Ægir - 01.04.2012, Blaðsíða 22
22
mjög vel sótt og voru nem-
endur ýmist að stefna á
strandveiði eða jafnvel að
auka möguleika sína á vinnu
á sjó eða afla sér réttinda í
starfi sínu. Jafnframt voru 10
nemar sem útskrifuðust úr
vélstjórn II sem var kennt í
samstarfi við Fjölbrautarskóla
Suðurnesja. Þá bættu menn
við sig 3 áföngum í raffræði,
kælitækni og framhald í vél-
fræði og juku réttindi sín í að
mega vera á bátum með
sömu vélastærð en allt að 24
metrar að lengd. Þetta nám
var sett upp sem lotunám
(ein lota í mánuði). Þetta
námskeið var sniðið að þörf-
um þeirra sem eru úti á
vinnumarkaðinum og þá sér-
staklega sjómönnum. Skip-
stjórnarnámskeiðin á báta
undir 12 metrum hafa verið
vinsæl og hefur verið fullt á
þeim í vetur. Námskeið í sjó-
vinnu hefur verið sniðið eftir
óskum skipstjóra sem telja
mjög margir að vanti hand-
verkskunnáttu úti á sjó. Þetta
námskeið er 80 stundir og er
mjög hagnýtt fyrir sjómenn.
Í vetur hefur Nanna Bára
farið um víða um landið til
að kenna á námskeiðum fyrir
fiskvinnslufólk (sérhæfðir
fiskvinnslumenn). Þar má
nefna Ísafjörð, Flateyri, Bol-
ungarvík, Þingeyri, Þórshöfn,
Vestmannaeyjar, Akranes,
Þorlákshöfn, Reykjavík og
hafa Grindvíkingar einnig
verið öflugir í að senda sitt
fólk á námskeið. Alls hafa á
sjöunda hundrað starfsmenn í
sjávarútvegi sótt þessi nám-
skeið. Vísir sendi sitt fólk
strax eftir áramótin og hafa
Þorbjörninn og Stakkavík ver-
ið með sína starfsmenn á
námskeiðum núna í vor. Jafn-
framt er farið að bjóða upp á
viðbótarnámskeið þar sem
kennarar eru frá rannsóknar-
þjónustunni Sýni og Fisk-
tækniskólanum. Fyrstu nám-
skeiðin fóru af stað í Vest-
mannaeyjum í byrjun maí.
Þessi námskeið eru kjara-
bundin og veita launahækk-
un að þeim loknum.
Spennandi tækifæri í
sjávarútvegi
Um þessar mundir eru mörg
spennandi tækifæri í sjávarút-
veginum. Mikil þróun á sér
stað og fjölbreytni starfa inn-
an greinarinnar er sífellt að
aukast. Fiskur er lúxusvara
og mikil áhersla er lögð á
gæði og þekkingu starfs-
manna til framleiðslunnar.
Menntun í faginu gefur
möguleika á störfum sem
gefa vel af sér, bæði á sjó og
landi. Nanna Bára segir skól-
ann í afar góðum tengslum
við atvinnulífið og stofnanir
þess innan sjávarútvegs og
rannsókna. Nemendur skól-
ans fá strax á annarri önn
vinnustaðaþjálfun í samræmi
við áhuga og áherslusvið
þeirra.
Núna stendur yfir skráning
í skólann í haust. „Ég vil
endilega hvetja Grindvíkinga
til að sækja nám í heima-
byggð og sækja nám til okk-
ar. Það skapar mikla mögu-
leika sérstaklega í bæ eins og
þessum þar sem sjávarútveg-
urinn blómstrar,“ segir Nanna
Bára.
Hún vill sérstaklega taka
fram hvað það sé til mikillar
fyrirmyndar hve sjávarútvegs-
fyrirtækin í Grindavík eins og
aðrir þar hafa stutt vel við
fyrstu skref skólans á síðustu
2 árum.
Til að fá upplýsingar um
skólann og námið má hafa
samband á skrifstofu skólans
í síma 4125940 eða eydna@
mss.is, nannabara@mss.is ,
olijon@fss.is
Innritun í skólann fer fram
á menntagatt.is
S J Á V A R Ú T V E G S N Á M