Víkurfréttir - 05.07.2012, Síða 15
VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 5. júlí 2012 15
Að gefnu tilefni - staðreyndir um bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og fall Sparisjóðsins í Keflavík
með það að markmiði að kaupa
hlut ríkisins í Hitaveitu Suður-
nesja. Það gekk ekki eftir eins og
þekkt er. Hins vegar ákváðu þeir
sem að félaginu stóðu að ráðast í
það að kaupa hlut í Icebank, þar
sem Sparisjóðurinn átti talsverða
hagsmuni. Lánaði Sparisjóðurinn
félaginu að ég best veit 1.500
milljónir til viðbótar við hlutaféð
sem lagt hafði verið í félagið af
eigendunum. Lánið var veitt af
Sparisjóðsstjóra og var innan
þeirra heimilda sem hann hafði.
Vissulega er þetta gagnrýniverður
gjörningur þegar horft er til
baka. Hluthafarnir töpuðu allir
því sem þeir höfðu lagt fram í
félagið. Hlutafjárframlag Saltvers
til kaupanna var að stórum hluta
fjármagnað með láni frá Lands-
bankanum sem er viðskiptabanki
fyrirtækisins, en fyrirtækið átti
ekki í viðskiptum við Sparisjóðinn.
4. Sigríður Jóna Jóhannesdóttir
– var alla tíð viðskiptavinur Spari-
sjóðsins, en umsvif hennar í við-
skiptum við Sjóðinn takmörkuðust
við dæmigerðan launareikning
og rekstur heimilis hennar.
5. Björk Guðjónsdóttir – veit
ekki hvort hún var í viðskiptum
við Sparisjóðinn. Veit að hún
stóð í víninnflutningi um tíma í
félagi við annan, en veit ekki til
þess að neinn hafi tapað á þeim
viðskiptum nema hún sjálf.
6. Steinþór Jónsson – hefur ein-
hverra hluta vegna fengið hvað
duglegast á baukinn í DV, en
eins og þjóðinni ætti að vera
ljóst er 80% af því sem DV segir
ósatt og hitt lygi! (þetta er svona
álíka málefnaleg fullyrðing og
umfjöllun þeirra um Steinþór).
n Því er stöðugt haldið fram
að Steinþór hafi setið í stjórn
Sparisjóðsins. Það er rangt – hann
reyndi mikið á sínum tíma til
að komast þar í stjórn, en fékk
ekki hljómgrunn fyrir því meðal
stofnfjáreigenda. Vert er að hafa í
huga að meðal stærstu stofnfjár-
eigenda sjóðsins voru Kaupfélag
Suðurnesja, Verslunarmannafélag
Suðurnesja, Lífeyrissjóðurinn
Festa auk hundruða einstaklinga
í Reykjanesbæ, á Snæfellsnesi,
í Húnaþingi og á Ströndum.
n Því er haldið fram að Steinþór
hafi tekið lán í Sparisjóðnum
fyrir hundruðir milljóna og jafn-
vel milljarða. Steinþór tók mér
afvitandi ekki nokkurt lán hjá
Sparisjóðnum í Keflavík, vegna
sín persónulega eða fyrirtækja
sinna Hótel Keflavík og Ofna-
smiðju Suðurnesja, hvað þá
að þau hafi verið afskrifuð.
n Því er haldið fram að Stein-
þór hafi verið höfuðpaurinn
í Suðurnesjamönnum. Hann
átti ekki hlut í félaginu og
kom hvergi nálægt því.
n Því er haldið fram að Steinþór
hafi í gegnum Bergið ehf. fengið
milljarða að láni hjá Sparisjóðnum
í Keflavík til kaupa á hlutafé í
Icebank. Hið rétta er að Steinþór
lagði ásamt á annan tug fjárfesta,
m.a. núverandi framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins Jón-
mundi Grétarssyni, fram hlutafé
(áhættufé) í Bergið ehf. sem keypti
hlut í Icebank af Spron og Byr.
Þessir bankar lánuðu Berginu
að ég best veit 2/3 kaupverðs
bréfanna í Icebank, 1/3 var eigin-
fjárframlag eigendanna. Steinþór
átti nokkurn hlut í félaginu en
Jónmundur átti 0,2% - eða 2/1000
hluta! Þessu fé töpuðu eigend-
urnir – einhverjum hundruðum
milljóna. Í kröfuskiptum, sem ég
kann ekki að skýra nánar, milli
Sparisjóðsins og Spron og BYR
eignaðist Sparisjóðurinn 370
milljónir af kröfunni á Bergið.
