Ægir - 01.06.2009, Blaðsíða 22
22
S J Ó M E N N S K A
„Aflabrögð að undanförnu
hafa verið alveg glimrandi
góð. Við höfum mest verið hér
á Breiðafirði og út af Snæ-
fellsnesi og höfum einbeitt
okkur að ýsunni. Í vor höfum
við verið á þeirri fiskislóð við
Öndverðanesið sem gjarnan er
nefnd Vetrarbrautin, sem er
um hálfa mílu frá landi og
dýpið um það bil fjörutíu
faðmar. Í vetur vorum við lítið
eitt lengra út frá Nesinu, á
miðum sem stundum eru
nefnd Suðurkanturinn,“ segir
Friðrik Kristjánsson, skipstjóri
á Matthíasi SH 21 sem gerður
er út frá Rifi.
Strákarnir á Matthíasi voru
að leggja að bryggju þegar
tíðindamaður Ægis var á ferð-
inni á Rifi á dögunum. „Við
höfum fiskað vel þessa ver-
tíðina,“ segir skipstjórinn.
„En nú verðum við að fara
að hægja á sókninni, enda
kvótinn að verða búinn. Í
aflaheimildum erum við með
um það bil 200 tonn í þorsk-
kvóta og ámóta í ýsunni.
Þetta dugar okkur hins vegar
hvergi og því höfum við alltaf
leigt til okkar aflaheimildir í
nokkrum mæli. Á þessu fisk-
veiðiári erum við líklega bún-
ir að veiða eitthvað um 940
tonn alls. Nú síðast í júní er
hins vegar allur kvóti búinn
og við erum að ganga frá.
Þrífa bátinn, taka næturnar frá
borði, mála það sem þarf og
svona gæti ég haldið áfram.
Við erum stopp núna alveg
fram í september eða þar til
nýtt fiskveiðiár hefst.“
Hörkufínt skip
Matthías er rúmlega 122
tonna draganótarbátur, smíð-
aður í Kína árið 2001. Skipið
var fyrst í eigu Odda hf. á
Patreksfirði og hét þá Vestri
BA. Árið 2005 keypti Nón-
varða hf. á Hellissandi skipið
en það fyrirtæki er í eigu for-
eldra Friðriks skipstjóra, hjón-
anna Kristjáns Jónssonar og
Arnheiðar Matthíasdóttur.
Skipið nefndu þau eftir syni
sínum Matthíasi, sem er lát-
inn.
„Þetta er hörkufínt skip
sem fer bæði vel með mann-
skap og veiðarfæri. Er afskap-
lega þægilegt í öllum hreyf-
ingum,“ segir skipstjórinn.
Fimm karlar eru í áhöfn
Matthíasar SH og er það sami
kjarninn og verið hefur frá
upphafi. „Ég kláraði Stýri-
mannaskólann árið 2004 en
áður hafði ég verið til sjós á
sumrin og tekið einhverja
lausatúra. Var smábátakarl
fyrst eftir að ég kláraði skól-
ann. Þegar fjölskyldan keypti
þennan bát kom ég í áhöfn-
ina og þegar pabbi fór í land
tók ég við skipstjórninni.
Breytingin á áhöfninni varð
þó ekki önnur en sú að Garð-
ar bróðir minn kom inn í
staðinn og tók við af mér sem
stýrimaður,“ útskýrir Friðrik
og bætir við að móralinn um
borð sé góður. Hver maður
þekki til hvers sé af honum
ætlast og því gangi hlutir
greitt fyrir sig.
„Fyrir okkur er ekki langt
að sækja á miðin. Erum því
oft að fara út um klukkan sex
á morgnana og erum komnir
inn um kaffileytið. Slíkt er í
raun svipað úthald og gerist
hjá dagvinnufólki í landi.“
Fyrningarleiðin er hrikaleg
Sem kunnugt er hefur sú rík-
isstjórn sem tók við völdum í
maí boðað breytingar á stjórn
fiskveiða með svonefndri
fyrningarleið. Þannig ætlar
ríkið að innleysa til sín þær
aflaheimildir sem nú eru hjá
útgerðinni og endurúthluta
þeim í framhaldinu. Nánari
útfærsla þess hefur þó ekki
verið kynnt.
„Fyrningarleiðin er hrika-
legt dæmi sem setur allt á
annan endann. Bara umræðan
um þessa uppstokkun fiski-
veiðstjórnunarkerfisins er strax
farin að hafa mjög skaðleg
áhrif. Sjávarútvegurinn hefur
starfað eftir leikreglum kvóta-
kerfisins alveg síðan 1983 og
það er ómögulegt að færa
greinina yfir í nýtt umhverfi
nema við fáum eitthvað á
móti. Það er ekki hægt að
taka kvótann af útgerðinni og
skilja okkur eftir með skuld-
irnar. Ef hér á að setja af stað
einhverja allsherjar ríkisútgerð
í sjávarútvegi dregur það
Glimrandi góð aflabrögð við Öndverðanesið:
Veiðum vel á
Vetrarbrautinni
- segir Friðrik Kristjánsson, skipstjóri á Matthíasi SH
Aflanum landað í Rifshöfn.