Ægir - 01.04.2012, Qupperneq 11
11
S A G A N
Í bók sinni byggir Sigurður
meðal annars á frásögn
Magnúsar Finnssonar, blaða-
manns á Morgunblaðinu til
áratuga, sem stóð vaktina og
aflaði frétta af atburðum úti á
miðunum þegar til átaka kom
milli Íslendinga og Breta. Í
bókinni segir:
Slegið í stjórnborðsbóg
„Andromeda, hið gríðarstóra
herskip, var á fullri siglingu
og stefndi í áttina að okkur á
miklum skriðþunga. Örfáum
andartökum síðar var bresku
freigátunni þverbeygt fyrir
varðskipið og slegið í stjórn-
borðsbóg þess svo skipin
skullu saman með braki og
brestum og sjálfur hentist ég
til þar sem ég stóð á brúar-
vængnum. Strax kom allmikill
hliðarhalli á varðskipið sem
rétti sig þó strax af þegar það
var laust úr klóm brimdrek-
ans,“ er haft eftir Magnúsi
Finnssyni þar sem hann vísar
til átaka á miðunum fyrir
austan land snemma árs
1976.
Tilgreint er að að þegar
útfærsla landhelginnar kom
til framkvæmda í október
1975 hafi alls alls fimmtíu
breskir togarar verið á Ís-
landsmiðum, auk togara frá
Vestur-Þýskalandi, Belgíu og
Færeyjum. Gagnvart síðast-
nefndu þjóðunum náðust
samningar fljótlega en raunin
varð önnur hvað áhrærði
Bretum. Því kom til átaka.
Hörð atlaga
Austfjarðamið voru helsti
vettvangur 200-mílna stríðs-
ins. Segja má að það hafi
byrjað 15. nóvember 1975
þegar varðskipin Týr og Þór
skáru trollvíra aftan úr togur-
unum Boston Marauder og
Primellu, en slíkt átti eftir að
gerast margoft á næstu vik-
um.
„Hinn 25. nóvember 1975
voru bresk herskip og drátt-
arbátar komin á Austfjarða-
mið, togurunum til verndar.
Og fljótlega sló í brýnu. Fyrst
með núningi en svo meiri-
háttar átökum. Freigátan HMS
Falmouth reyndi ásiglingu á
varðskipið Þór 10. desember
og næsta dag gerðu þrír
dráttarbátar harða atlögu að
varðskipinu í mynni Seyðis-
fjarðar. Einn bátanna, Llo-
ydsman, sigldi tvívegis á
varðskipið og olli á því mikl-
um skemmdum. Svarað var
með fallbyssuskotum.
„Fyrri kúluna létum við
viljandi fara yfir dráttarbátinn
en seinni kúlunni var miðað
á strompinn. Ekki sáum við
hvar hún lenti á skipinu en
við heyrðum greinilega að
hún hitti Lloydsman,“ sagði
Helgi Hallvarðsson skipherra
í viðtali við Morgunblaðið í
kjölfar atburðanna við Seyðis-
fjörð.
Áróður skiptir máli
Í bókinni er nokkuð gert úr
þætti fjölmiðla í þorskastríð-
inu. Þar segir að þegar ís-
lensku varðskipin lögðu úr
Átökin um Íslandsmið
Helgi Hallvarðsson var nafntogaður skipherra og ein af frægustu kempum þorskastríðanna.