Rannsóknin á Sparisjóðnum mun
væntanlega leiða í ljós hvernig
þetta átti sér stað – en staðreyndin
er hins vegar klárlega sú að lánið
var upphaflega seljendalán frá
Spron og Byr, sem seldu hluti sína
í Icebank á uppsprengdu verði
til Steinþórs og viðskiptafélaga
hans. Þeir fengu aldrei og leituðu
aldrei eftir láni frá Sparisjóðnum
í Keflavík vegna þessara við-
skipta svo mér sé kunnugt.
n Því er haldið fram að Steinþór
hafi fengið hundruð milljóna
afskrifaðar vegna hinna ýmsu
fasteignafélaga. Hið rétta er að
Steinþór fjárfesti í fasteignum með
öðrum í Fasteignafélagi Suður-
nesja – meðal eigenda þar var
Sparisjóðurinn. Félagið átti eignir
og eignarhaldsfélög um aðrar
eignir m.a. Blikavelli 3. Þessi félög
voru fjármögnuð með eiginfé
að hluta og lánsfé að hluta, mest
erlendum lánum. Það þekkja allir
hvernig fór fyrir slíkum félögum.
Þau fóru á hausinn. Eigendurnir
töpuðu sínu og lánveitandinn
hirti veðin sem stóðu að baki
eignunum. Landsbankinn hefur
með þessu móti eignast flestar
þær eignir sem þessi félög áttu og
eflaust afskrifað vegna erlendra
lána sem á þeim hvíldu.
n Því er haldið fram að Steinþór
hafi fengið hundruð milljóna
afskrifaðar í gegnum Base ehf.
Steinþór átti í gegnum Hótel
Keflavík 8% hlut í Base ásamt á
annan tug annarra fjárfesta, m.a.
Sparisjóðunum, ÍAV, N1 og fleiri.
Félagið var stofnað utan um kaup
á iðnaðarhúsnæði á gamla varnar-
svæðinu. Sparisjóðurinn lánaði
félaginu 130 milljónir gegn veði
í eignunum. Base náði aldrei að
klára kaupin á eignunum gagnvart
Kadeco og fór á hausinn. Kadeco
leysti aftur til sín eignirnar og
greiddi upp veðin sem á eignunum
hvíldu. Steinþór tapaði sínu hluta-
fjárframlagi eins og aðrir eigendur.
Allt að einu má ýmislegt segja um
fjárfestingar Steinþórs. Þær hafa
augljóslega verið misgáfulegar, en
það er enn þann dag í dag ekki
glæpur að leggja fram hlutafé
(áhættufé) í fyrirtæki. Menn sem
það gera bera lögum samkvæmt
takmarkaða ábyrgð í félaginu. Tak-
markast ábyrgðin við það hlutafé
sem þeir leggja fram til félagsins.
Það sama gildir í því efni um
Steinþór og aðra áhættufjárfesta.
Nánar má lesa um hvernig þetta
virkar hér: http://www.althingi.
is/lagas/140a/1994138.html
7. Garðar K. Vilhjálmsson –
undirritaður var viðskiptavinur
Sparisjóðsins frá blautu barnsbeini
eins og svo margir Keflvíkingar.
Ég tók sæti í stjórn Sparisjóðsins
eftir hrun árið 2009 þegar freista
átti þess að halda lífi í Sjóðinum.
Meðan ég sat í stjórn veitti
Sparisjóðurinn engin ný útlán sem
heitið gátu, enda eiginfjárhlutfall
hans undir lögboðnum mörkum
og sjóðurinn rekinn á undanþágu
frá FME og undir eftirliti fulltrúa
FME. Völd stjórnar sjóðsins á
þessum tíma voru afar takmörkuð
og starf sjóðsins þetta síðasta
ár sem hann lifði snerist um að
halda lausafé í sjóðnum frá degi
til dags. Viðvarandi taprekstur
var á sjóðnum og ljósara varð
með hverjum deginum sem leið
að honum yrði ekki bjargað.
Það fór því svo á endanum að
stjórnin hafði ekki annan kost en
henda inn handklæðinu og binda
endi á líf sjóðsins. Ég og félög
mér tengd fengu fjölmörg lán í
Sparisjóðnum gegnum tíðina.
Lán sem eiga það öll sammerkt að
hafa verið með fullum ábyrgðum,
vera ýmist greidd upp að fullu
eða í fullum skilum hjá þeim
sem nú hefur eignast þau. Þær
lánveitingar sem enn standa með
einhverjum hætti eru eftirfarandi:
n Árið 2006 fékk undirritaður
húsnæðislán í Sparisjóðnum,
sem nú hefur verið framselt
Íbúðalánasjóði. Lánið var upp-
haflega 14 milljónir – stóð í 19,6
síðast þegar ég athugaði það.
n Einkahlutafélag mitt Bílaleigan
Geysir var í viðskiptum við
Sparisjóðinn, síðar Landsbankann,
og er þar nú með eitt erlent lán
upp á ríflega 150 þúsund evrur,
auk ábyrgðar vegna City Star flug-
félagsins upp á 20 þúsund pund
sem við deilum um hvort sé í gildi
eður ei. – Sú ábyrgð kemur þó
Sparisjóðnum ekkert við. Lánið
er að auki með persónulegri
sjálfskuldarábyrgð undirritaðs
og ábyrgðin er tryggð með inni-
stæðu á lokuðum reikningi.
n Einkahlutafélag mitt 520 ehf.
