Ægir - 01.06.2009, Blaðsíða 33
33
B Á T A S M Í Ð I
„Umsvifin í bátasmíðinni um
þessar mundir eru mikil. Við
erum að smíða þrjá þrettán
metra plastbáta og fleiri eru í
hönnun,“ segir Sverrir Bergs-
son hjá bátasmiðjunni Seiglu
á Akureyri. Seigla flutti starf-
semi sína frá Reykjavík norður
til Akureyrar fyrir þremur ár-
um. Síðan þá hefur verið jafn
stígandi í rekstri fyrirtækisins
sem sérhæfir sig í smíði plast-
báta fyrir erfiðar aðstæður á
norðurslóðum.
Bátalínan Seigur fæst í
ýmsum útfærslum en slíkir
bátar eru á bilinu sex til
fimmtán metra langir. „Allir
okkar bátar byggjast á
ákveðnum grunni sem síðan
er bætt á, til að tryggja að
hver þeirra uppfylli óskir
kaupenda. Fyrir vikið eru allir
bátar Seiglu á sinn hátt sér-
stakir.
Nýr bátur í hönnun
„Núna erum við til dæmis að
þróa nýjan bát sem verður
fimmtán metra langur á þrem-
ur hæðum og er ætlaður
kaupendum bæði í Noregi og
Danmörku. Sá er öllu breiðari
og hærri en aðrir þeir bátar
sem við höfum smíðað til
þessa. Er í raun nokkurs kon-
ar togari en getur einnig nýst
fyrir línu- og snurvoðarveið-
ar,“ segir Sverrir sem er fram-
kvæmdastjóri Seiglu og annar
tveggja aðaleigenda fyrirtæk-
isins.
Fellikjölur er staðalbúnaður í
öllum stærri bátum frá Seiglu,
sem gerir bátana meðfærilega.
Fyrir fellikjöllinn fékk fyrir-
tækið sérstök nýsköpunar-
verðlaun á sjávarútvegssýn-
ingunni Northfish sem haldin
var í Þrándheimi í Noregi í
fyrra.
Fjölga starfsfólki
Síðustu árin hefur verið næsta
lítið að gera í bátasmíði fyrir
innlenda markaðinn. Svonefnt
strandveiðifrumvarp sjávarút-
vegsráðherra, sem kynnt var í
vor, hefur þó breytt því.
Margir eru, að sögn Sverris, til
dæmis að kanna hagkvæmni
kaupa á litlum strandveiðibát-
um. Þá hefur Seigla unnið að
smíði báta sem eru notaðir
við sjóstangveiði. Allt er þetta
þess valdandi að fyrirtækið er
nú að fjölga starfsfólki, en hjá
Seiglu vinna í dag 18 manns.
Þá er fyrirtækið að flytja starf-
semi sína af Eyrinni á Akur-
eyri í Goðanes nyrst í bænum
og fer þangað í 1.800 fer-
metra húsnæði sem eykur alla
möguleika til vaxtar og sókn-
ar.
Sverrir fyrir framan þrjá þrettán metra báta sem Seigla smíðaði samtímis fyrir Noregsmarkað.
Umsvif stöðugt að aukast hjá Seiglu:
Hanna nýjan bát fyrir Noregs-
og Danmerkurmarkað
Sverrir Bergsson, framkvæmdastjóri Seiglu.