Víkurfréttir - 05.07.2012, Síða 2
FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 • VÍKURFRÉTTIR2
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
GRIKKLANDS-TÓNLEIKAR
LÉTTSVEITARINNAR
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar heldur
tónleika í Stapa, Hljómahöllinni, miðvikudaginn 11. júlí
kl. 20.00.
Tilefnið er tónleikaferð til Grikklands dagana
14. – 22. júlí.
Sjá umfjöllun annars staðar í blaðinu.
Aðgangseyrir er kr. 1.500 fyrir fullorðna og kr. 500
fyrir börn.
Ágóði af tónleikunum rennur í ferðasjóð Léttsveitar-
innar.
Allir velkomnir.
Skólastjóri
HEIÐARSKÓLI
Vegna forfalla vantar kennara í Heiðarskóla næsta
skólaár í 100% starf. Um er að ræða kennslu á miðstigi.
Upplýsingar gefur Gunnar Þór Jónsson, skólastjóri,
í síma 894-4501.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí.
Sækja skal um starfið á vef Reykjanesbæjar
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf,
eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum.
Landnámsdýragarðurinn við Víkingaheima er opinn
alla daga frá kl. 10 – 17.
LANDNÁMS-
DÝRAGARÐURINN
VIÐ VÍKINGAHEIMA
Ein stærsta bygging Suðurnesja, flugskýli 885 á Keflavíkurflugvelli, verður rifin finnist ekki
hentug starfsemi í bygginguna. Þá liggur einnig fyrir
að gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli verður
rifin. Þetta hefur verið samþykkt af stjórn Isavia.
Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í samtali
við Víkurfréttir að nú sé verið að skoða hugmyndir um
starfsemi í flugskýli 885. Frá því Varnarliðið yfirgaf
Ísland árið 2006 hafi nokkur verkefni verið nefnd sem
möguleg inn í bygginguna en þau séu annað hvort of
stór eða of lítil fyrir húsið. Nú sé verið að kanna hvort
í raun sé hægt að koma starfsemi í húsið eða rífa það
ella. Flugskýli 885 er 17.200 fermetra bygging.
Það liggur fyrir að byggingin er dýr í rekstri og eins
munu endurbætur á húsinu kosta mikla fjármuni.
Friðþór segir að niðurrif hússins, ef af því verður, sé
ekki svo dýrt sé tillit tekið til þess að þar falla til allt að
4500 tonn af stáli sem fara til endurvinnslu.
Önnur söguleg bygging, gamla flugstöðin á Keflavíkur-
flugvelli, verður rifin samkvæmt samþykkt stjórnar
Isavia. Gamla flugstöðin stendur á einni verðmætustu
lóð Keflavíkurflugvallar. Þar hafa komið upp hug-
myndir um að byggja þjónustubyggingu fyrir einka-
flugvélar en við gömlu flugstöðina er stórt flughlað á
svokölluðu austursvæði Keflavíkurflugvallar.
n
Bæjarfulltrúar Samfylkingar-innar lögðu fram bókun á síð-
asta bæjarstjórnarfundi í Reykja-
nesbæ að fá óháðan sérfræðing til
að meta samningsdrög þau sem
liggja fyrir á milli Eignarhalds-
félagsins Fasteignar og Reykjanes-
bæjar. Sjálfstæðismenn sem skipa
meirihluta bæjarstjórnar svöruðu
með annarri bókun þar sem því
er alfarið hafnað og því mótmælt
að fjármálasérfræðingur Capa-
cent sem hafi unnið úttekt sé ekki
óháður.
Um þetta var þráttað áður en bæjar-
stjórn fór í sumarfrí í síðustu viku.
Í bókun Samfylkingarinnar segir
m.a.: „Bæjarstjórn samþykkir
í samræmi við 66. grein sveitar-
stjórnarlaga um miklar fjárfestingar
og skuldbindingar sveitarfélaga
– að fá óháðan sérfræðing til að
meta samingsdrög þau sem liggja
fyrir á milli eignarhaldsfélagsins
Fasteignar og Reykjanesbæjar.
