Víkurfréttir - 05.07.2012, Qupperneq 8
FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 • VÍKURFRÉTTIR8
Við Hrannargötu í Keflavík hefur lítið fiskvinnslufyrir-
tæki vaxið hratt á síðustu miss-
erum, svo hratt að það hefur
sprengt utan af sér húsnæðið og
veitir rúmlega 50 manns atvinnu.
Fyrirtækið heitir AG Seafood
og stærsti eigandi þess og fram-
kvæmdastjóri er Arthur Galvez.
Það var í nóvember 2008 sem starf-
semi fyrirtækisins hófst með því að
fiskvinnsluhús var sett upp í 300
fermetra húsnæði í Grófinni. Fram-
leiðsla á fiskafurðum hófst í febrúar
árið 2009, starfsmenn fyrirtækis-
ins voru þá 12 talsins. Húsnæðið
í Grófinni varð strax allt of lítið
enda fékk fyrirtækið fljúgandi start.
Fljótlega var því ráðist í að kaupa
fiskvinnsluhús á Hrannargötu. Að
sögn Arthurs þá hefur framlegðin
af starfseminni alltaf verið látin
renna til fyrirtækisins til að byggja
það áfram upp. Það hefur aldrei
neitt verið tekið út úr fyrirtækinu,
enda sé það stefna og markmið að
reksturinn sé skuldlaus og að fyrir-
tækið eigi allan sinn tækjabúnað.
Strax frá upphafi var lögð áhersla
á framleiðslu á frystum afurðum í
bland við ferskan fisk og nýtir fyrir-
tækið sér þar nálægð við flugvöll-
inn og þá staðreynd að frá Suður-
nesjum er stutt á fengsæl fiskimið.
Í kaupendum afurða frá AG Sea-
food eru fjórar megin stoðir. Fyrst
má nefna stóran kaupanda í Barce-
lona á Spáni, sem hefur frá upp-
hafi verið að auka viðskipti sín við
AG Seafood og á stóran þátt í vexti
fyrirtækisins. Hann hefur einnig
heimsótt fyrirtækið tvisvar til
þrisvar á ári. AG Seafood er í mik-
illi sérvinnslu fyrir kaupandann á
Spáni. Fyrirtækið framleiðir létt-
saltaða þorskhnakka fyrir flottustu
veitingastaðina í Kataloníu. Einnig
eru framleidd lítil roð- og beinlaus
þorskstykki sem eru notuð í salöt
á Spáni.
Annar stór kaupandi er á Bretlandi,
nánar tiltekið í London, sem er
stærsti kaupandi þeirra á flatfiski.
AG Seafood framleiða skarkola,
sólkola og langlúru fyrir þetta stóra
fyrirtæki sem selur fiskinn í stór-
mörkuðum eins og Marks & Spen-
cer. Arthur segir að 60-70% af allri
flatfiskframleiðslu fyrirtækisins fari
til þessa aðila í Bretlandi.
Þriðji þátturinn í framleiðslu AG
Seafood er framleiðsla á ferskum
fiski sem fer út um allt, bæði
Bandaríkjanna og Evrópu. Fjórða
stoðin er svo framleiðsla á freðfiski
á Bandaríkjamarkað. Þar fyrir utan
er fyrirtækið með um tug annarra
kaupenda sem kaupa óreglulega
afurðir frá fyrirtækinu.
Arthur segir að í dag sé fyrirtækið
að framleiða afurðir í um tvo gáma
á viku. Þá þarf að taka tillit til þess
að fyrirtækið er í mjög fínni fram-
leiðslu sem einnig er mannfrek.
Unnið er við frystingu hjá fyrir-
tækinu allan sólarhringinn og
hefur verið fryst allan sólarhring-
inn síðan í febrúar á þessu ári. Á
nóttunni hafa verið fyst ufsa- og
„Bræður mínir hafa lengið starfað
við sjávarútveginn og eiga þeir
Gunnar og Sturla útflutningsfyrir-
tækið Icemar. Ég sá leik á borði
þar sem ég var nýbúin að klára
Keili og var á leiðinni í nám hjá
HA í sjávarútvegsfræði og fannst
gullið tækifæri að starfa við það
sem ég var að fara að læra um.
