Víkurfréttir - 08.03.2012, Page 2
2 FIMMTUdagUrInn 8. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR
ATVINNA
Sóknarnefnd Innri-Njarðvíkursóknar óskar eftir því að ráða starfsmann í starf
meðhjálpara við Njarðvíkurkirkju og umsjónamanns safnaðarheimilis.
Sóknarnefnd í samráði við sóknarprest ræður í starð.
Umsóknum eiga að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starð.
Sóknarnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 16. mars.
Umsóknir skal sendast á netfangið srbrs@simnet.is. Einnig er hægt að koma með umsóknir á
skrifstofu sóknarprests í Ytri–Njarðvíkurkirkju milli 10 og 12 á virkum dögum.
Starfssvið:
Böðvar Jónsson, Sjálfstæðis-flokki og forseti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar deildi hart á
bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar
vegna bókunar þeirra gegn sölu
á sorpeyðingarstöðinni Kölku
til bandaríska fyrirtækisins Tri-
umvirate Environmental á bæjar-
stjórnarfundi í fyrradag. Fulltrúi
Framsóknar, annars minnihluta-
flokksins í bæjarstjórn vill eins
og sjálfstæðismenn skoða málið
betur og telur sölu geta verið góða
leið fyrir Kölku sem á við veru-
legan fjárhagsvanda að stríða.
„Það er ekki gott veganesti með
nýs am þy k kt r i f ramt íðarsý n
Reykjanesbæjar að selja eina af
grunnstoðum sveitarfélagsins til
erlendra aðila í því skyni að flytja
inn iðnaðarsorp til brennslu. Þá er
ljóst að viðsnúningur hefur orðið á
rekstri Kölku og núverandi stjórn
félagsins telur möguleika á að gera
fyrirtækið rekstrarhæft þannig að
reksturinn standi undir sér og undið
verði ofan af þeim fortíðarvanda
sem háð hefur stöðinni,“ segir m.a.
í bókun Samfylkingarinnar.
Guðný Kristjánsdóttir las upp
bókun Samfylkingarinnar sem sjá
má í heild á vf.is en að því loknu
kom Böðvar í pontu og hélt reiði-
lestur yfir samfylkingarfólki. Hann
sagði ljóst að Samfylkingin vildi
gera þetta að pólitísku deilumáli
milli aðila og sagði það óábyrgt
og frumhlaup. Nauðsynlegt væri
að fá grunnupplýsingar um málið
í heild til að geta tekið skynsam-
lega ákvörðun. Það væri t.d. ekki
á hreinu hvort það væri leyfilegt
að flytja sorp til landsins. Böðvar
nefndi fleiri dæmi en gagnrýndi
harðlega í orðum sínum óábyrga
stjórnsýslu, eitthvað sem báðir
flokkar hefðu sammælst um að
viðhafa í bæjarstjórn og skrifað
undir. Hann mótmælti einnig hug-
myndum Samfylkingarinnar að
hugsanleg sala á Kölku ætti að fara í
íbúakosningu. Það væri ekki rétt að
gera það þegar mál væru í umræðu
og vinnslu. Þá væri íbúakosning
mjög dýr framkvæmd eða um 10
millj. króna. „Það á ekki tala um
íbúakosningu nema með ábyrgð
en ekki í einhverri léttúð, án nokk-
urrar skynsemi,“ sagði Böðvar.
Kristinn Jakobsson, Framsóknar-
flokki tók undir orð Böðvars og
sagði sölu á Kölku geta verið góða
leið m.a. til að laga fjárhagsstöðu
YOGA-HÚSIÐ
Holtsgötu 6, Njarðvík sími 823 8337
PÁSKANÁMSKEIÐIN
BYRJA EFTIR HELGI
Rope yoga: Hádegistímar kl.11:45 og nokkur pláss laus kl.17:00
Fit pilates: Síðdegistímar, nokkur pláss laus kl.18:15
Meðgönguyoga: Síðdegis á föstudögum kl.17:30
hennar. Stöðin væri sú eina á land-
inu sem uppfyllti skilyrði Evrópu-
sambandsins hvað varðar staðla í
umhverfismálum. Þá væri brennsla
greinilega betri kostur en urðun
sorps.
Friðjón Einarsson, oddviti Samfylk-
ingarinnar sagði að þau gögn sem
lögð hefðu verið fyrir bæjarfull-
trúa hefðu verið skoðuð og kynnt
á vel sóttum fundi Samfylkingar-
innar í Reykjanesbæ sl. laugardag
og niðurstaðan hefði verið sú að
mótmæla sölu á Kölku. Þess vegna
skildi hann ekki upphlaup forseta
bæjarstjórnar og Kristins Jakobs-
sonar vegna bókunar Samfylk-
ingarinnar. Það væri verið að tala
um tvöfalda stækkun á stöðinni og
þreföldun á brennslu frá því sem nú
er. Þá væru all nokkur mál í tilboði
Bandaríkjamannanna óljós eins og
t.d. förgun öskunnar, sem safnast
hefur upp. Þeir ætla ekki að leysa
þann vanda.
Eysteinn Eyjólfsson, Samfylkingu,
blandaði sér einnig í málið og sagði
að það hlyti að vera viðskiptatæki-
færi í því að fylla upp í þau 20% á
nýtingu stöðvarinnar til að styrkja
reksturinn. „Við viljum ekki kaupa
skuldahreinsun á hvaða verði sem
er,“ sagði bæjarfulltrúinn og vísaði
þar til fyrirsagnar og viðtals við
Böðvar í Víkurfréttum í síðustu
viku.
Rifrildi um ruslið
-Samfylkingin vill ekki selja Kölku en sjálfstæðismenn og Framsókn
jákvæðir og vilja skoða málið betur
Stórt félag með
500 starfsmenn
Triumvirate Environmental
var stofnað 1988 og þjónar ár-
lega um 2500 sveitarfélögum,
fyrirtækjum og stofnunum.
Hjá því starfa um 500 manns
á 20 starfsstöðvum í Banda-
ríkjunum og Kanada. Félagið
eyðir um 300 þús. tonnum
(Kalka eyðir um 10 þús. ár-
lega) af sorpi á ári og á árinu
2011 var velta félagsins um 8,6
milljarðar kr.
Félagið hefur áhuga á að flytja
frá dótturfélagi sínu í Kanada
úrgang sem Kalka getur unnið
úr með öruggum, löglegum
og hagkvæmum hætti og mun
ekki innihalda geislavirk efni,
vopn eða sprengiefni.