Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.03.2012, Page 13

Víkurfréttir - 08.03.2012, Page 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 8. Mars 2012 Vertu í góðu sambandi við Víkurfréttir! n Auglýsingadeild í síma 421 0001 n Fréttadeild í síma 421 0002 n Afgreiðsla í síma 421 0000 Nýjar fæðutegundir skjóta reglu- lega upp kollinum og geta glætt nýju lífi í mat- aræði okkar sem stundum getur orðið einhæft og fast í viðjum vanans. Okkur hættir nefnilega til að henda alltaf því sama ofan í matarkörfuna en það getur verið gott að fara út fyrir þægindahringinn sinn og prófa eitthvað nýtt og gera mat- aræði okkar áhugavert og spenn- andi! Chia fræin koma frá plöntunni Salvia hispanica og vaxa aðal- lega í Suður-Mexíkó. Chia fræin innihalda hátt hlutfall af omega 3 fitusýrum, ásamt flóknum kolvetnum og próteini, an- doxunarefnum, B vítamínum, kalki, fosfór, magnesíum, sínki og járni. Þau innihalda einnig mikið magn vatnsleysanlegra trefja sem eru mikilvægar fyrir góða meltingu og þyngdarstjór- nun. Ef maður leggur chia fræin í bleyti í vökva í nokkrar mín- útur þá belgjast þau út og verða að mjúku hlaupkenndu geli sem hefur græðandi og mýkjandi áhrif á meltingarveginn. Chia fræin eru sannkölluð orkufæða og skemmtileg viðbót í daglegt mataræði sem graut, út á salat, út í jógúrt, í bakstur, sem eftirréttur og í ávaxtahristinga. Chia grautur 2 msk chia fræ 2 msk goji ber 1 msk kakónibs eða kasjúhnetur 2 b möndlumjólk eða rísmjólk (eða vatn) 1 b frosin bláber/bananabitar/epli Smá vanilla og kanill ef vill Smá salt ef vill Leggja chia fræ í möndlu/rís- mjólk/vatn ásamt goji og kakón- ibs í 15 mín Líka hægt að gera kvöldið áður Bæta rest út í Njótið! Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. Hvað eru Chia fræ? Þann 17. febrúar sl. voru 60 ár liðin frá því nýbygging Barnaskólans í Keflavík / Myllu- bakkaskóla við Sólvallagötu var tekin í notkun. Til að minnast þessa atburðar sem og starfsins í skólanum verða haldnir hátíðar- tónleikar í Andrews Theater á Ásbrú sunnudaginn 1. apríl n.k. Fjölmargir af fyrrverandi og nú- verandi nemendum skólans munu koma þar fram og flytja lög sem öll eru minningar tengdar skólanum eða flytjandanum sjálfum. Allir sem koma að tónleikunum eiga það sameiginlegt að eiga tengingu við skólann, þeir eru annað hvort fyrr- verandi eða núverandi nemendur, fyrrum starfsmenn eða núverandi starfsmenn við skólann. Þegar hafist var handa við að setja á blað hugmyndir að flytjendum kom í ljós að skólinn hefur alið af sér ógrynni af flottu tónlistarfólki í gegnum tíðina. Það er óhætt að segja að þau allra flottustu verði saman komin á þessum tónleikum þar sem flytjendalistinn er mjög spennandi. Fram koma Gunnar Þórðarson, Jóhann Helgason, Magnús Kjartansson, Valdimar Guðmundsson, Deep Jimi and the Zep Creams, Kolrassa krókríð- andi, Heiða Eiríks og margir fleiri, auk þess sem tveir frábærir kórar skipaðir nemendum og fyrrum nemendum taka þátt. Baldur Guð- mundsson er tónlistarstjóri og fer fyrir bandinu sem spilar undir hjá flytjendum. Framkvæmd tón- leikanna er í höndum hóps fólks sem fór af stað með skemmtilega hugmynd í kollinum. Hópurinn er skipaður fólki sem allt á sterka tengingu við skólann en þau eru Brynja Árnadóttir, Íris Dröfn Hall- dórsdóttir, Stefán Jónsson, Freydís Kneif Kolbeinsdóttir, Gunnheiður Kjartansdóttir og Þorvarður Guð- mundsson. Þau gera þetta allt ánægjunnar vegna en jafnframt má geta þess að tónlistarfólkið gefur einnig vinnu sína. Haldnir verða tvennir tónleikar. Þeir fyrri klukkan 16:00 og svo þeir síðari kl. 20:00. Miðaverð er aðeins 1000 krónur. Ágóðinn af tónleik- unum fer í að borga ýmsan kostnað, en það kostar nú sitt að framkvæma svona stórtónleika, en það sem eftir situr rennur beint í minningarsjóð Vilhjálms Ketilssonar. Við hvetjum alla, fyrrum nemendur og bæjarbúa, til að tryggja sér miða og koma og upplifa í Andrews. Það er einmitt á tímum sem þessum sem gott er að fara og fá áfyllingu á gleði og bros í hjartað. Miðapantanir eru í símum 863- 1009 og 695-3297. Hvar verður þú 1. apríl? Öndun leiðir með hjálp súrefnis til þrepabundinnar brennslu kolvetna og vetnis. Þetta ferli er ekki ein- ungis lífsnauðsynlegt heldur einnig orkufærandi. Öndunarloft inniheldur 20% súrefni, hin 80% eru köfnunarefni. Með hækkandi aldri lækkar súrefnis- neyslan vegna minni