Ægir - 01.06.2004, Blaðsíða 14
H A F N I R
Á útmánuðum var gengið frá
samkomulagi milli Reykjavíkur,
Akraness og sveitarfélaga í Borg-
arfirði um sameiningu hafna á
þessu svæði í eitt fyrirtæki, sem
tekur gildi um næstkomandi ára-
mót. Árni Þór Sigurðsson segir
þetta gerlegt; Hvalfjarðargöng
hafi sameinað byggð sunnan og
norðan fjarðarins í eitt atvinnu-
svæði og fyrirhuguð lagning
Sundabrautar ýti undir áframhald
þeirrar þróunar. Breytingar á
hafnalögum sem tóku gildi ný-
lega hafi jafnframt hvatt til sam-
einingar af þessum toga. Þær geri
ráð fyrir aukinni samkeppni milli
hafna þannig að starfsumhverfið
verði talsvert öðruvísi en verið
hefur.
Geldinganeshöfn úr sögunni
Stórskipahöfn í Geldinganesi hef-
ur verið lengi á teikniborðinu.
Nú verður þeim fyrirætlunum
vikið til hliðar, skipulagi breytt
og nesið tekið undir íbúðabyggð
og aðra starfsemi eftir atvikum.
„Hafnargerð þarna hefði verið afar
kostnaðarsöm - spurning um
milljarða - jafnframt sem byggðin
í Grafarvogi er komin þétt að
Geldinganesi. Því hefði þurft að
laga íbúðabyggð að höfn og
þungaflutningum til og frá
henni. Málið væri öðruvísi vaxið
og hefði verið auðveldara viðfangs
ef höfn hefði komið á undan
byggð,“ segir Árni. Hann fagnar
farsælli lendingu „...enda er því
ekkert að leyna að þetta mál hefur
verið pólítískt erfitt fyrir Reykja-
víkurlistann.“
„Hafnarframkvæmdir eru af-
skaplega dýrar í eðli sínu,“ segir
Árni Þór ennfremur og bendir í
því sambandi meðal annars á ol-
íubryggjuna í Örfirisey sem tekin
Hafnir í Reykjavík og norðan Hvalfjarðar sameinast í eitt fyrirtæki:
Sérhæfing hafna
skilar sparnaði
„Ég tel sameiningu hafna hér við Faxaflóa heillaríkt skref, sem muni
skila bæði hagræðingu og sparnaði. Þegar hefur verið mörkuð ákveðin
stefna um sérsvið hverrar hafnar og þar tel ég þýðingarmikið að fallið
hefur verið frá hugmyndum um hafnargerð í Geldinganesi. Þess í stað
verður áhersla lögð á uppbyggingu Grundartanga sem flutninga- og
stórskipahafnar, eins og áformað var í Geldinganesinu,“ segir Árni Þór
Sigurðsson, formaður hafnarstjórnar í Reykjavík.Viðtal og mynd:Sigurður
Bogi Sævarsson.
Séð yfir Sundahöfn. Mörkuð
hefur verið sú stefna að hún
skuli vera alhliða flutninga-
höfn. Þar koma fraktskip að
landi í dag, en skemmtiferða-
skip munu flytjast að nýrri
höfn við Sæbraut í fyllingu
tímans.