Ægir

Årgang

Ægir - 01.04.2012, Side 46

Ægir - 01.04.2012, Side 46
46 Vinnuhópur sjávarútvegsráð- herra um makrílveiðar skilaði greinargerð sinni fyrir skömmu og endurspeglar hún mjög glögglega hversu mikil innspýting var í þjóðfélaginu í fyrra af makrílveiðum. Milli ára tvöfaldaðist magn makríl- afurða milli ára á sama tíma og verðmætin þrefölduðust. Nær allur makrílaflinn var hausaður og frystur. „Lögð var mikil áhersla á að vinna makrílinn til mann- eldis á vertíðinni 2011. Að vísu er ekki hægt að sjá í gögnum hvernig makrílaflan- um var ráðstafað, þar sem engar upplýsingar um skipt- ingu aflans eftir vinnslugrein- um eru til. Þar af leiðandi er ekki hægt að greina hvort afl- inn er að fara í landvinnslu, vinnslu út á sjó, frystingu, bræðslu eða aðra vinnslu. ... Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir útflutning 2011 á makrílafurðum þá voru flutt út 109.621.989 kg fyrir samtals 24.125.388.401 kr. (fob). Í þessar tölur vantar um 13 þúsund tonn af fisk- mjölsafurðum og að verð- mæti um 2,5 milljarða (fob). Borið saman við 2010 þá voru flutt út 54 þús. tonn af frosnum afurðum fyrir um 8,5 milljarða króna þannig að magn unninna afurða tvöfald- aðist milli ára og verðmætin nærri þrefölduðust. Markaðsmönnum var mik- ill vandi á höndum að koma þessum afurðum í gott verð og miðað við allt það magn sem er farið frá landinu og þá staðreynd að flestir mark- aðir skiluðu hærri verðum en áður, er ljóst að árangurinn var nokkuð góður á síðast- liðnu ári,“ segir í greinargerð vinnuhópsins. Heilfrysting nær allsráðandi Ef marka má upplýsingar sem vinnuhópurinn fékk frá út- flytjendum gætir varkárni hvað varðar spár um verðþróun á komandi vertíð. Jafnvel er búist við einhverj- um verðlækkunum. „Helstu ástæður þess munu vera tölu- verðar birgðir erlendis af ís- lenskum og norskum makríl. Á vertíðinni 2011 var lögð mikil áhersla á vinnslu og eru áhyggjur uppi um að eitthvað M A K R Í L V E I Ð A R Vinnuhópur um makrílveiðar: Makrílverðmætin þrefölduð Blástursfrystur makríll er ein verðmætasta afurðin úr makrílnum. Útflutningur unninna makrílafurða 2010 og 2011.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.