Víkurfréttir - 16.05.2012, Page 14
14 MIÐVIKUDAGURINN 16. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
útspark Ómar JÓhannsson
Ómar Jóhannsson, markvörður og
starfsmaður í Fríhöfninni sparkar
pennanum fram á ritvöllinn.
Umtalaðasti
knattspyrnU-
leikUr sögUnnar
Ég er svo lánsamur að hafa spilað frægasta leik íslenskrar knatt-
spyrnu síðan Ísland lá 14-2 gegn Dönum fyrir um það bil 100 árum
síðan. Ég er ekki að tala um bikarúrslitaleikinn 2006 eða síðasta
leik tímabilsins 2008. Ekki var ég fæddur árin sem Keflavík varð
Íslandsmeistari þannig að ekki eru það leikir frá þeim tíma. Ég
er að tala um leikinn uppi á Skaga árið 2007. Enginn leikur sem
ég hef spilað eða mun spila hefur fengið jafn mikla umfjöllun og
sá leikur. Ekki nóg með það að umfjöllun um leikinn hafi verið í
öllum miðlun landsins og ekki bara í íþróttamiðlum heldur einnig
í Kastljósi og öðrum fréttatengdum þáttum. Spjallborðin loguðu
gjörsamlega og allir höfðu skoðun á þessu. Nú er þessi leikur líka
rifjaður upp í tíma og ótíma ennþá í dag öllum til mikillar ánægju
og yndisauka.
Ef það er einhver Íslendingur sem veit ekki um hvað ég er að tala
þá verður þetta atvik bráðlega rifjað upp í sögu 203 í framhalds-
skólum landsins. Leikmaður ÍA liggur meiddur og við spörkum
boltanum út af. Venjan er að skila boltanum til liðsins sem í dreng-
skap spyrnir boltanum út af. Það mistókst hrapalega hjá þeim
og spörkuðu þeir boltanum beint í markið okkar. Þvílíkt „tjong“!
Við urðum reiðir vegna þess að okkur fannst svindlað á okkur og
vildum fá að skora mark (svona atvik eru oft leyst á þann veg).
Vegna þess að við urðum reiðir vildu þeir hins vegar ekki leyfa
okkur að skora. Einhvern veginn fór umræðan að snúast um
þessi ofsafengnu viðbrögð okkar. Ef myndir úr leiknum eru skoð-
aðar sést vel að við urðum reiðir en engin högg, spörk eða annað
verra fer á milli liðanna.
Eftir að hafa spáð vel og lengi í þessu atviki hef ég komist að niður-
stöðu um hvernig við hefðum átt að bregðast við. Eftir að þeirra
maður varð fyrir því óláni að skora þetta fallega mark hefðum við
allir átt að hlaupa til hans og fagna því með honum. Bæði lið hefðu
getað sameinast í risastóru Rambófagni að hætti Stjörnunnar.
Hjóla- eða klósettfagnið hefði líka verið flott. Þá hefði þjálfarinn
þeirra orðið svo ánægður að hann hefði leyft okkur að skora tvö
mörk. Við hefðum á móti leyft þeim að skora eitt fyrir þennan
fallega gjörning. Eftir leik hefði svo verið hægt að fara saman
á dansiball þar sem allir myndu enda á trúnó. Líklegast myndi
Baltazar Kormákur gera mynd um þetta, sem seinna yrði seld til
Hollywood. Þar yrði hún að minnsta kosti 50 vikur á toppnum yfir
mest sóttu myndir bíóhúsa Bandaríkjanna.
Ef þú lætur ekki vita þegar þér finnst á þér brotið ertu í vand-
ræðum. Ég veit vel að það eru engar skrifaðar reglur um að skila
boltanum þegar hitt liðið sparkar honum út af til að hlúa að leik-
manni. Það eru heldur engar skrifaðar reglur um að standa í röð
í Nettó. Þú verður samt reiður ef einhver ryðst fram fyrir þig.
