofsafengnu viðbrögð okkar. Ef myndir úr leiknum eru skoð- aðar sést vel að við urðum reiðir en engin högg, spörk eða annað verra fer á milli liðanna. Eftir að hafa spáð vel og lengi í þessu atviki hef ég komist að niður- stöðu um hvernig við hefðum átt að bregðast við. Eftir að þeirra maður varð fyrir því óláni að skora þetta fallega mark hefðum við allir átt að hlaupa til hans og fagna því með honum. Bæði lið hefðu getað sameinast í risastóru Rambófagni að hætti Stjörnunnar. Hjóla- eða klósettfagnið hefði líka verið flott. Þá hefði þjálfarinn þeirra orðið svo ánægður að hann hefði leyft okkur að skora tvö mörk. Við hefðum á móti leyft þeim að skora eitt fyrir þennan fallega gjörning. Eftir leik hefði svo verið hægt að fara saman á dansiball þar sem allir myndu enda á trúnó. Líklegast myndi Baltazar Kormákur gera mynd um þetta, sem seinna yrði seld til Hollywood. Þar yrði hún að minnsta kosti 50 vikur á toppnum yfir mest sóttu myndir bíóhúsa Bandaríkjanna. Ef þú lætur ekki vita þegar þér finnst á þér brotið ertu í vand- ræðum. Ég veit vel að það eru engar skrifaðar reglur um að skila boltanum þegar hitt liðið sparkar honum út af til að hlúa að leik- manni. Það eru heldur engar skrifaðar reglur um að standa í röð í Nettó. Þú verður samt reiður ef einhver ryðst fram fyrir þig. Óskrifaðar reglur eru nefnilega líka reglur. Kannski ætlaði þeirra maður ekki að skora. Kannski gleymdi hann að segja djók þegar hann var búinn að skora. Fólk má hafa sína skoðun á því. Mér finnst hins vegar ósanngjarnt að ætlast til þes að við tökum því sem sjálfsögðum hlut þegar á okkur er brotið. Óteljandi tímar, blóð, sviti og tár hafa farið í fótboltaspark hjá okkur. Maður vill ekki að það sé troðist fram fyrir í röðinnni eftir allt það. Við urðum reiðir og það skiljanlega að mínu mati, en við héldum okkur réttu megin við strikið. Á endanum hlýtur það samt að vera mikill heiður að hafa tekið þátt í frægasta leik seinni ára á Íslandi. Fjölbrautaskóli Suðurnesja Innritun eldri nemenda stendur nú yr og lýkur 31. maí. Sótt er um á menntagatt.is. Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður upp á ölbreytt námsframboð bæði verknám, starfsnám og bóknám. Í haust verður einnig boðið upp á nám á afreksíþróttabraut ef næg þátttaka fæst. Rétt er að benda á nokkrar nýjar starfsnámsbrautir, eins og heilbrigðis- og félagsþjónustubraut, verslunar- og þjónustubraut og tölvuþjónustubraut. Einnig er ráðgert að bjóða upp á nám í „Smiðjum“ sem getur verið góður kostur fyrir þá sem vilja hea nám að nýju í framhaldsskóla. Smiðjurnar eru blanda af bóknámi og einstaklingsmiðuðu verk- eða listnámi. Um er að ræða bátasmiðju, bílasmiðju, listasmiðju o.. Á heimasíðu skólans www.fss.is má fá frekari upplýsingar um námið. Við viljum minna á að umsóknarfrestur um skólavist fyrir nýnema er til 8. júní. Nánari upplýsingar og aðstoð við innritun má fá hjá námsráðgjöfum skólans. Hægt er að panta tíma á skrifstofunni í síma 421-3100 Skólameistari Innritun AÐALFUNDUR Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum verður haldinn fimmtudaginn 24. maí 2012, að Hólmgarði 2c, 230 Reykjanesbæ, kl. 20:00. Fundarefni: Skýrsla stjórnar Afgreiðsla endurskoðaðra reikninga Lagabreytingar Kosning stjórnar Kosning tveggja endurskoðenda / skoðunarmanna reikninga Önnur mál Stjórnin Fagleg ábyrgð Lokahóf KKÍ fór fram í Stap-anum um síðastliðna helgi. Suðurnesjamenn sópuðu til sín verðlaunum að vanda en meðal verðlaunahafa voru Pálína Gunnlaugsdóttir sem var bæði valin best í kvennadeildinni og besti varnarmaðurinn. Bestu þjálfarar komu úr Íslands- meistaraliðum Grindavíkur og Njarðvíkur og Elvar Már Frið- riksson úr Njarðvík var valinn besti ungi leikmaðurinn. Eftir- talin verðlaun voru veitt fyrir keppnistímabilið 2011-2012: Bestu erlendu leikmenn IEX deilda: Besti erlendi leikmaður í Iceland Express-deild kvenna: Lele Hardy - Njarðvík Besti erlendi leikmaður í Iceland Express-deild karla: J´Nathan Bullock - Grindavík Bestu varnarmenn IEX deilda: Besti varnarmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna: Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík Besti varnarmaðurinn í Iceland Express-deild karla: Guðmundur Jónsson – Þór Þorlákshöfn Besti ungi leikmaðurinn í Iceland Express-deild karla: Elvar Már Friðriksson - Njarðvík Besti dómari í Iceland Express-deildum: Jón Guðmundsson Keflavík Besti þjálfari í Iceland Express-deild karla: Helgi Jónas Guðfinnsson – Grindavík Besti þjálfari í Iceland Express-deild kvenna: Sverrir Þór Sverrisson - Njarðvík Úrvalslið Iceland Express- deildar karla og kvenna: Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík Magnús Þór Gunnarsson – Keflavík Petrúnella Skúladóttir - Njarðvík Sigurður Gunnar Þorsteinsson- Grindavík Besti leikmaður í Iceland Express-deildar kvenna: Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík Suðurnesjamenn farsælir í lokahófi KKÍ Auglýsingasíminn er 421 0001

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.