Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.07.2012, Page 4

Víkurfréttir - 05.07.2012, Page 4
FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 • VÍKURFRÉTTIR4 Barnaheill komu færandi hendi til Suðurnesja í sl. viku þegar samtökin gáfu 60 reiðhjól fyrir yngri börn til Fjölskylduhjálpar Íslands á Suður- nesjum. Um er að ræða lítli reiðhjól fyrir stráka og stelpur og einnig nokkur þríhjól. Hjólunum var úthlutað sl. fimmtudag hjá Fjöl- skylduhjálpinni í Grófinni og svo verður einnig í dag, fimmtudag kl. 16-18. Þá er einnig von til þess að komin verði reiðhjól fyrir eldri börn. Hjólin eru ætluð börnum foreldra sem hafa ekki fjár- ráð til að kaupa hjól handa börnum sínum. n Nú standa yfir framkvæmdir við dýpkun og breikkun á innri rennu í Grindavíkurhöfn en Hagtak átti lægsta tilboðið. Að sögn Sigurðar A. Kristmundssonar hafnarstjóra ganga framkvæmd- irnar ágætlega enda veður verið einstaklega gott að undanförnu. Smá seinkun varð á upphafi framkvæmdanna þar sem prammi sem notaður er í verkið hvolfdi á leið frá Færeyjum. En eftir að hann kom til Grindavíkur hafa framkvæmdirnar gengið vel. Á myndinni sést svokallaður borprammi. Hann er notaður til þess að bora holur sem eru fylltar með sprengiefni. Síðan er sprengt og í kjölfarið kemur hinn pramminn sem er notaður til þess að grafa mulninginn upp. Dýpka á í 7,5 metra dýpi og breikka innsiglinguna. Skip fara stöðugt stækkandi og til þess að missa þau ekki frá bænum er þessi dýpkun nauðsynleg. Botn hafnarinnar er á klöpp að mestum hluta og er ekki unnt að grafa upp efnið sem fjarlægja þarf án þess að sundra því fyrst. Til þess eru notaðar kerfisbundnar sprengingar. Þessar sprengingar geta verið óþægilegar fyrir bæjarbúa. n Líkt og Grindvíkingar hafa væntanlega tekið eftir hefur nokkurt jarðrask verið í bænum að undan- förnu. Ástæðan eru framkvæmdir Mílu við Ljósnet Símans en settir verða upp 15 götuskápar víðs vegar um bæinn. Með Ljósnetinu fæst háhraðanetteng- ing sem verður bylting fyrir Grindvíkinga. Fram- kvæmdir ganga vel og eru samkvæmt áætlun, segir á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Í fyrsta áfanga, sem lýkur 13. júlí, verða jarðvegsfram- kvæmdir við Vesturhóp, Suðurhóp, Austurhóp, Árna- stíg, Gerðavelli, Blómsturvelli, Efstahraun, Heiðar- hraun, Leynisbraut, Selsvelli, Víkurbraut, Ránargötu og Austurveg. Síðan tekur við sumarfrí en framkvæmdir halda áfram í ágúst þar sem allur bærinn verður klár- aður. Athygli vekur hversu snyrtilega Míla gengur frá eftir jarðrask og framkvæmdir. Myndin var tekin af Mílu- mönnum á horni Víkurbrautar og Efstahrauns ný- verið. n Fulltrúar meirihlutans í bæjar-ráði Sveitarfélagsins Garðs segja að aðalfundur Menn- ingarsetursins að Útskálum sem haldinn var 19. júní sl. hafi verið ólögmætur. Fundargerð aðalfundarins var tekin fyrir í bæjarráði Garðs í vikunni. Menningarsetrið að Út- skálum er einkahlutafélag í eigu Út- skálasóknar, Sveitarfélagsins Garðs, Sparisjóðsins í Keflavík/Lands- bankans, Dacoda hugbúnaðar ehf. og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis. Ekkert aðalfundarboð barst sveitar- félaginu sem hluthafa í Menningar- setrinu og þar af leiðandi lítur því N- og L-listi svo á að fundurinn hafi verið ólögmætur. Fulltrúi D- lista situr hjá við afgreiðslu fundar- gerðarinnar. n ›› Grindavík: ›› Fjölskylduhjálp Íslands á Suðurnesjum: ›› Grindavík: Grafið fyrir háhraðatengingu Þessi gutti prófaði þríhjól hjá Fjölskylduhjálpinni. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson Úthluta 60 hjólum til barna Dýpkun og breikkun á innri rennu í Grindavíkurhöfn Segja aðalfund Menningarset- ursins að Útskálum ólögmætan Kattaeigendur sinni skyldum sínum Gi l d a n d i s a m þ y k k t u m kattahald á Suðurnesjum var lögð fram í bæjarráði Voga á dögunum en þar er fjallað um lausagöngu katta. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ítreka reglur um kattahald á heimasíðu Voga og hvetja kattareigendur til að sinna skyldum sínum samkvæmt ákvæðum samþykktar um katta- hald. ›› FRÉTTIR ‹‹ Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ, s. 420 3330, www.benni.is Gerðu góð kaup á notuðum bíl frá Bílabúð Benna Ssangyoung Rexton RX 290 Skráningardagur 7/2002 Sjálfskiptur ekinn 179.000 km Verð kr. 1.390.000- Honda Civic Hybrid Skráningardagur 10/2007 Sjálfskiptur ekinn 49.000 km Verð kr. 2.190.000- Toyota Yaris Sol 1300 Skráningardagur 4/2007 Beinskiptur ekinn 71.000 km Tilboð kr. 1.390.000- Chrysler Town & Country stow & go Skráningardagur 7/2006 Sjálfskiptur ekinn 139.000 km Verð kr. 2.490.000- Möguleiki á allt að 80% láni Subaru Impreza 2,0R Skráningardagur 7/2008 Beinskiptur ekinn 84.000 km Verð kr. 1.890.000- Möguleiki á allt að 90% láni Hyundai Getz GLS Skráningardagur 3/2007 Beinskiptur Ekinn 73.000 km Verð kr. 1.090.000,- Ný tímareim Ford Explorer Sport track 4X4 Skráningardagur 9/2007 Sjálfskiptur ekinn 78.000 km Verð kr. 2.990.000-

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.