Víkurfréttir - 05.07.2012, Síða 16
Kóngurinn er Klár
Ég get ekki sagt að ég hafi tekið þátt í umræðunni um for-setakosningarnar. Fylgdist lítið með umræðuþáttum og
hitti einungis einn frambjóðanda fyrir kjördag. Fékk að vita
að sá hefði alist upp í Grænásnum og ætti góðar minningar
frá Suðurnesjum. Samtalið var stutt og laggott og það eina sem
ég tengdi sjálfan mig við hann var föðurnafnið. Þekkti hann
frá gamalli tíð. Áhugi minn á framboðinu kviknaði samt ekki
eftir þessa heimsókn enda hlyti leiðin að vera brött fyrir þá sem
ætluðu upp á tindinn í þessari atrennu. Þar sæti spaðakóngur sem ætti alla vega
fjóra ása upp í erminni. Gulan, rauðan, grænan og bláan.
Ég var samt ákveðinn að kjósa hann ekki. Líkar miklu betur við drottningar. Hjartadrottningar. Held að þeirra tími sé kominn. Við hinir pungarnir erum
búnir að spila öllum ásunum út og eigum bara lágspil eftir. Konur eru framtíðar-
stjórnvald sem við karlarnir þörfnumst. Hefði viljað leyfa þeim að stjórna næstu
árin og meta árangurinn í framhaldinu. Við yrðum að minnsta kosti ágætis
meðspilarar á meðan þær rifu landið upp á rassgatinu. Verð því að segja að eftir
niðurstöður helgarinnar, þá vildi ég helst sjá forsetafrúna leysa kallinn af í orlofi.
Við gæfum honum síðan vetrarorlof í kaupbæti. Yndisleg kona sem auðvelt er að
heillast af. Svo innilega sniðug. Þekki svoleiðis konur.
Hún ætti náttúrulega að verða drottningin okkar. Kóngurinn er klár og kann að spila. Verðum við ekki bara að stofna nýtt konungsdæmi og smella á
þau gæruskinni og lopakórónu? Engin pólitík, bara veislur og hyllingar á Bessa-
stöðum! Köllum hann Ólaf Íslandskonung! Þurfum ekki neina rómverska stafi
aftan við nafnið. Byrjum þannig strax að spara. Góðlátlegt vink á tyllidögum.
Hestvagnar og heiðursverðir. Heimreiðin bein og breið.
Vikan leið sem beljandi fljót niður flúðir og fossa. Í huga mínum komst ekk-ert annað að en að fara að veiða. Heil helgi í viðjum Svartárdals í Húnaveri
er árleg veisla fyrir huga og hjarta. Næring í sinni víðustu mynd. Þangað myndu
bæði „Ollaffur“ og „kóngurinn“ mæta. Sannkallaðir gleðigjafar auk annarra
prinsa. Var svo hugfanginn af tilefninu að ég gleymdi að kjósa. Utankjörstaða.
Sýslumaðurinn var bara aldrei í leið á leiðinni heim. Náði ekki einu sinni auðu
eða ógildu atkvæði. Hefur aldrei komið fyrir mig áður. Skammast mín fyrir það
og ætla ekki að segja neinum frá því.
vf.is
Fimmtudagurinn 5. júlí 2012 • 27. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
VEITINGASALAN Í LEIRU
ER OPIN ALLA DAGA
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Í HÁDEGINU
ALLA DAGA
SÚPA DAGSINS OG
FERSKUR FISKUR
KAFFIVEITINGAR,
HAMBORGARAR,
SAMLOKUR OG FLEIRA
GÓÐGÆTI.
OPIÐ ALLA DAGA FRAM
Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í
GS OG AÐRA.
PI
PA
R
\T
BW
A
- S
ÍA
-
12
19
91
Dagana 6., 7. og 8. júlí er 7 króna afsláttur af eldsneytislítranum til ÓB- og Olís-lykilhafa – og
fjórfaldir Vildarpunktar Icelandair þar ofan á. Afslátturinn er bæði á ÓB- og Olís-stöðvum
og gildir einnig fyrir Staðgreiðslukort Olís.
Sæktu um lykil núna á ob.is eða á næstu Olís-stöð.
-7kr.
af lítranum föstudag,
laugardag og sunnudag
OG
fjórfaldir
Vildarpunktar Icelandair
með ÓB-lyklinum hjá ÓB og Olís
Til að safna Vildarpunktum Icelandair með ÓB-lyklinum þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair, American Express vildarkorti eða
Einstaklingskorti Olís. Einnig er hægt að safna punktum með Sagakorti. Nánari upplýsingar um vildarkerfi ÓB eru á ob.is/Vildarkerfi.
GILDIR
EINNI
G
HJÁ O
LÍS
Sveitarfélagið Vogar hefur tekið í notkun nýtt tjaldstæði í ná-
grenni íþróttamiðstöðvarinnar.
Tjaldstæðið verður á grasflötinni
þar sem áður var knattspyrnuvöllur
sveitarfélagsins. Búið er að koma
upp litlu aðstöðuhúsi með vatns-
salerni og uppþvottaaðstöðu, sem
verður til afnota fyrir gesti tjald-
stæðisins. Utan á aðstöðuhúsinu
eru jafnframt rafmagnstenglar til
notkunar fyrir gesti tjaldstæðisins,
einkum þá sem eru á húsbílum,
húsvögnum og fellihýsum. Ekkert
gjald verður innheimt fyrir afnot af
tjaldstæðinu fyrst um sinn.
Sveitarfélagið Vogar býður ferða-
menn velkomna á tjaldstæðið og
vonar að þeir njóti dvalarinnar.
Þakka fyrir hreinsun
fjörunnar við garðskagavita
Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs þakkaði á síðasta fundi sínum Tómasi Knútssyni og Bláa hernum fyrir frábært framtak við að
hreinsa fjöruna hjá Garðskagavita.
„Tómas hefur sýnt það á undanförnum árum að nauðsynlegt er að hreinsa
fjöruna reglulega og er lagt til að leitað verði samstarfs við Bláa herinn um
umhirðu fjörunnar“, segir í fundargerð bæjarráðs.
nýtt tjaldstæði opnað í Vogum