Ægir - 01.04.2012, Síða 24
24
B Á T A S M Í Ð I
Siglufjarðar Seigur ehf. sérhæfir sig í nýsmíði og stærri
sem smærri breytingum trefjaplastbáta:
Fyrsti plastbáturinn smíðaður
fyrir Danmerkurmarkað
„Óskastaða okkar er að
smíða þrjá nýja báta á ári og
annast að öðru leyti viðhalds-
verkefni fyrir bátaflotann.
Sumartíminn sem í hönd fer
er alltaf mikill annatími hjá
okkur í smærri viðhalds- og
viðgerðarverkefnum fyrir báta-
flotann enda höfum við kjör-
aðstæður til að veita hraða og
góða þjónustu. Húsnæði rétt
við höfnina þar sem við getum
tekið bátana inn og þessi
hraði skiptir bátaeigendur
auðvitað miklu máli þegar
veiðarnar standa sem hæst,“
segir Friðrik Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Siglufjarðar
Seigs ehf. á Siglufirði. Þessa
dagana er mikið að gera í
bátasmiðjunni, starfsmönnum
hefur farið fjölgandi og segist
Friðrik skynja áhuga á stærri
breytingaverkefnum í línubát-
um, auk þess sem margir hafi
þörf fyrir endurnýjun.
„Já, það er ekki vafamál
að endurnýjunarþörf er fyrir
hendi, bæði að bátaeigendur
vilji yngja báta sína upp og
margir horfa líka til þess að
fá stærri og öflugri báta. Okk-
ar bátar hafa komið mjög vel
út á undanförnum árum og
staðreyndin er sú að þeir sem
hafa reynslu af Seigs-bátun-
um leita til okkar aftur þegar
kemur að endurnýjun. Það
segir sína sögu um reynsluna
af bátunum. Í flestum tilfell-
um er það líka svo að eftir að
við höfum afhent eigendum
bátana höfum við ekkert
heyrt af þeim meira. Það seg-
ir okkur bara eitt; vandamálin
eru engin og eigendurnir
ánægðir,“ segir Friðrik en fyr-
irtækið Siglufjarðar Seigur var
stofnað árið 2005 um smíði
trefjaplastbáta. Fyrirtækið er
staðsett við hlið JE vélaverk-
stæðis hf. sem á helminginn í
bátasmiðjunni á móti báta-
framleiðandanum Seiglu ehf.
á Akureyri. Friðrik segir mik-
inn styrk felast í þessu eign-
arhaldi, JE vélaverkstæði ann-
ast allar stálsmíðar og Seigla
aðstoðar í markaðsmálum og
ýmsum öðrum þáttum. Smíð-
in fer hins vegar alfarið fram
á Siglufirði.
Starfsmenn Siglufjarðar Seigs ehf. fyrir framan Seigs-bátinn sem afhentur verður til Danmerkur á næstu vikum.
Einn af nýjustu bátum Siglufjarðar Seigs.