efnaskipta. Öndunartíðni hjá nýfæddum smábörnum eru 40 andardrættir á mín- útu en aðeins 20 hjá fólki um tvítugt. Öndunartíðnin lækkar enn meir hjá fólki í kringum þrítugt eða í um sextán andardrætti á mínútu. Í miklu álagi aukast efnaskiptin og þar með súrefnisnotkun. Í brennslu- ferlinu við öndunina myndast kolsýra, vatnsgufa, hiti og orka sem fer til vöðva. Meðal líkamshiti manns er yfirleitt 35,2-37 stig á Celcíus. Ef líkamshitinn fer yfir 42 eða undir 35 gráður er líf viðeigandi manneskju í hættu. Á einum degi framleiðir maðurinn um það bil 1000 lítra af koltvísýringi. Í lokuðu rými er súr- efnismagnið ekki lengi að minnka. Í náttúrunni hins vegar endurvinna og bæta plöntur og tré andrúms- loftið með vinnslu koltvísýrings úr loftinu. Lungun eru par líffæra, annað má finna vinstra megin í brjóstholi, hitt hægra megin. Vinstra lunga liggur að hjarta og stóru slagæðunum og neðan til snertir það brjósthol og þind. Við innöndun fer loft niður barka og niður í lungun og fer síðan aftur til baka við útöndun þegar brjósthol dregst saman. Ofantöld líffæri eru þau mikilvægustu til að halda fólki gangandi. Það er ólíku saman að jafna í lifnaðarháttum manna í dag og áður. Á meðan nútímamaðurinn situr gjarnan í átta tíma fyrir framan tölvu eða sjónvarp þarf hann jafn- framt að huga að reglulegri hreyfingu sem áður fyrr var bæði sjálfsögð og eðlileg þegar orka fólks fór í að sofa um nætur og afla sér næringar á daginn. Ekki síst vegna hreyfingarleysis hafa myndast fjölmargir sjúkdómar sem rekja má til lifnaðarhátta manna og félagslegra þátta. Þegar öllu er á botninn hvolft er ekki við neinn að sakast nema okkur sjálf. Við höfum þetta nefnilega allt í hendi okkar og getum aukið vel- líðan og hreysti með því að hreyfa okkur reglulega. Göngur, hlaup, sund og hjólaferðir hafa jákvæð áhrif á heilsu. Ef við hreyfum okkur reglulega þurfum við ekki á vítamínum, lyfjum eða öðrum aukaefnum að halda til þess að líkami okkar geti tekist á við allt það sem hann þarf að geta gert í daglegu lífi nútímans. Birgitta Jónsdóttir Klasen ÖNDUNARKERFIÐ Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar Sparidagar á Örkinni 6. til 11. maí 2012, fyrir félagsmenn FEB Verð: 42.000.- á mann í tveggja manna herbergi, aukagreiðsla fyrir eins manns herbergi er 9000.- ATH! SKRÁNING HEFST MÁNUDAGINN 12. MARS 2012 hjá Jórunni síma 841 8980, Lellu síma 8618 133, Ragnheiði síma 895 9936, Kristínu 895 1898, Oddnýju 695 9474 Ath: Áríðandi að láta vita ef hætt er við Mig langar að koma á fram-færi þökkum til al lra þeirra sem stóðu að undirbún- ingi og framkvæmd Nettómóts- ins í körfubolta sem fram fór í Reykjanesbæ helgina 3.-4. mars sl. Sérstakar þakkir færi ég forstöðu- mönnum og starfsfólki íþrótta- mannvirkja bæjarins svo og for- svarsmönnum unglingaráða körfuknattleiksdeilda UMFN og Keflavíkur, sem störfuðu saman að þessu móti og sáu til þess að framkvæmdin var íþróttafélög- unum og bæjarfélaginu okkar til mikils sóma. Alls tóku rúmlega 1100 börn þátt í mótinu ásamt fjölskyldum sínum víðsvegar að af landinu og er mótið það stærsta sem haldið er á hverju ári. Það er ljóst að til þess að slík fram- kvæmd gangi upp þarf góðvilja og samstarf margra aðila og má þar nefna Þjónustumiðstöð Reykja- nesbæjar og starfsfólk grunnskól- anna þar sem keppendur, þjálfarar og foreldrar gistu. Síðast en ekki síst má ekki gleyma foreldrum barnanna sem tóku virkan þátt í leik þeirra á þessu móti, hvort sem þeir voru í hlut- verkum liðsstjóra, dómara eða áhorfenda. Það var unun að fá að taka þátt í lokaathöfn Nettómótsins og upplifa þar hvernig gleðin skein úr andlitum keppenda, sem allir fengu viðurkenningapening og körfubolta fyrir þátttökuna. Svo glumdi í húsinu þegar allir krakkarnir kölluðu einum rómi: TAKK FYRIR OKKUR! Mig langaði að taka undir þessi orð. Stefán Bjarkason Framkvæmdastjóri íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar Glæsilegt Nettómót í körfubolta 2012 Hefur jákvæð áhrif á sumar- lestur barna Bæjarráð Garðs tekur undir þá skoðun Ferða-, safna- og menningarnefndar Garðs að sumaropnun bókasafnsins gæti haft jákvæð áhrif á sumarlestur barna. Í því ljósi samþykkir bæjarráð að sumaropnun verði á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 15:00 – 18:00. Áætlaður kostnaður vegna sumaropnunar er kr. 95.000.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.