Ægir - 01.06.2006, Page 21
21
S K E M M T I F E R Ð A S K I P
nægilega marga til dæmis
frönsku-, ítölsku- og
spænskumælandi leiðsögu-
menn í hópferðir með þessa
gesti,“ segir Pétur, en lang-
fjölmennastir eru Þjóðverjar í
hópi farþega skemmtiferða-
skipanna og lætur nærri að
þeir séu um 40% allra farþega
skipanna.
Umtalsverðar tekjur
Það er ljóst að skemmtiferða-
skipin skilja eftir sig umtals-
verðar tekjur fyrir viðkom-
andi hafnir og þjónustugeir-
ann. Pétur Ólafsson segir að
Cruise Iceland hafi látið gera
könnun á eyðslu farþega
skipanna og hún hafi leitt í
ljós að hver farþegi skildi eft-
ir sig um 5 þúsund krónur að
meðaltali í kaupum á minja-
gripum og slíkum varningi.
Þetta þýði með öðrum orðum
að á Norðurlandi skilji far-
þegar skipanna eftir sig um
200 milljónir króna á ári og
eru þá ótalin hafnargjöld,
tekjur rútufyrirtækja og ferða-
skrifstofa. Samandregið megi
því óhikað segja að skemmti-
ferðaskipin skipti efnahags-
lega gríðarlega miklu máli
fyrir ferðaþjónustuna á Ís-
landi og þjóðarbúið í heild.
Haustskipin til Reykjavíkur
Til Reykjavíkur koma eins og
áður segir 77 skip í sumar, 20
skipum fleiri en til Akureyrar.
Nokkur skip, einkum þó síðla
hausts, hafa viðkomu í
Reykjavík á leið sinni frá
meginlandi Evrópu vestur um
haf til Bandaríkjanna. Þessi
skip eru gjarnan í siglingum í
Karabíska hafinu yfir vetrar-
mánuðina.
Í nokkrum tilfellum fljúga
farþegar og áhafnir þessara
haustskipa til síns heima frá
Íslandi, með öðrum orðum
að ferð þeirra á skemmti-
ferðaskipinu lýkur á Íslandi.
Aðrir farþegar og áhafnir
koma um borð í Reykjavík.
Þetta þýðir með öðrum orð-
um að flugfélögin njóta líka
góðs með afgerandi hætti af
komum skemmtiferðaskip-
anna til landsins.
Áfram á sömu braut
Pétur Ólafsson segir að áfram
verði leitast við að hlú að
þessum vaxandi þætti í hér-
lendri ferðaþjónustu með
markvissri markaðssetningu í
gegnum Cruise Iceland. Hann
segir að lengi vel hafi Íslend-
ingar verið í samstarfi við
Færeyinga og Grænlendinga
um markaðssetningu
skemmtiferðaskipa, en þeirri
samvinnu hafi verið hætt þar
sem menn hafi talið að hún
hafi skilað takmörkuðum
ávinningi. Markaðsvinnan
verði því áfram á hendi Cru-
ise Iceland, en liður í henni
er árleg ferðakaupstefna út-
gerða skemmtiferðaskipa á
Flórída.
Skemmtiferðaskip til Akureyrar
frá miðjum júlí til 8. September 2006
Nafn Dags. Koma Stærð - BT
Saga Rose 14.07. 08.00 24528
Europa 14.07. 12.00 28710
Discovery 15.07. 09.00 20216
Kristina Regina 15.07. 09.00 4295
Costa Classica 16.07. 07.00 52926
C.Columbus 21.07. 08.00 15067
Aida blu 23.07. 07.00 70310
Calypso 23.07. 09.00 11162
Prinsendam 24.07. 08.00 37845
Vistamar 24.07. 08.30. 7478
Delphin 24.07. 14.00 16214
Maasdam 26.07. 07.00 55451
Princess Danae 28.07. 08.00 16531
Arielle 28.07. 14.30. 23149
Boudicca 29.07. 13.30. 28338
Princess Danae 03.08. 08.00 16531
Alexander Von Humb. 03.08. 10.00 12331
Bremen 03.08. 13.00 6752
Marco Polo 04.08. 13.00 22080
Albatros 04.08. 14.30 28518
Minerva 2. 04.08. 07.00 30277
Maxim Gorkiy 05.08. 14.30 24220
Aida blu 06.08. 07.00 70310
Le Diamant 07.08. 09.00 8282
Clipper Adventurer 13.08. 10.00 4364
Black Prince 14.08. 08.00 11209
Princess Danae 19.08. 08.00 16531
Albatros 21.08. 14.30 28518
Maxim Gorkiy 22.08. 14.30 24220
Artemis 25.08. 08.00 44588
Amsterdam 27.08. 07.00 60874
Le Diamant 27.08. 08.00 8282
Silver Cloud 30.08. 08.00 16927
Black Prince 02.09. 14.00 11209
Sea Princess 08.09. 07.00 77499
Farþegar skemmtiferðaskipanna skilja eftir sig umtalsverðar tekjur hér á landi.
Samkvæmt könnun sem hefur verið gerð má ætla að hver og einn farþegi kaupi
sér minjagripi hverskonar fyrir um 5 þúsund krónur.
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
www.isfell.is
Allt til línuveiða
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 21