Ægir - 01.04.2012, Qupperneq 18
18
S J Á V A R Ú T V E G S N Á M
Fisktækniskóli Íslands í
Grindavík er nýjung í skóla-
kerfinu. Skólinn býður upp á
nám á sviði veiða (háset-
anám), fiskvinnslu og fiskeld-
is á framhaldsskólastigi.
Skólinn er í eigu aðila vinnu-
markaðarins, fræðsluaðila og
sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Hann starfar samkvæmt sér-
stökum samningi við mennta-
málaráðuneytið. Námið er
hagnýtt tveggja ára nám þar
sem önnur hver önn er í skóla
og hin fer fram í formi vinnu-
staðanáms í fyrirmyndar fyrir-
tækjum í greininni. Þessi
blanda verklegs og bóklegs
náms hentar mjög mörgum
vel. Jafnframt fá nemendur
góð tækifæri til að mynda
sterkar tengingar út í atvinnu-
lífið á meðan á náminu stend-
ur.
Brautir skólans eru þrjár
þ.e. fiskvinnslubraut, sjó-
mennskubraut og fiskeldis-
braut.
Nemendur ná sér í ýmis
réttindi á meðan á náminu
stendur eins og smáskipapróf
(-12 m.), vélavörður (–750
kw.), lyftarapróf og fleira
ásamt því að læra fisktækni,
aflameðferð, um gæðakerfi í
fiskvinnslu, vinnuvistfræði,
upplýsingatækni, umgengi
um fiskvinnsluvélar (Baader
og Marel) og margt fleira.
Í undirbúningi er sérhæft
nám fyrir gæðastörf (3ja árið)
og einnig braut fyrir véla-
menn (Baader – Marel) á
hærra stigi. Fisktækniskólinn
býður einnig upp á nám í
netagerð sem er löggild iðn-
grein.
Eftir tveggja ára nám getur
nemandi útskrifast með fram-
haldsskólapróf á því sviði
sem hann valdi sér. Það er
einnig undirbúningur fyrir
frekara nám s.s. í skipstjórn
og vélstjórn eða á bóklegum
brautum. Það má einnig
nefna möguleika á áfram-
haldandi námi við sjávarút-
vegsdeild Háskólans á Akur-
eyri eða hjá samstarfsskóla í
Noregi í fiskeldi.
Í haust er áformað að
kenna faggreinar í dreifnámi/
www.isfell.is
Sjófatnaður
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Fisktækniskólinn – skóli til framtíðar
Fisktækniskólinn er í Grindavík.
Nemendur hlýða á fyrirlestur í kennslustund.