Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.07.2012, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 05.07.2012, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 • VÍKURFRÉTTIR6 Leiðari Víkurfrétta Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: Afgreiðsla og ritstjórn: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamaður: Auglýsingadeild: Umbrot og hönnun: Auglýsingagerð: Afgreiðsla: Prentvinnsla: Upplag: Dreifing: Dagleg stafræn útgáfa: Hilmar Bragi Bárðarson, fréttastjóri vf.is Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 12. júlí 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is Lífleg fiskvinnsla Það gerðist allt í einu á Ís- landi að Íslendingum fannst bara alls ekki svalt að vinna í fiski. Allt í einu fékkst ekki íslenskt fiskverkafólk og þurfti því að leita út fyrir landsteinana eftir vinnuafli. Viðhorfið til fiskvinnslu er að breytast aftur og fleiri og fleiri eru að verða jákvæðari fyrir því að vinna í fiski á ný. Hugsanlega þurfti kreppuna til þess að við Íslendingar myndum sjá það að peningarnir verða alls ekki til í bönkunum, heldur með því að vinna verðmæti úr auðlindinni sem hafið allt í kringum okkur er. Í Víkurfréttum í dag er tekið hús á tveimur fyrirtækjum í Reykjanesbæ sem vinna með sjávarfang. Annað þeirra heitir Blámar og var stofnað fyrir ári síðan. Þar ræður ríkjum Kristín Örlygsdóttir úr Njarðvíkum. Hún hefur starfað ein í fyrirtækinu þar til í þessari viku að hún réð til sín auka starfskraft, enda mikið að gera. „Fyrirtækið hefur gengið prýðilega vel frá upphafi en ég þurfti fljótlega frá að hverfa í náminu vegna mikilla anna. Þetta er búið að vera frábært ferðalag og fullt af áskorunum sem hefur sko alveg tekið blóð, svita og tár en vel þess virði,“ segir Kristín í viðtali við Víkur- fréttir í blaðinu í dag. Hitt fyrirtækið sem við tökum hús á er AG Seafood við Hrannargötu í Keflavík. Þar er Arthur Galvez framkvæmda- stjóri og stærsti eigandi og hann er með um 50 manns í vinnu. Fyrir- tækið hefur sprengt utan af sér húsnæðið við Hrannargötu og ráðist í að kaupa stórt og mikið frystihús í Sandgerði sem nú er verið að standsetja. Þar munu um 100 manns verða við störf í fisk- vinnslu í haust. Í miðopnu blaðsins í dag eru viðtöl okkar við fólkið sem vinnur fiskinn og dreifir honum m.a. á innanlandsmarkaði og út í hinn stóra heim. Það eru fleiri jákvæðar fréttir úr atvinnulífinu í Sandgerði því auk þess sem fyrirtækið AG Seafood er að standsetja þar frystihús, þá er verið að byggja 2200 fermetra fiskvinnslu- stöð á hafnarsvæðinu fyrir út- gerðarmanninn Örn Erlingsson. Sjávarútvegsbærinn Sandgerði mun því von bráðar blómstra enn frekar en fyrir eru í bænum öflug fyrirtæki í fiskvinnslu. Hilmar Bragi Bárðarson ›› Bókaútgáfa: Saga Slökkviliðsins á Kefla-víkurflugvelli er komin út. Ritstjóri og höf- u n d u r t e x t a e r Sv a n h i l d u r Eiríksdóttir bók- m e n n t a f r æ ð - ingur og blaða- maður. Saga Slökkviliðis- ins á Keflavíkur- flugvelli er um margt sérstök. Lengst af var starfsemi þess innan banda- rískrar lögsögu og þegar Sveinn Ei- ríksson var ráðinn slökkviliðsstjóri árið 1963, var hann ekki aðeins fyrsti íslenski slökkviliðsstjórinn á Keflavíkurflugvelli heldur einnig fyrsti yfirmaður slökkviliðs innan flota Bandaríkjanna sem ekki var bandarískur ríkisborgari. Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli var brautryðjandi í eldvarnaeftirliti og nýjustu tækni í brunavörnum og náði góðum árangri. Það sanna fjölmörg verðlaun sem Slökkvilið- inu hefur hlotnast á þeim 60 árum sem það hefur verið starfandi. Þá hefur ekki síður þótt lærdómsríkt fyrir önnur slökkvilið víðs vegar af landinu að sækja Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli heim, læra af reynslu þess og njóta leiðsagnar. Svanhildur Eiríksdóttir hefur langa reynslu af blaðamennsku og textagerð. Hún starfaði sem blaðamaður hjá Suðurnesjafréttum á árunum 1993-1996 og hefur sl. 10 ár unnið hjá Morgunblaðinu í lausamennsku. Svanhildur hefur áður unnið að söguritun fyrir Sálarrannsóknar- félag Suðurnesja, Þroskahjálp á Suðurnesjum, Verslunarmanna- félag Suðurnesja, Sjálfstæðisfélagið Njarðvíking og Miðstöð símennt- unar á Suðurnesjum. Svanhildur starfar sem deildastjóri á Bókasafni Reykjanesbæjar og er í meistaranámi í opinberri stjór- nsýslu í Háskóla Íslands. Þeir sem hafa áhuga á að eignast bókina geta snúið sér