Ég spurði þá hvort það væri ekki
sniðugt að stofna fyrirtæki sem
sérhæfði sig í sölu á sjávarafurðum
á innanlandsmarkaði og var því
tekið mjög vel strax í upphafi,“
segir Kristín Örlygsdóttir, aðal-
eigandi Blámars, sem sérhæfir sig
í sölu og dreifingu á frystum og
ferskum sjávarafurðum á innan-
landsmarkaði til verslana, veit-
ingahúsa og stóreldhúsa.
„Við stofnuðum fyrirtækið fyrir
ári síðan og er ég aðaleigandi
Blámars. Icemar og AG Seafood
eiga hlut í fyrirtækinu. Fyrirtækið
hefur gengið prýðilega vel frá
upphafi en ég þurfti fljótlega frá
að hverfa í náminu vegna mikilla
anna. Þetta er búið að vera frábært
ferðalag og fullt af áskorunum
sem hefur sko alveg tekið blóð,
svita og tár en vel þess virði.“
Fram til þessa hefur Kristín verið
ein starfandi við fyrirtækið en í
þessari viku bættist einn starfs-
maður við, enda í nógu að snúast.
„Þegar við stofnuðum fyrirtækið
fyrir ári síðan þá ákváðum við að
einblína á innanlandsmarkaðinn
og skoða okkur út fyrir landsstein-
ana þegar það væri komið þokka-
legt rennsli í gang hér heima. Ég
er nýbyrjuð að senda ferskan fisk
til Sviss og er komin með augun á
nokkur önnur lönd“.
Hvað felst í þínu starfi?
„Ég er á öllum vígstöðvum og
er það eina vitið til þess að láta
fyrirtækið ganga upp. Ég
annast sölu,
d r e i f i n g u ,
bókhald og
markaðssetn-
ingu og margt
fleira. Einnig tek
ég þátt í pökkun
á sjávarafurðum
sem AG Seafood
framleiðir fyrir
Blámar. Meðeig-
endurnir, bræður
mínir hjá Icemar og
A d d i
hjá AG
Seafood hafa gefið mér dýrmæt
ráð og góða handleiðslu. Þetta
fyrirtæki væri ekki til nema fyrir
þeirra tilstillan og þolinmæði og
á ég þeim mikið að þakka“.
Hvernig finnst þér sjávarútvegur-
inn standa hér á svæðinu?
„Sjávarútvegur í Reykjanesbæ
er ekki hátt skrifaður hér þó er
hér fjöldinn allur af fyrirtækjum
sem starfar innan þess geira og
mikil gróska í gangi. Mér finnst
persónulega mætti vera meiri
vitundarvakning hjá almenningi
hversu mikil verðmæti liggja í
sjávarútveginum og fiskvinnslu
og það liggja allskyns tækifæri
því tengt. Ferðamarkaðurinn og
sjávarútvegurinn er alveg málið
í framtíðinni og finnst mér að
ráðamenn sveitarfélaganna hér í
kring mættu gefa meiri gaum af
þessum fyrirtækjum eða a.m.k
vita af þeim, ég talaði við eina
persónu um daginn sem hefur
verið viðloðin stjórnmál hér í
Reykjanesbæ um árabil og hafði
sá aðili ekki hugmynd um þau
framleiðslufyrirtæki sem væru
starfrækt með um 40-50 manns í
atvinnu. Þessi atvinnuvegur
hefur ekki verið hátt skrif-
aður hér í bæ í alltof langan
tíma því miður. En nú eru
breyttir tímar og fólk er
aðeins farið að átta sig á
því að ég og þú getum
gert góða hluti án þess
að braska með hluti og
peninga“.
Dreifa frystum og
ferskum sjávarafurðum
á innanlandsmarkaði
›› Blámar í Reykjanesbæ:
›› AG Seafood í Reykjanesbæ stækkar hratt og opnar nýtt frystihús í Sandgerði í haust:
Gott framboð af hráefni á
fiskmarkaði mjög mikilvægt