átti á árinu 2007 viðskipti við
Base ehf., sem áður var fjallað
um. 520 ehf. keypti af Base eina
skemmu á gamla varnarsvæðinu
og lét gera hana í stand. Fyrir
skemmuna greiddi 520 metverð í
frágengnum fasteignaviðskiptum
á svæðinu eða um 60 þús. kr pr.
fermetra. Sparisjóðurinn lánaði
50 milljónir til kaupanna. Það
lán er nú í eigu Landsbankans
með veði í húsnæðinu auk
persónulegrar ábyrgðar undir-
ritaðs upp á 20 milljónir.
n Að lokum, til að koma í veg
fyrir allan misskilning, þá afskrif-
aði Landsbankinn erlent lán til
undirritaðs vegna stofnfjárkaupa
í Sparisjóðnum sem veitt var um
áramótin 2007/2008 að upphæð
um 800 þús ISK. Lánið var veitt af
Lansbankanum en fellt niður eins
og öll önnur sambærileg lán vegna
stofnfjárkaupa í Sparisjóðnum.
Eins og sést á þessari upptalningu
þá er ljóst að bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanesbæ
höfðu mismikla aðkomu að rekstri
Sparisjóðsins. Einn bæjarfulltrúi
sat í stjórn hans fyrir hrun og einn
eftir hrun. Í stjórn sjóðsins sátu
fimm einstaklingar á hverjum
tíma. Þeir einstaklingar sem
með mér sátu í meirihlutanum í
Reykjanesbæ eru allt öldungis-
fólk. Ég skulda því ekkert og það
skuldar mér ekki neitt. Það má
eflaust álasa okkur fyrir margt
en fall Sparisjóðsins verður
ekki skrifað á okkur, eða Sjálf-
stæðisflokkinn, sérstaklega.
Lánveitingar til bæjarfulltrúa
geta ekki með nokkru móti talist
óeðlilegar miðað við umsvif hvers
og eins í atvinnulífinu í bænum.
Fullyrðingar um lánveitingar til
bæjarfulltrúa eru meira og minna
upplognar eða ósannar með öllu.
Í þeim tilfellum þar sem lán voru
veitt voru eðlilegar tryggingar
að baki þeim miðað við það sem
tíðkaðist í viðskiptum á þeim tíma.
Fall Sparisjóðsins er okkur Suður-
nesjamönnum þungbært áfall og
því miður mun það bitna á þjóð-
inni allri. Fall Sjóðsins er löngu ljós
staðreynd og við breytum henni
ekki sama hvað við æmtum og
skræmtum. Það sem skiptir máli
er að við stöndum saman í því að
vinna okkur út úr því ástandi sem
hér ríkir, horfum fram á veginn
og leitum lausna. Það veit sá sem
allt veit að hér eru tækifærin til að
byggja upp og við eigum nægar
auðlindir til að vinna upp það sem
við töpuðum. Hættum að reyna
að finna drauga í hverju horni
og hættum að hlusta á neikvæða
nöldurseggi sem ekkert vilja upp
byggja en allt niður rífa. Umfram
allt skora ég á fólk að trúa ekki
gagnrýnislaust allri vitleysu sem
það heyrir, eða les. Í bankahruninu
töpuðu margir peningum. Sumir
tapa eflaust ærunni, en enginn
lífinu. Höfum í huga það sem
skiptir máli – eins og Landrover
menn segja: „One life – live it!“
Garðar Ketill Vilhjálmsson.
Grindavíkurstelpur gerðu jafntefli við nágranna sína í Keflavík 2-2 í 1. deild kvenna á Nettóvellinum í Reykjanesbæ á þriðju-
dagskvöld. Þetta var hörku leikur og ekkert gefið eftir.
Sarah Wilson kom Grindavík yfir á 28. mínútu og staðan 1-0 í hálfleik.
Í upphafi seinni hálfleiks skoraði Keflavík tvö mörk með skömmu milli-
bili og var seinna markið sjálfsmark. Grindavík sótti stíft undir lokin og
tókst að jafna metin á síðustu mínútu leiksins, markið skoraði Margrét
Albertsdóttir. Úrslitin 2-2, Keflavík með 9 stig en Grindavík 7.
Margrét Albertsdóttir skorar jöfnunarmarkið á lokamínútunni. VF-mynd: Hilmar Bragi
Margrét jafnaði á lokamínútunni