Óskrifaðar reglur eru nefnilega líka reglur. Kannski ætlaði þeirra
maður ekki að skora. Kannski gleymdi hann að segja djók þegar
hann var búinn að skora. Fólk má hafa sína skoðun á því. Mér
finnst hins vegar ósanngjarnt að ætlast til þes að við tökum því
sem sjálfsögðum hlut þegar á okkur er brotið. Óteljandi tímar, blóð,
sviti og tár hafa farið í fótboltaspark hjá okkur. Maður vill ekki að
það sé troðist fram fyrir í röðinnni eftir allt það. Við urðum reiðir
og það skiljanlega að mínu mati, en við héldum okkur réttu megin
við strikið. Á endanum hlýtur það samt að vera mikill heiður að
hafa tekið þátt í frægasta leik seinni ára á Íslandi.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Innritun eldri nemenda stendur nú yr og lýkur 31. maí.
Sótt er um á menntagatt.is.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja býður upp á ölbreytt námsframboð bæði
verknám, starfsnám og bóknám. Í haust verður einnig boðið upp á nám á
afreksíþróttabraut ef næg þátttaka fæst.
Rétt er að benda á nokkrar nýjar starfsnámsbrautir, eins og heilbrigðis- og
félagsþjónustubraut, verslunar- og þjónustubraut og tölvuþjónustubraut.
Einnig er ráðgert að bjóða upp á nám í „Smiðjum“ sem getur verið góður kostur
fyrir þá sem vilja hea nám að nýju í framhaldsskóla. Smiðjurnar eru blanda af
bóknámi og einstaklingsmiðuðu verk- eða listnámi. Um er að ræða bátasmiðju,
bílasmiðju, listasmiðju o.. Á heimasíðu skólans www.fss.is má fá frekari
upplýsingar um námið.
Við viljum minna á að umsóknarfrestur um skólavist fyrir nýnema er til 8. júní.
Nánari upplýsingar og aðstoð við innritun má fá hjá námsráðgjöfum skólans.
Hægt er að panta tíma á skrifstofunni í síma 421-3100
Skólameistari
Innritun
AÐALFUNDUR
Meistarafélags byggingamanna á Suðurnesjum verður
haldinn fimmtudaginn 24. maí 2012, að Hólmgarði 2c,
230 Reykjanesbæ, kl. 20:00.
Fundarefni:
Skýrsla stjórnar
Afgreiðsla endurskoðaðra reikninga
Lagabreytingar
Kosning stjórnar
Kosning tveggja endurskoðenda / skoðunarmanna reikninga
Önnur mál
Stjórnin
Fagleg ábyrgð
Lokahóf KKÍ fór fram í Stap-anum um síðastliðna helgi.
Suðurnesjamenn sópuðu til sín
verðlaunum að vanda en meðal
verðlaunahafa voru Pálína
Gunnlaugsdóttir sem var bæði
valin best í kvennadeildinni og
besti varnarmaðurinn. Bestu
þjálfarar komu úr Íslands-
meistaraliðum Grindavíkur og
Njarðvíkur og Elvar Már Frið-
riksson úr Njarðvík var valinn
besti ungi leikmaðurinn. Eftir-
talin verðlaun voru veitt fyrir
keppnistímabilið 2011-2012:
Bestu erlendu leikmenn
IEX deilda:
Besti erlendi leikmaður í
Iceland Express-deild kvenna:
Lele Hardy - Njarðvík
Besti erlendi leikmaður í
Iceland Express-deild karla:
J´Nathan Bullock - Grindavík
Bestu varnarmenn IEX deilda:
Besti varnarmaðurinn í Iceland
Express-deild kvenna:
Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík
Besti varnarmaðurinn í
Iceland Express-deild karla:
Guðmundur Jónsson –
Þór Þorlákshöfn
Besti ungi leikmaðurinn í
Iceland Express-deild karla:
Elvar Már Friðriksson - Njarðvík
Besti dómari í Iceland
Express-deildum:
Jón Guðmundsson Keflavík
Besti þjálfari í Iceland
Express-deild karla:
Helgi Jónas Guðfinnsson – Grindavík
Besti þjálfari í Iceland
Express-deild kvenna:
Sverrir Þór Sverrisson - Njarðvík
Úrvalslið Iceland Express-
deildar karla og kvenna:
Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík
Magnús Þór Gunnarsson – Keflavík
Petrúnella Skúladóttir - Njarðvík
Sigurður Gunnar
Þorsteinsson- Grindavík
Besti leikmaður í Iceland
Express-deildar kvenna:
Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík
Suðurnesjamenn farsælir í lokahófi KKÍ
Auglýsingasíminn er 421 0001