Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2012, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 08.03.2012, Qupperneq 4
4 FIMMTUdagUrInn 8. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ, s. 420 3330, www.benni.is Gerðu góð kaup á notuðum bíl frá Bílabúð Benna Chevrolet Spark LS Skráningardagur 7.2010. Beinskiptur, ekinn 33.000 km. Verð kr. 1.550.000,- Subaru Legacy 2,0 Sport sedan Skráningardagur 6.2008 Sjálfskiptur, ekinn 72.000 km Tilboð kr. 2.690.000,- Möguleiki á allt að 90% láni KIA Sorento ll EX Luxury Skráningardagur 11.2007 Sjálfskiptur, ekinn 70.000 km Verð 3.900.000 Toyota Avensis S/D Sol 1800 Skráningardagur 3.2007 Sjálfskiptur, ekinn 54.000 km Verð kr. 2.190.000,- Toyota Yaris 1300 Sol VVTI Skráningardagur 6.2008 Sjálfskiptur, ekinn 69.000 km Verð 1.690.000 Möguleiki á allt að 90% láni Toyota Corolla 1.6 Sol VVTI Skráningardagur 6.2006 Sjálfskiptur, ekinn 94.000 km Tilboð kr. 1.290.000,- Nissan Qashqai 2,0 SE Skráningardagur 4.2007 Sjálfskiptur, ekinn 97.000 km Verð kr. 2.570.000,- Félagið Matur-saga-menning (MSM) og Grindavíkurbær standa fyrir uppskriftakeppni um besta saltfiskréttinn 2012. Matreiðslumennirnir Sigurvin Gunnarsson og Friðrik V. Karls- son meðlimir í MSM velja fimm uppskriftir. Hægt er að senda uppskriftir í tölvupósti til sigur- vingunnars@simnet.is í síðasta lagi 23.mars. Vinningsuppskriftir verða sýni- legar á vefsíðum www.matarsetur.is og www.grindavik.is. Í Menningar- viku mun Salthúsið í Grindavík bjóða upp á saltfiskrétti sjá www. salthusid.is Félagið Matur saga menning www.matarsetur.is facebook: matur saga menning Lögreglukór Reykjavíkur, ásamt Eyþóri Inga Gunn- laugssyni og hljómsveit syngja á tónleikum í Hljómahöllinni 14. mars kl. 20:30 Gestir á tónleik- unum verða Karlakór Keflavíkur. Lögreglukórinn mun að mestu flytja tónlist af nýútkomnum geisla- disk sínum (GAS) sem unninn var á síðasta ári og kom út í maí 2011. Hljómsveitinni stýrir Gunnar Gunnarsson organisti og einn af okkar betri jazz píanistum ásamt úrvals hljóðfæraleikurum. Stjórnandi kórsins er Guðlaugur Viktorsson sem einnig er stjórnandi Karlakórs Keflavíkur. Þetta munu verða einir af síðustu tónleikum Guðlaugs með Lögreglukórnum en samstarf þeirra hefur verið langt og farsælt. n Menningarvika Grindavíkur er nú haldin í fjórða sinn og hefur aldrei verið fjölbreyttari og veglegri. Formleg setning hátíðar- innar verður í Grindavíkurkirkju laugardaginn 17. mars þar sem verða ýmis tónlistaratriði og jafn- framt verða afhent menningar- verðlaun 2012. Menningarvikan stendur til 24. mars. Í kjölfarið tekur við hver við- burðurinn á fætur öðrum í menn- ingarviku þar sem uppistaðan er framlag heimafólks auk þess sem fjöldi landsþekktra tónlistarmanna, listamanna og skemmtikrafta heimsækja Grindavík í menningar- vikunni. Menningarvikunni hefur verið vel tekið undanfarin þrjú ár. Allir leggjast á eitt við að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Tónleikar, skemmtanir, frásagnir, sýningar og uppákomur verða alla dagana á Kvikunni, bókasafninu, Bryggjunni, Salthúsinu, Aðalbraut, Kantinum, Miðgarði, sundlauginni, Grindavíkurkirkju, leikskólunum, Northern Light Inn, grunnskól- unum, listastofum, verslunarmið- stöðinni, Sjómannastofunni Vör, hjá handverksfélaginu Greip og fleiri stöðum. Grindvíkingar, Suðurnesjamenn og reyndar landsmenn allir eru hvattir til þess að nýta sér tækifærið og fjölmenna á menningarviðburðina. Dagskráin verður birt í heild sinni í Járngerði, riti Grindavíkurbæjar, sem kemur út í næstu viku. Menningarvika haldin í fjórða sinn og aldrei meira spennandi Uppskriftakeppni um besta saltfisk- réttinn 2012 Lögreglukór í Hljómahöllinni Sveinbjörn Valur Gunnarsson, Elís Már Gunnarsson, Hermann Nökkvi Gunnarsson, Heiður Gunnarsdóttir, Magnús Guðmundsson, Björn Árnason, Lilibeth S Cipriano, Árni Björn Björnsson, Rannveig Björnsdóttir, Hrafnhildur Björnsdóttir, Marína S. Ottósdóttir, Tinna Sveinsdóttir og Guðný Hermannsdóttir. Okkar yndislegi faðir, sonur, bróðir, mágur og ástkær vinur, Gunnar Björn Björnsson, Hlíðarvegi 52, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 3. mars í faðmi fjölskyldunnar. Jarðarförin fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn 12. mars kl. 15.00 Mikið breytt götumynd við Hafnargötuna Götumynd Hafnargötunnar hefur tekið stakkaskiptum á þremur áratugum. Efri myndina tók Davíð Smári Jónatansson á horninu við Víkina árið 1980 og er horft til Fiskiðjunnar sem þá spúði peningalykt yfir bæinn. Segja má að peningalyktin sé á sínum stað því þar stendur nú Íslandsbanki þó svo peningalyktin þar sé örugglega bærilegri í dag. Myndina hér að neðan tók Hilmar Bragi frá nákvæmlega sama sjónarhorni í hádeginu í gær. Fleiri gamlar myndir frá Keflavík má finna á Facebook undir „Keflavík og Keflvíkingar“. Tilkynnt var til lögreglu um eignaspjöll í Sandgerðsbæ um liðna helgi en rúður voru brotnar í tveimur íbúðarhúsum er standa við Suðurgötu 15 og Víkurbraut 13 þar í bæ. Óskar lögreglan eftir því að þeir sem búa yfir upplýsingum varðandi þessi brot hafi samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800 eða í tölvupósti á netfangið sand- gerdi@logreglan.is. Þess má geta að tólf ökumenn voru kærðir vegna ólöglegrar lagningar í umdæminu nú um helgina. Öll brotin áttu sér stað við íþróttahúsið við Sunnubraut í Reykjanesbæ þrátt fyrir að næg bifreiðastæði hefðu verið laus í nágrenninu. Vill lög- reglan brýna fyrir ökumönnum að leggja bifreiðum sínum löglega svo þær valdi ekki truflun fyrir aðra umferð eða skapi hættu. Einnig voru ökumenn sex bifreiða kærðir vegna stöðvunarskyldu- brota og eiga þeir von á sekt að upphæð 15.000 krónum. Þrátt fyrir mjög virkt eftirlit lögreglu var eng- inn ökumaður kærður vegna ölv- unar- eða fíkniefnaaksturs nú um helgina. n Ökumenn áttu erfitt með að stöðva og leggja

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.