til Ólafs Egg- ertssonar, formanns ritnefndar í síma 899 8067. n Saga Slökkviliðsins á Keflavík- urflugvelli er komin út Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hefur þegið boð um að halda tvenna tónleika á næstu ISME ráðstefnu, sem haldin verður í borginni Þessa- loniku á Grikklandi, dagana 15. – 20. júlí 2012. Þetta boð er afar mikill heiður fyrir Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og jafnframt einstakt tækifæri fyrir Léttsveitina. En um leið er tónlistarmenntun á Ís- landi sýnd mikil virðing með þessu boði ISME. ISME, International Society of Music Education, eru ein elstu og virtustu alþjóðasamtök um tónlistar- menntun og -kennslu sem til eru. Samtökin, sem voru stofnuð af UNESCO árið 1953, standa reglulega fyrir menntaráðstefnum um tónlist og eru þær fjölsóttar af tónlistarkennurum, skólastjórum og öðrum sem vinna að menntamálum í tónlist eða tengjast þeim málaflokki á einhvern hátt. Á ISME ráðstefnum er ávallt boðið upp á tónlistarflutning eða formlega tónleika flutta af nemendum tónlistarskóla, skólahljómsveitum eða skólakórum og það þykir mikill heiður að fá boð um að halda tónleika á ISME ráðstefnu. Afar fáir íslenskir tónlistarskólar eða skólahópar hafa fengið slíkt boð í gegnum tíðina og það er alllangt síðan að íslenskur tónlistarhópur kom síðast fram á slíkri ráðstefnu. „Nú erum við á fullu að undirbúa tónleikaferðalagið okkar til Grikklands. Þar spilum við bæði á ráðstefn- unni í Þessaloniku og svo förum við líka til Aþenu og spilum þar,“ segir Karen Sturlaugsson, stjórnandi léttsveitarinnar í samtali við Víkurfréttir. Það verða 18 hljóðfæraleikarar sem fara utan með allt það hafurtask sem fylgir ferðalagi hljómsveitar. Nú í lokaundirbúningi ferðalagsins er blásið til tónleika í Stapa sem verða miðvikudaginn 11. júlí kl. 20. Er það von Léttsveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar að sem flestir mæti í Stapann til að njóta tónlistarinnar og um leið styðja við bakið á tónlistarfólkinu sem er að fara í dýrt ferðalag síðar í mánuðinum. Léttsveit TR aflar fjár fyrir Grikk- landsför með tónleikum í Stapa Nýsköpun á Íslandi er vaxandi og stuðningur við hana sífellt markvissari og öflugri. Frumkvöðlar hér á svæðinu munu vera margir og viðfangsefnin fjöl- breytt. Heklugosið í Eldey var merkilegur viðburður, þar sýndu um 40 að- ilar þá vöru sem þeir eru að bjóða, mest eigin framleiðslu. Þetta var virkilegt gos og vakti verðskuldaða athygli. Eldey iðaði af lífi dagana fyrir gos og að kvöldi 31. maí fyllt- ist húsið af fólki og spenna í loftinu. Styrkir til menningarverkefna voru afhentir – fatahönnuðir sýndu glæsilegar vörur og síðan dreifð- ust gestir um húsið og heimsóttu hvern vinnustaðinn og sýningar- básinn af öðrum. Undrun og gleði skein úr hverju andliti – „Ert þú að gera svona, en flott, vissi það ekki“ heyrðist mjög víða. Margur einyrkinn var í raun að koma fram í dagsljósið í fyrsta sinn, þar á meðal undirrituð sem er að hanna og handprjóna dömupils úr ull sem sýnd voru þarna á alvöru tískusýn- ingu undir nafninu MeMe. Við sem erum að fikra okkur áfram á frumkvöðlabrautinni – erum öll að glíma við sömu hlutina, að koma okkur á framfæri – kynna vöruna eða þjónustuna – koma henni í sölu. Hver í sínu horni að gera sömu hlutina, oft af vanefnum og takmarkaðri kunnáttu. Okkur er afskaplega nauðsynlegt að taka höndum saman til að geta af mynd- ugleik náð til kaupendanna – ferða- manna og heimafólks. Hvert okkar er svo mikilvægt og saman getum við gert stóra hluti, aukið hér enn frekar verslun með handverk, hönnun og þjónustu. Frumkvöðlasetrið Heklan sem hefur aðsetur í Eldey, er afar góður bakstuðningur við okkur. En við þurfum að leita eftir þeim stuðn- ingi og leiðsögn. Ég skora nú á ykkur öll að koma fram, láta vita af ykkur. Við þurfum að hittast, stofna einhvers konar félagsskap sem getur svo með góðri handleiðslu fagfólks náð frábærum árangri fyrir okkur, hvert á okkar sviði. Við verðum að koma okkur betur á framfæri og selja okkar vörur. Við búum við stóra hliðið þar sem ferðamenn streyma inn og út úr landinu í þúsundavís á hverjum degi. Réttum úr bakinu – göngum saman fram á völlinn – stóreflum ferðamannaverslun á Suðurnesjum. Hafið endilega samband, netfangið mitt er sogho@simnet.is Hólmfríður Bjarnadóttir Ásbrú – MeMe fatahönnun. Frumkvöðlar á Suðurnesjum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.