Ægir - 01.06.2009, Síða 19
19
F R É T T I R
Útskrifuðust úr Flutningaskóla Samskipa
Ellefu flutningatæknar voru
útskrifaðir úr Flutningaskóla
Samskipa við hátíðlega at-
höfn á dögunum. Forseti Ís-
lands og fleiri góðir gestir
voru viðstaddir athöfnina.
Skólinn, sem starfræktur er í
samstarfi við Mími-símennt-
un, er sérhæfður fyrir bílstjóra
Samskipa og starfsfólk í vöru-
húsum og á gámavelli félags-
ins.
Flutningaskóli Samskipa er
fyrir metnaðarfullt starfsfólk
Samskipa sem náð hefur 20
ára aldri og er með stutta
formlega skólagöngu að baki.
Aðalmarkmið hans að styrkja
faglega hæfni starfsfólks,
auka sjálfstraust þess og
möguleika á starfsþróun.
Viðurkenndur skóli af
menntamálayfirvöldum
Skólinn er viðurkenndur af
menntamálaráðuneytinu til
allt að 23 eininga í framhalds-
skóla. Kennt er samkvæmt
námskrá Samskipa sem
byggð er á viðurkenndri
námskrá Fræðslumiðstöðvar
atvinnulífsins, Vöruflutninga-
skólanum, og fá útskrifaðir
nemendur titilinn flutninga-
tæknir.
Námið tekur tvær annir,
samtals 339 kennslustundir,
og fer það fram á vinnutíma í
kennslustofu Samskipa og á
athafnasvæði félagsins við
Kjalarvog.
Starfsfólk samdi kennslubók!
Kennarar á vegum Mímis-
símenntunar kenna alla al-
menna áfanga í náminu en
sérfræðingar Samskipa kenna
flutningafræði og öryggismál
ásamt vinnustaðanámi sem
fer fram á athafnasvæði fyrir-
tækisins við Kjalarvog.
Þá er gaman að geta þess
að starfsfólk Samskipa hefur
sjálft samið kennslubókina í
flutningafræðum sem kennd
er við skólann og er hún talin
vera sú fyrsta á Íslandi í því
fagi.
Útskriftarnemarnir 11 ásamt forstjóra Samskipa, Ásbirni Gíslasyni, Báru Mjöll Ágústsdóttur mannauðsstjóra, Auði Þórhalls-
dóttur fræðslustjóra og Huldu Ólafsdóttur og Jónu Margréti Ólafsdóttur frá Mímí-símenntun. Mynd: Jón Svavarsson
Hafnarbryggju - 580 Siglufjörður
Símar:
467 1205 - 467 1203 - 692 5060 - 869 4441