Víkurfréttir


Víkurfréttir - 31.03.2011, Page 2

Víkurfréttir - 31.03.2011, Page 2
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 13. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR2 Sundmiðstöð - Vatnaveröld Um er að ræða starf í baðvörslu karla og sundlaugarvörslu. Unnið er í vaktavinnu og viðkomandi þarf að gangast undir sundpróf árlega. Umsóknarfrestur er til 15. apríl og skal umsóknum skilað til starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12, eða á mittreykjanes.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Örn Pétursson íþróttafulltrúi í síma 421-6700. ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASVIÐ Reykjanesbær hvetur áhugasama einstaklinga og hópa til þátttöku í Barnahátíð í Reykjanesbæ. Megin áherslan verður lögð á uppákomur sumardaginn fyrsta, 21. apríl og laugardaginn 23. apríl. Um er að ræða kjörið tækifæri fyrir menningar-, tómstunda- og íþróttahópa til kynningar á starfsemi sinni með skemmtilegum hætti eða uppákomum, svo og einstaklinga sem kunna að luma á skemmtilegum hugmyndum eða tilbúnu efni fyrir börn. Áhugasamir sendi póst á netfangið barnahatid@reykjanesbaer.is BARNAHÁTÍÐ – ALLIR MEÐ! Sunnudaginn 3. apríl kl. 15.00 mun Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja verk eftir pólska tónskáldið Fréderic Chopin.  M.a. verða fluttar Ballöður nr. 1, nr. 3 og nr. 4  og Sónata nr. 2   Sjá nánar á vef Reykjanesbæjar. Aðgangseyrir kr. 1.000, ókeypis fyrir nemendur Tónlistarskólans. Tónlistarfélag Reykjanesbæjar, Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og menningarsvið Reykjanesbæjar. FRÆGUSTU BALLÖÐUR CHOPIN Í STAPANUM Magnús Bjarnason varð fyrstur til að stofna við- skiptareikning í BYR þegar þegar hann opnaði í Reykja- nesbæ í síðustu viku. Hann fékk afhentan myndarlegan blómvönd frá Ásdísi Ýr Jak- obsdóttur útibússtjóra við það tækifæri. Í útibúinu koma til með að starfa fjórir af fyrrum starfs- mönnum Spkef sparisjóðs, undir stjórn Ásdísar Ýrar Jak- obsdóttur en þessir starfsmenn eru með samanlagt yfir 100 ára starfsreynslu. Byr hefur unnið náið með Spkef sparisjóði, áður Sparisjóði Keflavíkur í mörg ár og veitir sambærilega þjónustu og sparisjóðurinn gerði. „Móttökurnar sem við höf- um fengið hafa verið ótrú- legar. Það hefur verið hérna stanslaus traffík síðan við opnuðum á fimmtudaginn í síðustu viku. Við höfum aldrei lokað klukkan fjögur. Hér hafa síðustu viðskipta- vinirnir verið að fara út klukkan fimm,“ segir Ásdís Ýr Jakobsdóttir, útibússtjóri Byrs í Reykjanesbæ aðspurð um viðbrögð fólks við opnun banka í Reykjanesbæ. Margrét Ingibergsdóttir, þjón- ustufulltrúi, sagði að fólk hafi ekki sett það fyrir sig að þurfa að bíða lengi eftir að komast að hjá þjónustufulltrúa en margir vilja flytja viðskipti sín yfir til Byrs. Jóna Björg Antonsdótt- ir, þjónustufulltrúi, sagði við- tökurnar hafa verið framar björtustu vonum en langflest- ir eru að koma með viðskipti sín úr Landsbankanum. Jóna segist ánægð að hafa stigið þetta skref að fara til Byrs og taka þátt í opnun útibúsins í Reykjanesbæ. Undir þetta tóku samstarfskonur hennar. Það hafi verið erfitt að standa upp úr stólunum og yfirgefa gamla vinnustaðinn en þær telji ákvörðunina vera þá réttu. „Einn sagði í dag að nú væri hann kominn aftur í gamla góða sparisjóðinn sinn og þannig störfum við í anda sparisjóðsins,“ sagði Ásdís Ýr. Starfslið Byrs í Reykjanesbæ er skipað fjórum fyrrverandi starfsmönnum Sparisjóðsins í Keflavík sem allar eru með yfir 25 ára starfsreynslu. Þær hafa líka fengið óteljandi kossa og faðmlög síðustu daga. Síðustu daga hafa þær fjórar haft liðs- auka frá höfuðstöðvum Byrs og ekki veitir af. Ásdís Ýr á reyndar von á því að útibúið í Reykjanesbæ stækki hratt og fjölga þurfi starfsmönnum. Elsa Skúladóttir, þjónustu- fulltrúi, segir það vera einfalt mál fyrir viðskiptavini að færa viðskipti á milli banka. Aðeins þurfi að fylla út eitt eyðublað og svo sjái bankarnir um við- skiptaflutningana og að milli- færa reikninga viðskiptavina, segja upp greiðsluþjónustu- reikningum og stofna nýja, svo eitthvað sé nefnt. Eins og segir hér að framan koma langflestir viðskipta- vinirnir frá Landsbankanum. Landsbankinn hefur svarað því að hann hafi ekki fengið beiðnir um viðskiptaflutning og sagði Ásdís eðlilegar skýr- ingar á því. Byr hafi ekki sent beiðnir um viðskiptaflutning til Landsbankans og það verði ekki gert fyrr en nýir við- skiptavinir Byrs verði komnir með greiðslukort vegna nýrra reikninga. hilmar@vf.is Magnús Bjarnason og Ásdís Ýr Jakobsdóttir á opnunardaginn. Magnús fyrstur til að stofna reikning Ótrúlegar móttökur, kossar og faðmlög 4 Opnun Byrs í Reykjanesbæ:

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.