Bæjarráð sameinist um óháðan
sérfræðing, sem ekki hefur áður
komið að málefnum Eignarhalds-
félagsins Fasteignar, og feli honum
að gera úttekt á samningsdrögum
þeim er fyrir liggja og meta fjár-
hagslegar skuldbindingar bæjarins
sem samningsdrögunum fylgja.
Niðurstöðurnar skulu lagðar fram
og kynntar fyrir bæjarstjórn.
Auk þess skal í anda lýðræðislegrar
og vandaðrar stjórnsýslu halda
borgarafund um málið í samræmi
við 76. og 77. grein bæjarsam-
þykktar um stjórn Reykjanesbæjar
og fundarsköp bæjarstjórnar.
Borgarafundinn skal halda áður en
kemur til endanlegrar afgreiðslu
bæjarstjórnar á samningi Reykja-
nesbæjar við Eignarhaldsfélagið
Fasteign. Ljóst er að afdrif Eignar-
haldsfélagsins Fasteignar mun hafa
áhrif á fjárhag bæjarins til framtíðar
og því eðlilegt að íbúar bæjarins
verði upplýstir að fullu um málið
og gefinn vettvangur og tækifæri til
að tjá skoðun sína.
Í bókun sjálfstæðismanna segir:
Í samræmi við 66. grein sveitar-
stjórnarlaga fengu sveitarfélögin
sem eru aðilar að Eignarhaldsfélag-
inu Fasteign (EFF), Reykjanesbær
þar með talinn, sérstaka óháða
úttekt á heildaráhrifum breyttra
leigusamninga EFF. Megin niður-
staða þeirrar úttektar var kynnt á
fundi með fulltrúum allra eigenda
félagsins. Sérstaklega var vel mætt
á þann fund af hálfu Reykjanes-
bæjar þar sem fulltrúar allra flokka
í bæjarstjórn Reykjanesbæjar sátu
fundinn, þ. á m. fulltrúi Samfylk-
ingar.
Í framhaldi af fundinum var lögð
fram skýr greinargerð í bæjarráði
Reykjanesbæjar og bæjarstjórn þar
sem áhrif breyttra leigusamninga
fyrir Reykjanesbæ eru tíunduð,
bæði á rekstur og efnahagsreikn-
ing Reykjanesbæjar. Skilyrðum 66.
greinar hefur því nú þegar verið
fullnægt.
Þá er því alfarið hafnað að þótt
leitað hafi verið til fjármálasérfræð-
ings hjá Capacent sem áður hefur
unnið góð gögn fyrir sveitarfélögin
í EFF, þá sé hann á einhvern hátt
ótækur til framangreindrar vinnu.
Sú þekking sem hann hefur aflað
sér áður á málefnum EFF gerir
hann á engan hátt háðan félaginu
eins og tillaga Samfylkingarinnar
gefur í skyn.
Áður en kemur til frágangs á nýjum
leigusamningum verða áhrif nýrra
leigusamninga aftur reiknuð út af
hálfu óháðs sérfræðings í samstarfi
við endurskoðanda Reykjanes-
bæjar. Gert er ráð fyrir að útreikn-
ingurinn verði þá sundurliðaður
fyrir hvern leigusamning fyrir
sig ásamt samanlögðum áhrifum
þeirra allra.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
telja sjálfsagt að halda kynningar-
fund fyrir íbúa um málið þegar
frágangur þess liggur fyrir sem gert
er ráð fyrir að verði síðsumars eða í
haustbyrjun.
n
›› Reykjanesbær:
Þráttað um Fasteign í bæj-
arstjórn Reykjanesbæjar
Ein stærsta bygging
Suðurnesja verður rifin
Gamla flugstöðin á Keflavíkurflugvelli heyrir brátt sögunni til. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Bygging 885, stóra flugskýlið á Keflavíkurflugvelli. Verður rifið finnist ekki hentug starfsemi í húsið.