Ægir - 01.06.2004, Blaðsíða 17
17
S K I PA F L U T N I N G A R
Nýja skipið, Akrafell, er með
rúmlega 5.100 tonna burðargetu
og var smíðað í Rúmeníu og
Þýskalandi árið 1997. Það getur
flutt 435 gámaeiningar, gang-
hraðinn er 14 sjómílur og 13
manns eru í áhöfninni.
Brottfaradagar á áætlunarleið-
inni Reykjavík, Reyðarfjörður,
Klakksvík, Immingham á Bret-
landseyjum og Rotterdam breyt-
ast með tilkomu Akrafellsins. Frá
og með er 2. júlí nk. verður siglt
frá Reykjavík á miðnætti á föstu-
degi í stað mánudags áður og
komið til Reyðarfjarðar á sunnu-
degi í stað miðvikudags. Þá
munu skipin hafa viðkomu í
Klakksvík á mánudegi eftir
breytinguna í stað fimmtudags
og koma til Immingham á mið-
vikudagskvöldi í stað laugardags
og til Rotterdam á fimmtudags-
kvöldi í stað sunnudags. Skafta-
fellið verður áfram með viðkomu
á Grundartanga hálfsmánaðarlega
en lestar og losar þar á fimmtu-
dögum þegar nýja siglingaáætl-
unin tekur gildi.
Hinrik Bjarnason, deildarstjóri
útflutningsdeildar Samskipa, tel-
ur þessar breytingar vera til þess
fallnar að stórauka þjónustu fé-
lagsins við útflytjendur og inn-
flytjendur. „Þetta skapar t.d.
ferskfiskútflytjendum á Íslandi og
í Færeyjum stóraukna möguleika
því fiskurinn er tilbúinn til af-
hendingar á fimmtudögum í
Englandi, en var áður að koma á
markað á mánudagsmorgnum og
þá sem viðbót við það mikla
magn sem kemur í byrjun hverrar
viku frá Íslandi eftir öðrum leið-
um.“
Tilkoma Akrafellsins stóreykur
einnig möguleika annarra útflytj-
enda og innflytjenda því Samskip
verða nú með áætlunarferðir
tvisvar í viku til bæði Imming-
ham og Rotterdam þar sem Arn-
arfellið og Helgafellið hafa einnig
viðkomu þar vikulega á áætlunar-
leiðinni milli Íslands, Skand-
ínavíu og meginlandsins. Fimmta
skip Samskipa í áætlunarsigling-
um milli Íslands og Evrópu er
Jökulfellið. Það siglir á Eystra-
saltshafnir og sinnir einnig ýms-
um tilfallandi verkefnum.
Samskip með vikulegar áætlunarsiglingar milli
Austfjarða, Færeyja og meginlands Evrópu:
Framfaraskref fyrir
ferskfiskútflytjendur
Samskip hafa bætt við skipi á móti Skaftafell-
inu á siglingaleiðinni milli Íslands, Færeyja og
meginlands Evrópu. Verður félagið framvegis
með viðkomu vikulega á Reyðarfirði og í
Klakksvík í Færeyjum í stað hálfsmánaðarlega
áður.
Siglingaleiðir skipa Samskipa milli Íslands og Evrópu.
Frá athafnasvæði Samskipa á Reyðarfirði. Mynd: -áþj.